Skessuhorn


Skessuhorn - 21.11.2018, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 21.11.2018, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 201826 Síðastliðinn sunnu- dag fór fram árleg at- höfn á þyrlupallin- um við Landspítal- ann í Fossvogi þar sem minnst var fórnar- lamba umferðarslysa. Þar komu saman fjöl- margir aðstandendur sem minntust ástvina sinna og fulltrúar ým- issa viðbragðsaðila en þeim var þakkað fyr- ir mikilvægt og óeig- ingjarnt starf. Þetta var í sjöunda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi en hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sam- einuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. mm Árleg minningarathöfn um fórnarlömb samgönguslysa Í ár fögnum við því að liðin eru 100 ár frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Segja má að það hafi verið merkasti áfanginn í sjálfstæðisbar- áttunni, sem þá hafði staðið í nær eina öld. Í október 2016 var samþykkt á Alþingi þingsályktun um hvernig skyldi staðið að hátíðarhöldum í tilefni aldarafmælis fullveldis og í henni kemur fram hlutverk af- mælisnefndar og afmörkun verk- efna hennar. Inntak þingsálykt- unarinnar byggir á sömu forsend- um og sjálfstæðisbaráttan gerði, þ.e. íslenskri menningu og tungu þjóðarinnar. Verkefni afmælis- nefndar Í þingsályktuninni er afmælisnefnd falið að stuðla að heildarútgáfu Ís- lendingasagna, og komu þær út sl. sumar. Einnig var afmælisnefnd falið að gefa út tvö rit um aðdrag- anda sambandslaganna, efni þeirra og framkvæmd, svo og rit um inn- tak fullveldisréttar í samstarfi við Sögufélagið. Bækurnar eru: Hinir útvöldu: Sagan af því þegar Ísland varð sjálf- stætt ríki árið 1918 sem Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur rit- aði og greinasafnið Frjálst og full- valda ríki: Ísland 1918–2018 í rit- stjórn Guðmundar Jónssonar. Eitt stærsta einstaka verkefni afmælisnefndar samkvæmt áður- nefndri þingsályktun var að efna til sýningar í samvinnu við Stofn- un Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á helstu handritum stofn- unarinnar. Sýningin Lífsblómið – fullveldi Íslands í 100 ár var opn- uð 18. júlí sl. í Listasafni Íslands. Hún er samstarfsverkefni Árna- stofnunar, Þjóðskjalasafns Íslands og Listasafns Íslands. Sýningin fjallar um fullveldi Íslands, for- sendur þess og meginþætti í sjálf- stæðisbaráttu og sjálfsmynd Ís- lendinga frá árinu 1918 til dagsins í dag. Þar eru sýnd í fyrsta skipti á Íslandi tvö af helstu miðaldahand- ritum Íslendinga sem fengin eru að láni frá Danmörku: Reykjabók Njálu og Ormsbók Snorra-Eddu. Sýningin stendur til 16. desemb- er nk. Afmælisnefnd var einnig falið að hvetja skóla til þess að beina sjónum að þeim merku tímamót- um sem urðu í íslensku samfélagi með sambandslögunum árið 1918. Á vefsíðu afmælisnefndar er að finna fræðsluefni um þetta merka tímabil í sögu þjóðarinnar sem getur nýst öllum skólastigum og auk þess ýmsar greinar og fróðleik fyrir almenning. Dagskrá afmælisársins Auk þeirra verkefna sem tilgreind eru í þingsályktun heldur afmæl- isnefnd utan um heildardagskrá afmælisársins. Strax í upphafi tók nefndin þá ákvörðun að leita til stofnana, félaga og einstaklinga við mótun dagskrár afmælisárs- ins og stór hluti fjármagns afmæl- isnefndar var nýttur til að styðja við verkefni um land allt. Lögð var áhersla á vönduð og fjölbreytt verkefni sem hafa skírskotun til til- efnisins, hvort sem litið er til for- tíðar, nútíðar eða framtíðar. Hvatt var m.a. til verkefna sem fela í sér nýsköpun, samstarf og almenna þátttöku og lögð áhersla á að ná til barna og ungs fólks. Óhætt er að segja að landsmenn hafi brugð- ist vel við og barst afmælisnefnd fjöldi tillagna. Um 100 tillögur hlutu styrk, en alls eru á dagskrá afmælisársins um 390 viðburðir sem tengjast flestum sviðum sam- félagsins um land allt. Afmælisnefnd hvatti einnig ýmis samtök, fyrirtæki og stofnanir til þátttöku í afmælisárinu og hafa ýmsir aðilar gert afmælisárinu skil, hver á sinn hátt. Jákvæðar undirtektir fólksins í