Skessuhorn


Skessuhorn - 12.12.2018, Síða 14

Skessuhorn - 12.12.2018, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMbER 201814 Svefntími unglinga styttist að meðal- tali um nærri hálfa klukkustund milli 15 og 17 ára aldurs og á sama tíma dregur töluvert úr hreyfingu á virkum dögum hjá þessum hópi. Þetta sýna nýjar niðurstöður rannsóknahóps í íþrótta- og heilsufræði við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands. Rann- sóknahópurinn hefur nú í yfir áratug fylgst með heilsu, svefni og andlegri líðan stórs hóps íslenskra ungmenna. Rannsóknin sýnir einnig að einungis um fimmtungur 15 ára unglinga sem tók þátt í rannsókninni náði átta tíma viðmiðunarsvefni á nóttu að meðal- tali og þá sofa framhaldsskólanemar í fjölbrautakerfi að jafnaði lengur en nemendur í bekkjarkerfi. Langtímarannsókn á heilsuhegðun Rannsóknin sem um ræðir nefnist Heilsuhegðun ungra Íslendinga og er framhald á rannsókninni Lífsstíll 7 og 9 ára íslenskra barna – íhlutunar- rannsókn til bættrar heilsu sem fram fór á árunum 2006 til 2008. Alls hafa um 500 nemendur, sem fæddir eru árið 1999, tekið þátt í rannsóknunum tveimur. Rannsóknarhópurinn hefur skoðað stöðu og langtímabreytingar á holdarfari, hreyfingu, svefni, þreki, andlegum þáttum og lifnaðarháttum íslenskra ungmenna, fyrst við 7 og 9 ára aldur og síðan við 15 ára og 17 ára aldur hjá þátttökuhópnum. Undanfarin misseri hefur rann- sóknarhópurinn lagt sérstaka áherslu á að rannsaka m.a. breytingar á svefn- venjum og hreyfivirkni ungmenna frá 15 ára til 17 ára aldurs en þess má geta að þátttakendur í rannsókninni eru í fyrsta árgangnum sem kom inn í framhaldsskólana eftir að stytting á námstíma til stúdentsprófs tók gildi. Fimmtungur fær nægan svefn Niðurstöður hópsins leiða m.a. í ljós að um helmingur 15 ára ungmenna sem tók þátt í rannsókninni nær við- miðum um æskilega hreyfingu á viku sem eru sex klukkustundir. Enn frem- ur sýna niðurstöðurnar að 15 ára ís- lensk ungmenni fara seint að sofa og sofa ekki nema tæplega sex og hálf- an klukkutíma á nóttu að meðaltali. Aðeins 23% stúlkna og 20% drengja náðu átta klukkustunda viðmiðunar- svefni yfir vikuna. Tveimur árum síðar, þegar þessi hópur unglinga er kominn í fram- haldsskóla, hefur ýmislegt breyst. Til að mynda hefur svefnlengd styst að meðaltali um 24 mínútur á nóttu, þ.e. milli 15 og 17 ára aldurs. Sautján ára unglingar fara enn fremur almennt seinna að sofa á skóladögum en 15 ára en hins vegar er ekki marktækur munur á því hvenær unglingahóparnir fara á fætur. Aftur á móti eykst breyti- leikinn í svefni unginga töluvert milli mælinganna tveggja. Þátttakendur í rannsókninni fóru almennt að sofa í kringum miðnætti við fimmtán ára aldur en þegar þeir eru orðnir sautj- án ára virðist meiri breytileiki í þeim tíma og sjá má í gögnunum hóp nem- enda sem fara jafnvel að sofa klukkan 3 eða 4 að nóttu á skóladegi. Dregur úr hreyfingu og enn minni svefn Í rannsókninni hafa einnig verið kannaðar breytingar á svefntíma með tilliti til vals á framhaldsskóla og nið- urstöður sýna að nemendur í fjöl- brautakerfi sofa að jafnaði lengur á skóladögum en nemendur í bekkja- kerfi sem aftur fara fyrr á fætur. Enn fremur leiða niðurstöðurnar í ljós að hreyfing hjá hópnum minnkar að meðaltali um 13% milli mælinganna tveggja en athyglisvert er að hún dregst saman um nærri fimmtung á virkum dögum en ekkert um helgar. Þátttaka í formlegu íþróttastarfi og heilsurækt á eigin vegum dregst enn fremur saman um 25% milli 15 og 17 ára aldurs en um helmingur 17 ára ungmenna segist stunda íþróttir eða hreyfa sig reglulega. Stór hópur fræðimanna og nema hefur komið að rannsóknunum, bæði í Háskóla Íslands og erlendis. Í