Skessuhorn


Skessuhorn - 12.12.2018, Síða 21

Skessuhorn - 12.12.2018, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMbER 2018 21 ingur fróðlegt erindi. Sagði hún að náttúruvernd og búskapur gæti vel farið saman og væri í raun skyn- samlegast að nýta land til búskap- ar en þó ætíð með skynsamlega landnýtingu í huga. „Mismunandi landnýting samhliða góðri um- gengni eigenda og landvörslufólks tryggir ákveðna verndun lands,“ sagði Ragnhildur og vísaði þar m.a. til búskapar á Hvanneyri og á nágrannajörðum því til staðfest- ingar. Þar er friðland, en engu að síður rekið stórt kúabú og nokkur sauðfjárbú í nágrenninu. Á svæðið koma þúsundir gesta á hverju ári en allt spilar þetta saman í góðu samræmi. „Gleymum því ekki að erlendir ferðamenn, aðrir gestir og íbúar sækjast eftir staðbundinni þekkingu heimafólks um hvernig landið er nytjað og að því sé hlúð. Gestir vilja af heimafólki fræð- ast um nýtingu landsins og hvern- ig hún fer svo hæglega saman við landvernd, náttúruvernd, friðland fugla og Ramsarsáttmálann svo dæmi séu tekin,“ benti Ragnhild- ur á. Hún sagði að bændur og þeir sem tala fyrir landvernd séu engan veginn andstæðar fylkingar og því fagnaði hún þessu samkomulagi sem umhverfisráðherra og bænda- samtökin voru að skrifa undir. mm Hákon Svavarsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali Granaskjól 18 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ 17-18 Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja 75,6 fm íbúð í kjallara lítið niðurgrafin, í þríbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Vestur- bænum. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Eldhús með nýlegri inn- réttingu. Baðherbergi með baðkari, flísar á gólfi. Stofan er björt og rúmgóð. Í sameign á hæðinni er þvottahús. Búið er að endur- nýja m.a. Járn á þaki,gólfefni,skolplagnir myndaðar 2005, Rafmagn dregið í íbúð, tenglum og rofum skipt út. Hús múrviðgert og málað 2013. Gluggar og gler yfirfarin. Ásett verð 29,9 millj. Hákon Svavarsson tekur á móti ykkur í dag milli kl 17 og 18. OPI Ð H ÚS Akralundur - Akranesi Falleg og vel staðsett 185 fm raðhús í sex raðhúsalengju. Öll húsin eru á einni hæð með bílskúr. Húsin eru timbur- hús, klætt að utan með Cembrit flísum. Lóð grófjöfnuð. Að innan rúmlega fokheld. Nánari uppl. í skilalýsingu. Gert er ráð fyrir 4 svefnherbergjum, tveimur baðher- bergjum. Rúmgóðri stofu og eldhúsi í alrými. Verð frá 43,7 millj. Allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898-9396 eða hakon@valfell.is Kirkjubraut 2, 300 Akranesi Akranesviti 23.-26. desember Lokað 30. desember - 1. janúar Lokað Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar 24.-26. desember. Lokað 31. desember og 1. janúar. Lokað Bókasafn Akraness 24.-26. desember. Lokað 30. desember - 1. janúar Lokað Íþróttamiðstöðin og Jaðarsbakkalaug 23. desember 09:00-18:00 24. desember 08:00-11:00 25.-26. desember Lokað 30. desember 09:00-18:00 31. desember 08:00-11:00 1. janúar Lokað Íþróttahús Vesturgötu 15. desember 11:30-14:30 16. desember 12:00-15:00 17.-21. desember 07:00-22:00 22. desember 07:00-18:00 23.-26. desember Lokað 27.