landinu, sem og þátttaka ýmissa stofnana, félagasamtaka og fyrir- tækja í atvinnulífinu, eru forsenda þess að markmiði afmælisnefnd- ar um að fagna öll saman 100 ára fullveldi Íslands sé náð. Fullveldisdagurinn 1. desember Ríkisstjórn Íslands stendur fyrir fullveldishátíð 1. desember í til- efni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Hátíðarhöld- in eru mótuð í samvinnu við ungt fólk og taka mið af hugðarefnum þess og hugmyndum um framtíð fullveldisins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setur hátíðina kl. 13 við Stjórnarráðshúsið að við- stöddum forseta Íslands, Dana- drottningu og forsætisráðherra Dana. Flutt verða stutt ávörp og tónlistaratriði, auk þess sem Ung- mennaráð heimsmarkmiða Sam- einuðu þjóðanna tekur virkan þátt í athöfninni. Að setningu lokinni munu helstu menningarstofnanir þjóð- arinnar bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Um er að ræða sýningar, samræður, spuna, söng og sögur af öllu tagi, sögur sem ungt fólk tekur þátt í að velja, semja og út- setja. Horft verður fram á veginn til næstu 100 ára með sögu síðustu aldar í farteskinu. Að kvöldi fullveldisdagsins verð- ur hátíðarsýningin Íslendingasög- ur – Sinfónísk sagnaskemmtun í Eldborg í Hörpu. Sinfóníuhljóm- sveit Íslands mun, ásamt fjöl- breyttum hópi listamanna, spinna sinfónískan sagnavef ásamt kór- unum Schola cantorum og kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Sigurlagið í kórlagasamkeppni af- mælisnefndar, „Landið mitt” eft- ir Jóhann G. Jóhannsson, verður frumflutt og einnig nýtt verk eftir Báru Gísladóttur. Þá verður flutt ný útgáfa af Ad Genua eftir Önnu Þorvaldsdóttur við texta Guðrún- ar Evu Mínervudóttur. Listrænn stjórnandi er Arnbjörg María Danielsen. Auk hátíðardagskrár ríkisstjórn- arinnar verða fjölbreyttir viðburð- ir um land allt. Fullveldisafmælinu fagnað á Vesturlandi Fjölmargir viðburðir hafa farið fram á Vesturlandi það sem af er afmælisárinu og hafa þeir verið vel sóttir. Á Vesturlandi verður full- veldisdeginum 1. desember fagn- að á fjölbreyttan hátt. Í Grunn- skólanum í Stykkishólmi verður sýning á verkefnum nemenda þar sem borin eru saman árin 1918 og 2018 og í Grunnskóla Grund- arfjarðar verður opið hús og sýn- ing á verkum nemenda. Nem- endafélag Háskólans á Bifröst og Nemendafélag Landbúnaðarhá- skóla Íslands sameinast undir yfir- skriftinni Við erum lykillinn að… Þar verða nemendur Landbúnað- arháskólans með atriði sem tengja landbúnað, framtíð hans og mik- ilvægi, við fullveldið. Nemend- ur á Bifröst munu nálgast full- veldið á annan hátt, því að þau munu fjalla um það í samhengi stjórnmála og lýðræðis og mikil- vægi þess að viðhalda því. Atriðin verða í formi ræðuhalda, sýninga á afrakstri vinnu innan skólanna og myndasýninga. Viðburðurinn verður í Landbúnaðarháskóla Ís- lands á Hvanneyri. Í Byggðasafn- inu í Görðum á Akranesi verð- ur hátíðarsýning á heimildamynd um útileiki barna 1918-2018 sem Byggðasafnið hefur unnið að í samvinnu við kvikmyndagerðar- manninn Heiðar Mar. Í Reyk- holti í Borgarfirði verða hátíðar- tónleikar þar sem fram koma Trio Danois, sem eru Jónína Erna Arn- ardóttir, Morten Fagerli og Per- nille Kaarslev ásamt Bergþóri Pálssyni söngvara. Einkunnarár afmælis- ársins eru: Fögnum saman 100 ára fullveldi! Það er von afmælisnefndar að sem flestir njóti afmælisársins og eftir sitji góðar minningar og aukin vit- und um þetta mikilvæga tímabil í sögu þjóðarinnar, sögu sem mark- ast af sjálfstæðisbaráttu og fram- förum. Afmælisnefnd færir öllum þeim sem lagt hafa sitt af mörkum til að gera afmælisárið eftirminnilegt bestu þakkir fyrir þeirra framlag og ánægjulegt samstarf. Fjölbreytt dagskrá fullveldis- dagsins er aðgengileg á vefsíðunni www.fullveldi1918.is og á Facebo- ok-síðunni Fullveldi Íslands. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir. Höf. er framkvæmdastjóri afmæl- isnefndar aldarafmælis fullveldis Íslands. Pennagrein Fögunum saman 100 ára fullveldi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.