rannsóknarhópnum eru alls fimm vísindamenn og fjórir doktorsnem- ar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands auk tveggja samstarfsmanna þeirra við National Insititutes of Health í Washington í bandaríkj- unum. Þá hafa átta nemendur lokið meistaraprófi frá Háskólanum, þar sem stuðst er við gögn úr rannsókn- unum, og fjórir til viðbótar vinna nú með þau í meistaraverkefni sínu. mm Svefntími styttist og hreyfing minnkar hjá ungmennum Lokaverkefnavika Fjölbrautaskóla Snæfellinga fór fram dagana 3. - 7. desember. Nemendur í fimm áföng- um við skólann sameinuðust um að vinna að svefnrannsókn. Rann- sóknin fór þannig fram að nemend- ur söfnuðu gögnum um svefnvenj- ur sínar og skoðuðu meðal annars klukkan hvað þeir fóru að sofa, hve- nær þeir vöknuðu, hvort þeir fengu sér orkudrykk/kaffibolla og ef svo væri, þá hversu marga. Kannað var hversu þreytt þau voru þegar þau mættu í skólann og hvort þau legðu sig yfir daginn. Nemendur söfnuðu upplýsingum um sig í viku og tóku loks próf sem mældi viðbrögð þeirra og skammtímaminni. Áhugavert var að rýna í niður- stöður rannsóknarinnar. Saman- burður kynjanna var áhugaverður en fram kom að stelpur sofa að jafnaði 14 mínútum lengur á dag en strák- ar. Útskýringin á því gæti mögulega verið sú að karlar drekka fleiri orku- drykki en konur. Þeir drekka um 0,7 orkudrykki á dag að jafnaði, en kon- ur aðeins 0,5. Niðurstöður sýndu að nemendur sem sofa minna en sex tíma á dag eru líklegri til þess að fá sér orkudrykk yfir daginn en þeir sem sofa meira. Einnig var áhuga- vert að sjá að stelpum líður almennt betur en strákum á morgnanna. Þegar það kom að skammtíma- minnis- og viðbragðskönnun voru gerðar nokkrar tilgátur um hvort kynið stæði sig betur í könnunun- um. Ein tilgátan var sú að stelpur hefðu betri skammtímaminni, en í ljós kom að strákar höfðu betur þar. Þessi könnun var framkvæmd þann- ig að hverjum nemanda voru gefn- ar 30 sekúndur til þess að leggja á minnið 12 orð og að tímanum liðn- um reyndu þeir að muna sem flest þeirra. Strákar náðu að meðaltali 7,8 orðum en stelpur 7,6 orðum. Einnig var kannað hvort nemend- urnir sem sofa með símann sinn við rúmið nái lengri svefni en þeir sem að gera það ekki. Niðurstöðurn- ar voru þær að nemendur sem sofa með símann við rúmið ná að meðal- tali 7,57 tíma svefni á sólarhring en þeir sem gera það ekki sofa að með- altali 7,71 tíma. Þetta rannsóknarverkefni þótti takast vel og ríkti almenn ánægja með það innan skólans. Nemend- ur voru ánægðir með að taka þátt í verkefni sem sýndu fram á raun- verulegur niðurstöður og má segja að rannsóknin hafi gert nemendur meðvitaðri um svefn og svefnvenj- ur sínar. Fyrir hönd nemenda FSN: Karen Dís, Ísabella Una, Elín Dögg, Elmar Elí og Viktor Brimir Nemendur í FSN könnuðu eigin svefnvenjur Lilja Rannveig tók sæti á þingi ALÞINGI: Lilja Rannveig Sig- urgeirsdóttir frá bakkakoti í Stafholtstungum tók á föstu- daginn sæti á Alþingi í fjarveru Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra. Lilja Rann- veig skipaði fjórða sæti á fram- boðslista Framsóknarflokksins í NV kjördæmi við síðustu kosn- ingar, en 1. varamaður er Stef- án Vagn Stefánsson á Sauðár- króki. Lilja Rannveig er 22. ára háskólanemi og formaður Sam- bands ungra Framsóknarmanna (SUF). -mm Ríkið skaðabóta- skylt vegna út- hlutunar makríl- kvóta LANDIÐ: Hæstiréttur Ís- lands kvað í síðustu viku upp tvo dóma í málum Hugins ehf. og Ísfélags Vestmannaeyja hf. gegn íslenska ríkinu. Í dómun- um kemst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið sé skaðabótaskylt vegna stjórn- unar veiða á makrílstofninum á árunum 2011-2014. Hæsti- réttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði