Skessuhorn - 10.10.2018, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 201828
Guðrún Hannesdóttir hefur sent
frá sér ljóðabókina Þessa heims.
Þetta er sjöunda ljóðabók Guðrún-
ar sem hefur fengið mikið lof fyr-
ir fyrri ljóðabækur sínar. Hún hlaut
Ljóðstaf Jóns úr Vörn árið 2007
og ljóðabókin Humátt var tilnefnd
til Fjöruverðlaunanna árið 2016.
Í umsögn um Humátt var sagt að
hún væri eftirminnileg, innihaldsrík
og vönduð ljóðabók sem einkennist
af skörpu innsæi, aðdáunarverðum
stílbrögðum og óbilandi tilfinningu
fyrir möguleikum ljóðsins.
Í ljóðabókinni Þessa heims
fjallar Guðrún um fortíð og nútíð
og dregur upp sterkar myndrænar
myndir í ljóðum sínum. Bókin er
skrýdd ranghverfu af altarisklæði úr
Laufáskirkju frá 1694. klj
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR
GARÐAÚÐUN REYNIS SIG
SÍMI: 899-0304
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
www.skessuhorn.is
Fyrirlestur dr. Hauks Þorgeirsson-
ar í minningu Snorra Sturlusonar,
sem fresta þurfti 2. október síðast-
liðinn verður á dagskrá í Bókhlöðu
Snorrastofu í þriðjudaginn 16. októ-
ber kl. 20:30. „Eins og áður hefur
komið fram gerir Haukur þar grein
fyrir leitinni að höfundi Íslendinga-
sagna, sem á áhugaverðan hátt teng-
ist nafni Snorra. Snorrastofa hvet-
ur fólk til að kynna sér þær áhuga-
verðu rannsóknir, sem Haukur hef-
ur stundað og framtíðarsýn þeirra,
sem ástunda slíka höfundaleit,“ seg-
ir í tilkynningu.
Um fyrirlesturinn segir Haukur
sjálfur:
„Hverjir sömdu Íslendinga sög-
urnar? Í miðaldahandritum er eng-
in þeirra eignuð höfundi með skýr-
um hætti en fræðimenn hafa með
ýmsum rökum tengt þær við nafn-
greinda einstaklinga frá 13. öld. Sér-
staklega hefur sjónum verið beint að
Sturlungum. Egils saga hefur ver-
ið kennd Snorra Sturlusyni og Lax-
dæla saga Ólafi Þórðarsyni. Sturla
Þórðarson hefur verið orðaður við
Eyrbyggja sögu, Grettis sögu, Njáls
sögu og Gull-Þóris sögu. Rökin
fyrir þessu eru missterk. Í erindinu
verður rætt um þau rök sem beitt
hefur verið á þessu sviði og sérstak-
lega fjallað um um stórtækan sam-
anburð á orðtíðni textanna. Stílmæl-
ing með aðstoð hugbúnaðar er að-
ferð sem hefur sannað gildi sitt við
rannsóknir á höfundum en hún hef-
ur einnig ákveðnar takmarkanir, sér-
staklega þegar henni er beitt á texta
frá miðöldum. Farið verður yfir ný-
legar rannsóknir á sviðinu og reif-
að hvers konar framhaldsrannsóknir
gætu varpað frekara ljósi á málin.“
Haukur Þorgeirsson er rannsókn-
ardósent við Stofnun Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum. Hann
hefur doktorspróf í íslenskri mál-
fræði og MS-próf í tölvunarfræði.
Í rannsóknum sínum hefur Haukur
fengist við forna texta frá málfræði-
legu og textafræðilegu sjónarmiði.
Eftir fyrirlesturinn verður boðið
til kaffiveitinga og umræðna. Að-
gangur er kr. 500.
mm
Sömdu Sturlungar
þetta allt saman?
Dr. Haukur Þorgeirsson.
Skagfirski kammerkórinn
ræðst í stórverkefni í til-
efni afmælis fullveldis á
Íslandi en það er flutn-
ingur á verkinu Magnifi-
cat eftir breska tónskáld-
ið John Rutter. Fyrstu
tónleikarnir verða í Mið-
garði í Skagafirði sunnu-
daginn 21. október kl.
16.00, aðrir tónleikar
verða í Bíóhöllinni Akra-
nesi á Vökudögum 27.
október kl. 16.00 og þeir
þriðju í Langholtskirkju í
Reykjavík 28. október kl. 16.00.
