Skessuhorn - 10.10.2018, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 25
Meðfylgjandi mynd tók Guðlaugur Albertsson um liðna helgi
frá Gufuskálum. Sýnir hún rosabaug, en þeir myndast þegar
sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu, oftast bliku, sem er
hátt á himni og ljósbrot verður í ískristöllum skýjanna í frosti
háloftanna. Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það
myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir
eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það
um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á
strendinginn. „Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og
þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himnin-
um. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í
skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla
sem hafa mátulega stefnu,“ segir í útskýringu Kristínar Her-
mannsdóttur á vef Veðurstofunnar.
mm/ Ljósm. ga.
Rosabaugur yfir Snæfellsjökli
Hjónin Reynir Þór Róbertsson og
Ása Fossdal opnuðu veitingastað-
inn 380 Restaurant á Reykhólum í
júní síðastliðnum en þau hafa í sama
húsnæði rekið verslunina Hólabúð í
fjögur ár. Þegar blaðamaður Skessu-
horns kom þar við fyrir helgi voru
starfsmenn úr Þörungaverksmiðj-
unni í hádegismat hjá þeim Ásu og
Reyni, en þau bjóða upp á hádegis-
hlaðborð alla virka daga. „Það eru
alltaf einhverjir sem kíkja hér í há-
deginu,“ segir Reynir. „Við erum
alltaf með ferskt grænmeti, súpu
og kjöt- eða fiskrétt,“ bætir Ása við.
Sumarið var mjög gott hjá þeim á
380 Restaurant og oft vildu fleiri
komast að en gátu. „Þetta fór alveg
fram úr okkar björtustu vonum og
því miður þurftum við stundum að
vísa fólki frá. Það hefur vissulega að-
eins róast núna en við getum þó ekki
kvartað,“ segir Reynir.
Reynir og Ása ætla að vera dug-
leg að bjóða upp á skemmtilega við-
burði á veitingastaðnum í vetur.
„Hera Björk verður með jólatón-
leika í Reykhólakirkju í desember og
við ætlum að bjóða upp á villirétt-
amatseðil fyrir tónleikana. Við verð-
um einnig með jólahlaðborð og svo
ætlum við að reyna að vera dugleg
að halda pub quiz og aðra skemmti-
lega viðburði í vetur,“ segir Ása.
Vilja meiri uppbyggingu
Auk þess að reka verslun og veit-
ingastað stefna þau Reynir og Ása
á að byggja tvö raðhús á Reykhól-
um til að selja. „Fólk vill koma hing-
að og það eru næg atvinnutækifæri
en húsnæðisskorturinn kemur í veg
fyrir að fólk geti flutt hingað,“ segir
Reynir. „Við lögðumst í smá rann-
sóknarvinnu og höfðum samband
við verktaka og sveitarfélagið. Við
fundum góð einingahús sem myndu
henta vel og sveitarfélagið tók vel í
að fella niður gatnagerðagjöld og
fráveitugjöld. Einnig erum við kom-
in með verktaka sem er tilbúinn að
gera þetta fyrir lágmarks hagnað en
það er allt stopp hjá lánastofnunum,“
bætir Reynir við. Þau hafa gengið
milli lánastofnana og alls staðar hef-
ur fólki fundist þetta frábært framtak
en verkefnið stoppar alltaf á kostn-
aðaráætlun. „Við erum að áætla of
lága upphæð í þetta að mati lána-
stofnana,“ segir Ása. „Lánastofnanir
vilja fara eftir föstu fermetragjaldi en
það gengur ekki upp í okkar tilfelli.
Við erum með verktaka sem er ekki
að leitast eftir því að hagnast á verk-
inu og sveitarfélagið ætlar að taka
þátt með að fella niður gjöld,“ segir
Reynir og bætir því við að þau muni
áfram reyna að koma þessu verki í
gegn. En af hverju eru þau að leggj-
ast í þetta verkefni? „Við erum ein-
göngu að þessu því það vantar fólk
hingað í þorpið okkar og svona upp-
bygging er hagur okkar allra,“ svarar
Reynir og Ása tekur undir.
arg
Veitingarekstur gengur vel á Reykhólum
Reynir og Ása bjóða upp á veglegt hádegisverðahlaðborð á 380 Restaurant alla virka daga.