-29. desember 07:00-19:00 30. desember - 1. janúar Lokað 2. janúar 07:00-19:00 Bjarnalaug Lokað frá 20. desember til og með 2. janúar 2018. SK ES SU H O R N 2 01 8 Akraneskaupstaður yfir jól og áramót Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga: Síðastliðinn fimmtudag undirrituðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sindri Sigurgeirsson, formaður bændasamtaka Íslands, yfirlýsingu um að vinna saman að málefnum landbúnaðar og náttúruverndar. Fram kom hjá ráðherra að þessa yf- irlýsingu megi rekja til átaks í nátt- úruvernd sem byggir á sáttmála rík- isstjórnarinnar. Samstarfinu er ætl- að að ná til verkefna í náttúruvernd á jörðum bænda. Mögulegar að- gerðir verða skilgreindar að lokinni greiningarvinnu sem verður fyrsta skref verkefnisins. bændasamtökin munu fela Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins að framkvæma grein- ingarvinnuna og skal hún taka eitt ár. Leitað verður fyrirmyndar er- lendis frá um sambærileg verkefni og hugað sérstaklega að aðgerðum á svæðum og gagnvart tegundum sem þarf að vernda ásamt endur- heimt og uppbyggingu vistkerfa. Fram kom við undirritun sam- komulagsins að bændasamtökin og ráðuneytið hafa áður átt í sam- starfi um loftslagsmál og landbún- að með góðum árangri. Í yfirlýsing- unni kemur fram að mikil tækifæri eru fólgin í góðu samstarfi bænda og stjórnvalda á sviði náttúru- verndar. bent er á að bændur á Ís- landi eru vörslumenn lands og stór hluti þess í þeirra umsjón. bænd- ur geta sinnt þessu vörsluhlutverki með sjálfbærri nýtingu lands svo þeir geti skilað því í jafngóðu eða betra ástandi en þeir tóku við því. Dæmi um þetta eru samstarfsverk- efni bænda og stjórnvalda við upp- græðslu lands og ræktun skóga. Nýsköpun í náttúruvernd „Ég fagna auknu samstarfi við bændur en með þessari yfirlýsingu förum við saman í nýsköpun í nátt- úruvernd. Samstarfið mun leiða af sér tillögur um hvernig bænd- ur geti tekið meiri þátt í náttúru- verndarstarfi. Það má sjá fyrir sér að það gæti tekið til verndarað- gerða vegna ákveðinna tegunda, endurheimt vistkerfa, t.d. votlend- is og umsjón með landi sem þarfn- ast verndar. Að undirrita samstarfs- yfirlýsinguna á Hvanneyri var síð- an sérstakt ánægjuefni enda er til fyrirmyndar hvernig þar og á nær- liggjandi jörðum hefur tekist að samþætta blómlegan landbúnað við mikilvægar aðgerðir til vernd- ar náttúrunni,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Ekki gengið á rétt komandi kynslóða „Við bændur erum ánægðir með samstarfsyfirlýsinguna og hún lof- ar góðu. bændur eru vörslumenn lands og vita að þeir hafa skyldum að gegna í náttúruvernd. Nýtingin þarf að vera sjálfbær og ekki ganga á rétt komandi kynslóða til að nýta og njóta lands. Það hafa bænd- ur gert meðal annars með skyn- samlegri landnýtingu, skógrækt og uppgræðslu þar sem þörf er á. Með samstarfsyfirlýsingunni stefnum við að því að auka enn frekar samstarf með stjórnvöldum á sviði umhverf- ismála og það er gleðiefni,“ segir Sindri Sigurgeirsson formaður bÍ. Landvernd og búskapur fer saman Við undirritun samkomulagsins flutti Ragnhildur Helga Jónsdótt- ir bóndi í Ausu og umhverfisfræð- Samstarfsyfirlýsing undirrituð um landbúnað og náttúruvernd Ragnhildur Helga Jónsdóttir bóndi og umhverfisfræðingur flutti erindi um hvernig búskapur og landvernd fara saman. Ljósmynd úr heimahögum úr safni Skessuhorns. Samkomulagið handsalað. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson formaður BÍ og Guð- mundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.