Skessuhorn


Skessuhorn - 12.12.2018, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 12.12.2018, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMbER 2018 15 www.akraneskirkja.is AKRANESKIRKJA Fimmtudagur 13. desember Bænastund kl. 12.15 Súpa í Vinaminni eftir stundina. Opið hús kl. 13.30 - Jólasamvera - Bingó og hátíðarkaffi. - Gestur er Björgvin Franz Gíslason leikari og söngvari. Hann syngur og segir sögur frá uppsetningunni á leiksýningunni Ellý. Verið öll velkomin. Björgvin Franz Gíslason Í leikskólanum Andabæ á Hvann- eyri er skiptifatamarkaður í gangi. Markaðurinn er hluti af græn- fánaverkefni skólans. Foreldrar og starfsfólk hafa safnað saman fötum og komið þeim til starfsfólks leik- skólans. „Þetta er gott dæmi um samfélagsverkefni sem gagnast al- menningi í kringum okkur,“ seg- ir Ástríður Guðmundsdóttir leik- skólastjóri. „Flest barnafólk kann- ast við það hvernig börn vaxa upp úr fötunum sínum, sem jafnvel er nýbúið að kaupa. Skiptifatamark- aðurinn er einnig umhverfisvænn og eykur nýtingu verðmæta. For- eldrar geta, óháð því hvort þeir komu með föt í upphafi, komið og fengið föt á börn sín. Mikil ánægja hefur verið þessa tvo daga sem skiptifatamarkaðurinn hefur stað- ið og ætlum við því að hafa hann áfram næstu daga. Markaðinum var startað með aðventukaffi for- eldra og myndaðist góð stemning í upphafi aðventu,“ segir Ástríður. mm Skiptifatamarkaður fær góðar viðtökur í Andabæ Ævintýraheimur jólanna mun ráða ríkjum í Garðalundi á Akranesi næstkomandi laugardagskvöld, frá klukkan 19:00 til 21:00. Þar geta börn og fullorðnir komið saman, gengið um skógræktina og hitt fyr- ir alls kyns ævintýraverur sem verða á ferðinni. Mæðgurnar Margrét blöndal og Sara Hjördís blöndal skipuleggja viðburðinn ásamt Hlé- dísi Sveinsdóttur. „Undirbúningurinn hefur gengið vel og það er gríðarleg eftirvænting í hópnum. Veðurspáin fyrir kvöldið lofar góðu, útlit er fyrir þurrt og stillt veður og þetta er allt að smella saman,“ segja þær Margrét, Sara og Hlédís í samtali við Skessuhorn. En hvernig viðburður er Jólaævintýrið í Garðalundi? „Þetta snýst um að stelast út eftir kvöldmat og uppli- fa ævintýri í skóginum. Gleðin nær síðan hápunkti þegar krakkarnir hitta jólasveininn og alls kyns verur aðrar; risa, álfa, tröll og jóla- ketti,“ segir Margrét. „Við höfum talað um að viðburðurinn sé fyrir alla sem vita að jólasveinninn er til. En Sara orðaði það eiginlega ennþá betur um daginn þegar hún sagði að Jólaævintýrið væri fyrir alla sem hafa einhvern tímann átt skó úti í glugga,“ segir Margrét og lítur á dóttur sína. „Út um alla skógrækt verður eitthvað óvænt og gleðilegt á ferð. Við erum búnar að staðsetja allt og ákveða eins og hægt er hvað hver á að gera, ramminn utan um ævintýrið er alveg klár,“ segja þær. „En það er ekkert eiginlegt handrit með nákvæmum fyrirmælum. Þetta er nokkurs konar gagnvirkt úti- leikhús,“ segir Sara. „Síðan er það undir hverjum og einum fullorð- num komið að matreiða ævintýrið ofan í börnin. Svara þeim spurning- um sem þau kunna að hafa og leyfa sér að taka virkan þátt í upplifuninni með börnunum,“ segir Hlédís. Opið öllum, endur- gjaldslaust Í upphafi viðburðarins verður kveikt á ljósunum hans Gutta, til minningar um Guðbjart Hannes- son og munu þau loga út jólahátíð- ina. barnabarn Gutta, Dagur Sölvi Ólafsson, tendrar ljósin og þar með telst Jólaævintýrið í Garðalundi haf- ið. Að því búnu fara börn og full- orðnir á ferðalag um ævintýraheim jólanna. Margrét, Sara og Hlédís mæla með því að fólk taki með sér vasaljós eða höfuðljós til að lýsa sér veginn en hafi símana ofan í vasa. Fólk er einnig hvatt til að klæða sig vel, bæði börn og fullorðnir, því desemberkvöld eru sjaldnast þau hlýjustu. Á meðan gestir ganga um svæðið geta börn og foreldrar kom- ið smá yl í kroppinn með því að fá sér rjúkandi heitt kakó sem öllum stendur til boða á Jólaævintýrinu. „Það eina sem hver og einn þarf að gera er að koma með sinn bolla, því við erum umhverfisvænar og verð- um því ekki með plastglös á svæð- inu,“ segir Sara. Aðgangur að viðburðinum og öllu sem honum fylgir er öllum opinn og án endurgjalds. „Okkur finnst mikil- vægt að þessi viðburður standi öll- um fjölskyldum á Akranesi til boða,“ segir Hlédís. „Til þess að svo megi verða höfum við notið stuðnings fyrirtækja og einstaklinga hér í bæ. Til dæmis mun bifreiðastöð ÞÞÞ útvega sviðið, flottasta svið í heimi og Hlynur Sigurdórsson rafvirki sér um allt sem tengist rafmag- ninu. Húsasmiðjan leggur okkur líka lið sem og Íslandsbanki sem hefur staðið með okkur frá up- phafi. Og svo ætlar Skaginn 3X að bjóða öllum upp á heitt kakó. Það væri ekki hægt að gera þetta án stuðnings allra sem hafa komið að Jólaævintýrinu með einum eða öðrum hætti. Fyrir það erum við óendanlega þakklátar,“ segja Mar- grét, Sara og Hlédís að endingu. Jólaævintýrið í Garðalundi hefst sem fyrr segir kl. 19:00 næstko- mandi laugardagskvöld, 15. desem- ber. Innanbæjarstrætóinn mun aka frá Akratorgi kl 18:40 og koma við í Stillholti á leiðinni í skógræktina. Þeim sem ætla að mæta á eigin bíl er bent á að leggja við golfvöllinn og fara varlega þar sem búast má við því að mjög mörgum gangandi vegfarendum í nágrenni skógræk- tarinnar þetta kvöld. kgk Jólaævintýri framundan í Garðalundi „Fyrir alla sem hafa einhvern tímann átt skó úti í glugga“ Skipuleggjendur Jólaævintýrisins í Garðalundi. F.v. Hlédís Sveinsdóttir, Margrét Blöndal og Sara Hjördís Blöndal. Ljósm. úr safni. Ljósin hans Gutta, til minningar um Guðbjart Hannesson, verða tendruð við upphaf ævintýrisins og munu lýsa upp Garðalund út jólahátíðina. Ljósm. úr safni/ jho. Krakkarnir mega búast við að hitta jólaköttinn, ásamt alls kyns öðrum verum. Ljósm. úr safni/jho.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.