Kórinn hefur fengið til sam-
starfs við sig hljómsveitarstjórann
Guðmund Óla Gunnarsson, Sin-
fóníettu Vesturlands, Kammerkór
Norðurlands og Kalman listfélag
á Akranesi. Einsöngvari í verkinu
er Helga Rós Indriðadóttir sem
jafnframt er söngstjóri Skagfirska
kammerkórsins. Annar hluti tón-
leikanna er helgaður íslenska ein-
söngslaginu en það hefur lifað með
þjóðinni í hundrað ár við píanó-
undirleik. Hér er ætlunin að gera
þeim enn hærra undir höfði en
venjulega en lög eins og Bikarinn
eftir Eyþór Stefánsson, Í fögrum
dal eftir Emil Thoroddsen og Sól-
setursljóð eftir Bjarna Thorsteins-
son hljóma í nýjum útsetning-
um Guðmundar Óla, fyrir hljóm-
sveit, sungin af Kolbeini Ketilssyni
og Helgu Rós. Einnig syngja þau
nokkur lög saman.
Magnificat er marglaga verk
sem frumflutt var 1990. Það er
gleðióður til Maríu Guðsmóður
og sækir Rutter innblástur í há-
tíðahöld suðrænna landa. Segir
hann sjálfur Magnificat vera fullt
af fögnuði, þar sem sólin skíni frá
upphafi til enda. Verkið á því vel
við á 100 ára afmæli fullveldis Ís-
lands, í landi þar sem sólin gengur
aldrei undir á sumrin og vetur eru
oft langir og dimmir. Það á ekki
síður við þar sem áhrif erlendis frá
hafa haft mikil áhrif á mótun sam-
félagsins og á tónlistarlífið síðustu
hundrað árin.
Dagskrá tónleikanna sýnir þró-
unina í verkefnavali almennra kóra
á þeim hundrað árum sem liðin
eru frá fullveldi og hvað Íslending-
ar eru að fást við í dag á 100 ára
afmælinu.
Styrktaraðilar verkefnisins eru:
Fullveldissjóður, Tónlistarsjóður,
Uppbyggingarsjóður Vesturlands
og Uppbyggingarsjóður Norður-
lands vestra.
Miðar fást á midi.is
-fréttatilkynning
Skagfirðingar halda
tónleikana; Í takt við tímann
Guðrún gefur út
nýja ljóðabók
Menntamálastofnun og Samtök ís-
lenskra barna- og unglingabókahöf-
unda (SÍUNG) bjóða upp á nám-
skeið í skapandi skrifum í völdum
skólum á Vesturlandi. Bergrún Íris
Sævarsdóttir, rithöfundur og teikn-
ari, stýrir námskeiðinu sem er ætl-
að til að auka áhuga barna á lestri
bóka og ritun. Allir skólar á Vest-
urlandi sem boðið var upp á nám-
skeiðið hafa þegið boðið.
Bergrún Íris skrifaði metsölu-
bókina „Langelstur í bekknum“
og fleiri vinsælar barnabækur. Í til-
kynningu frá Menntamálastofnun
segir að hún muni taka börnin með
sér í ferðalag um ævintýraheima
sagnagerðar og ritunar. Kafað verð-
ur í hugmyndaleit, persónusköp-
un og hvernig beinagrind að sögu
verður til. Að námskeiðinu loknu
skilur hún eftir vandaðar æfingar
sem kennarar geta nýtt í skólastarf-
inu. Bergrún Íris verður á ferðinni
á Vesturlandi dagana 8.-11. október
og heimsækir þá alla skóla á Vestur-
landi utan Akraness, en verið er að
skipuleggja heimsókn þangað.
Námskeiðið er miðað að börnum
á miðstigi grunnskóla. Ekkert er því
til fyrirstöðu að börn á yngsta og
elsta stigi njóti góðs af námskeið-
inu í fámennari skólum. Mennta-
málastofnun hefur áður boðið upp
á svipuð námskeið í samstarfi við
SÍUNG. Til dæmis var Gunnar
Helgason með fræðslu á Austur-
landi í mars og Þorgrímur Þráins-
son með námskeið í skapandi skrif-
um fyrir skóla á Vestfjörðum í sept-
ember síðastliðnum.
Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir,
læsisráðgjafi hjá menntamálastofn-
un og einn skipuleggjandi nám-
skeiðsins, segir að reynslan af nám-
skeiðunum sé mjög góð. „Kenn-
arar og aðrir sem sinna störfum á
skólabókasöfnum tala um mikla
aukningu á útláni bóka eftir að rit-
höfundar hafa verið í heimsókn.“
Niðurstaðan sé því að námskeið
af þessu tagi eða heimsóknir rit-
höfunda hafi jákvæð áhrif á lestr-
aráhuga nemenda. „En þetta segir
okkur líka hversu mikilvægt það er
að sveitarfélögin búi vel að bóka-
kosti bæði skóla- og almennings-
bókasafna.“
klj
Námskeið fyrir
grunnskólabörn á Vestur-
landi í skapandi skrifum
Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur
og teiknari, heimsækir á næstunni
grunnskólabörn á Vesturlandi.