sýknað íslenska ríkið. Með dómunum var viðurkennt að skylt hafi verið árið 2011 að út- hluta aflamarki til veiðanna og að veiðireynsla hafi talist sam- felld á þeim tíma. Með þessu var álitið að fyrirkomulag veiðileyfa samkvæmt árlegum reglugerð- um sjávarútvegsráðherra frá 2010-2013 um stjórn veiðanna, sem fólu í sér úthlutun til fleiri aðila en þeirra einna sem verið höfðu að veiðunum 2007-2010, hafi ekki samrýmst lögum. Þess í stað var á sínum tíma ráðstafað jafnhliða á aðra flokka skipa til að auka fjölbreytni við veiðarn- ar. Ráðuneytið mun nú fara yfir forsendur dómsins með ríkis- lögmanni og í kjölfarið ákvarða næstu skref. Þá er óhjákvæmi- legt að jafnhliða verði tekið til athugunar breytt skipulag stjórnar makrílveiða, að mati ráðuneytisfólks. Gera verður ráð fyrir því að fyrrnefnd fyr- irtæki og væntanlega fleiri sæki fjárkröfur sem byggja á niður- stöðu dómsins. -mm Stöðugar horfur RÍKISKASSINN: Matsfyrir- tækið Fitch staðfesti á föstudag- inn óbreytta lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fyrir langtíma- skuldir í erlendum gjaldmiðli sem A með stöðugum horf- um. „Samkvæmt matsfyrirtæk- inu endurspeglar þessi einkunn annars vegar háar þjóðartekjur, sterkar stofnanir, góð lífskjör og gott viðskiptaumhverfi og hins vegar að hagkerfið reiðir sig í miklum mæli á hrávöruútflutn- ing og er næmt fyrir ytri áföll- um auk fyrri reynslu af efna- hags- og fjármálasveiflum,“ segir í tilkynningu frá fjármála- ráðuneytinu. -mm Tilkynna meint brot á velferð dýra HVALFJ: Náttúruverndar- samtök Íslands sendu í gær Matvælastofnun formlega til- kynningu um brot gegn lögum um velferð dýra nr. 55/2013 við hvalveiðar. „Tilkynning- in snýr að langreyðaveiðum Hvals hf. veiðitímabilið 2018 og hvernig aðgerðir félags- ins virðast fela í sér brot gegn dýravelferðarlögum og öðr- um atriðum sem heyra und- ir valdsvið Matvælastofnunar. Sérstaklega er fjallað um þján- ingu dýranna vegna núver- andi veiðiaðferða, skort á eftir- liti með skutulbyssum og brot gegn lágmarkskröfum um heil- næmar vinnsluaðferðir,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. „Almennur skortur virðist vera á rannsóknum og eftirliti með veiðum á langreyðum hérlend- is, bæði er varðar almenn at- riði og sömuleiðis þau álitamál um lögmæti sem stjórnvöldum hefur orðið kunnugt um. Þyk- ir því nauðsynlegt að Matvæla- stofnun taki málið til skoðun- ar, einnig í ljósi þess að póli- tísk ákvörðunartaka um fram- tíðar hvalveiða hérlendis er yf- irstandandi.“ -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 1.-7. desember Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 23.594 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 14.290 kg í þremur róðrum. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 59.439 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH: 31.468 kg í þremur lönd- unum. Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 400.769 kg. Mestur afli: Steinunn SF: 126.044 kg í tveimur löndun- um. Ólafsvík: 11 bátar. Heildarlöndun: 266.063 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 88.945 kg í einum róðri. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 303.563 kg. Mestur afli: Saxhamar SH: 61.176 kg í þremur löndun- um. Stykkishólmur: 7 bátar. Heildarlöndun: 101.830 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 37.415 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - ÓLA: 88.945 kg. 7. desember. 2. Björgvin EA - GRU: 86.713 kg. 6. desemer. 3. Steinunn SF - GRU: 64.381 kg. 6. desember. 4. Steinunn SF - GRU: 61.663 kg. 4. desember. 5. Hringur SF - GRU: 60.315 kg. 5. desember. -kgk

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.