Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 8

Fréttablaðið - 16.11.2019, Side 8
Börn og samgöngur Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir málþinginu „Börn og samgöngur“ í Sveinatungu á Garðatorgi mánudaginn 18. nóvember frá 12:30 til 16:30. Boðið verður upp á veitingar frá kl. 12:00. Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Málþingið er öllum opið en skráning er á vef Stjórnarráðsins. Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri. Dagskrá: 12:30 – Málþing sett • Ávörp Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs • Umferðaröryggi — okkar mál! Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur • Hvernig við sjáum umferðaröryggið Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu • Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði • „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn. Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni • Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé 14:20 – Kaffihlé • Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur • Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps • Öryggi barna í Reykjavík Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon • Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé • Gamanmál 16:30 – Málþingi lýkur Benni.isReykjanesbærNjarðarbraut 9Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 TRYGGÐU ÞÉR: • Enga vexti • Engin lántökugjöld • Hraðari eignamyndun • Lægri mánaðargreiðslur NOTAÐIR BÍLARNÚLLVEXTIR Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Núll prósent vextir, allt að 80% ármögnun í allt að 24 mánuði af völdum notuðum bílum. Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl. ENN MEIRA ÚRVAL Á NÝJU BÍLAPLANI KRÓKHÁLSI 9 OG Á BENNI.IS SSANGYONG KORANDO Skráður: 2011 / Dísel Sjálfskiptur / 84.000 km. VERÐ: 1.190.000 KR. 720064 HONDA CIVIC Skráður: 2012 / Bensín Sjálfskiptur / 123.000 km. VERÐ: 990.000 KR. 740429 FORD FIESTA TREND Skráður: 2012 / Bensín Sjálfskiptur / 112.000 km. VERÐ: 799.000 KR. 445339 CHEVROLET CRUZE Skráður: 2012 / Dísel Beinskiptur / 106.000 km. VERÐ: 890.000 KR. 340052 CHEVROLET TRAX Skráður: 2014 / Bensín Beinskiptur / 70.000 km. VERÐ: 990.000 KR. 103641 STJÓRNMÁL „Okkar hlutverk hér er að heimsækja kjörstaði og fylgjast með kosningunum, að allt sé eins og það eigi að vera,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, sem er staddur við kosningaeftirlit í Hvíta-Rússlandi. Kolbeinn er þar á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu en þingkosningar fara fram í landinu á morgun. Þá verður kosið um 110 sæti í neðri deild þingsins en síðustu kosningar fóru fram 2016. „Flokkakerfið hérna er öðruvísi en við eigum að venjast heima á Íslandi en ég er farinn að þekkja stóru lín- urnar. Þetta eru einmenningskjör- dæmi og mismargir frambjóðendur í hverju. Þeir eru þrír í því kjördæmi sem ég sinni eftirliti við.“ Hann segir magnaða upplifun að koma til Hvíta-Rússlands. „Sérstak- lega til þessara minni bæja hvar ég er við eftirlit. Höfuðborgin Minsk er risastór borg, blanda af nokkur hundruð ára byggingum, stórkarla- legum húsum frá sovéttímanum og nútímalegum húsum með fjölda ljósaskilta.“ Sveitin sé yndisleg, fólkið vinalegt og umhverfið fallegt. „Að einhverju leyti er þetta eins og að fara aftur í tímann og þar sem ég er gömul sál hentar það mér vel,“ segir Kolbeinn að lokum. – sar Hvíta-Rússland mögnuð upplifun Kolbeinn Óttarsson Proppé. SAMGÖNGUR Stjórn Isavia hefur samþykkt verulega breytt skipu- lag. Stofnuð verða sérstök dóttur- félög utan um ólíka starfsemi Isavia, og verður þá samkeppnisrekstur aðskilinn frá öðrum þáttum fyrir- tækisins. Breytingarnar munu taka gildi um áramót. Þetta var kynnt innan fyrirtækisins í gær. Isavia, sem er opinbert hlutafélag, rekur net flugvalla á Íslandi og flug- leiðsöguþjónustu á einu stærsta f lugstjórnarsvæði heims. Starfs- menn telja nú um 1.300 manns. Flugvallasvið og flugleiðsögusvið verða gerð að sérstökum dóttur- félögum. Af núverandi dótturfélög- um Isavia mun Fríhöfnin haldast óbreytt, fyrirtækið Domavia verður félag um innanlandsflugvelli lands- ins. Fyrirtækin Tern, sem þróar og framleiðir hugbúnað fyrir f lugleið- söguþjónustu, og grænlenska flug- leiðsöguþjónustufyrirtækið Suluk verða færð undir f lugleiðsögu. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir að með þessu sé verið að tengja betur saman þarfir við- skiptavina og framtíðarþróun Kef lavíkurf lugvallar. Verið sé að aðskilja ólíkar rekstrareiningar félagsins. „Í fyrsta lagi starfsemi sem rekin er á ríkisframlögum, í öðru lagi þá þætti sem byggja á endurheimt útlagðs kostnaðar og að lokum þá starfsemi sem er í harðri alþjóðlegri samkeppni,“ segir Svein- björn. „Hver hluti þessarar ólíku starf- semi mun fá sitt eigið vægi, stjórn og tækifæri til innleiðingar mis- munandi áherslna.“ Keflavíkurflugvöllur mun verða móðurfélag Isavia. „Þar liggja stærstu viðskiptatækifærin og mesta rekstraráhættan. Það er mikilvægt að þræðir stjórnar Isavia liggi beint inn til Kef lavíkurf lug- vallar.“ Sveinbjörn segir að ekki sé þörf á jafn umfangsmikilli umsýslu stoðþjónustu hjá flugvallarsviðinu og á f lugleiðsögusviðinu. Stoðsvið félagsins verða eftir hjá móðurfélag- inu. Þá verður stofnað nýtt stoðsvið stafrænnar þróunar og upplýsinga- tækni. david@frettabladid.is Samkeppni skilin frá öðrum þáttum Stofnuð verða dótturfélög um ólíka starfsemi Isavia og samkeppni skilin frá öðrum þáttum fyrirtækis- ins. Domavia verður félag um innanlandsflugvelli. Keflavíkurflugvöllur mun verða móðurfélag Isavia. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 0 -0 1 D 4 2 4 4 0 -0 0 9 8 2 4 3 F -F F 5 C 2 4 3 F -F E 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.