Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 76

Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 76
Skolli teiknar Flestum þykir nógu erfitt að teikna með augun opin. Hvernig skyldi þá ganga þegar bundið er fyrir augun? Þessi leikur getur verið skemmtilegur fyrir marga sem skiptast á að teikna og hinir fylgj- ast með. Handbrögðin geta orðið ansi forvitnileg hjá listamanninum þegar skyndilega vantar sjónina. Nauðsynlegt er að hafa stórt blað að teikna á því ekkert má fara út fyrir. Albest er krítartafla á vegg. Einn er stjórnandi. Hann bindur fyrir augun á einum þátttakanda í einu og leggur fyrir hann hvað hann hann eigi að teikna. Það getur verið hús með dyrum og gluggum, reiðhjól, kisa, bókahilla, stórhyrnt naut, róla, ávaxtaskál – hvað sem er. Leikurinn Söngleikurinn og námsefnið Ævin- týri Sædísar skjaldböku er nýlega kominn út hjá Menntamálastofnun. Ævintýrið gerist í undirdjúpum sjávar. Á vefnum mms.is hafa allir aðgang að því endurgjaldslaust. Hægt er að velja „útgefið efni“ og slá nafn söngleiksins þar inn. Barnakór Fossvogsskóla og ellefu einsöngvarar úr Fossvogs- og Snæ- landsskóla syngja lögin en höfund- ur texta og tónlistar er Elín Hall- dórsdóttir tónlistarkennari. Hún lýsir hér efninu í nokkrum orðum. Sagan byrjar á því að Nonni trúð- fiskur og Sædís skjaldbaka eru að leika sér í feluleik niðri í fjöru og Sædís smýgur inn í gróður. Þar festist plasthringur um hálsinn á henni og annar um fótinn. Þá hætta þau í feluleiknum og mikil barátta hefst við að losna við hringina. Þar koma margir við sögu, f lestir góðir en aðrir ekki. Hvert er hættulegasta dýrið í sjónum? Það er hákarlinn. Allir ótt- ast Harald hákarl. En hvert er hjálpfúsast? Nonni trúðfiskur sem er vinur Sædísar skjaldböku. Hann er alger hjálpar- hella og leggur mikið á sig við að að reyna að bjarga henni. Hann fer í ferðalag með henni um djúpin til að leita að einhverjum sem getur losað hana úr plastinu. Þau hitta marga sem reyna að leggja þeim lið, þar eru skrautfiskar og hafmeyjar, þær eru níu talsins og eru kallaðar sírenurnar. Hvort eru hafmeyjarnar vondar eða góðar? Þær eru góðar og hjálpa til við björgunarstarfið. Elsa haf- meyja fer með Nonna og Sædísi upp í fjöru að finna Krabba kló sem getur bitið sundur plasthringina. Svo kemur pabbi hennar og sækir hana. Af hverju kemur pabbi hennar? Hafmeyjar mega ekki fara upp í fjöru því þá geta þær lent í svo mikl- um vandræðum. Fólk vill nefnilega veiða þær og rannsaka þær og sumir vilja setja þær í búr. Hver er boðskapurinn í verkinu? Hann er sá að vernda hafið og hætta að henda plasti í það svo lífverurnar þar séu ekki í hættu staddar. Hafmeyjarnar hjálpa til við björgunarstarfið Elín í búningi Elsu hafmeyju leikur sér í flæðarmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HAFMEYJAR MEGA EKKI FARA UPP Í FJÖRU ÞVÍ ÞÁ GETA ÞÆR LENT Í SVO MIKLUM VANDRÆÐUM. FÓLK VILL NEFNILEGA VEIÐA ÞÆR OG RANNSAKA ÞÆR OG SUMIR VILJA SETJA ÞÆR Í BÚR. Af hverju fór kjúkl- ingurinn yfir götuna? Til að komast yfir götuna. Af hverju fór bóndinn yfir götuna? Til að leita að kjúklingnum sínum. Af hverju fór risaeðlan yfir götuna? Það var fyrir tíma kjúklingsins. Af hverju fór tyggjóið yfir götuna? Það var fast við fótinn á kjúklingnum. Af hverju fór apinn yfir götuna? Það var banani hinum megin. Af hverju fór froskurinn yfir göt- una? Einhver hrekkjalómur hafði límt hann fastan við kjúklinginn. Spurningar og svör „Of sein, of sein,“ sagði Kata pirruð og hermdi e ir áhyggjurödd Konráðs. „Ég er búin að heyra þetta væl alveg nógu o og nenni ekki að heyra það einu sinni í viðbót,“ bætti hún við. „En okkur liggur á,“ sagði Konráð biðjandi og bar sig aumlega. „Það gerir ekkert til að vera of sein,“ sagði Kata. „En það er gaman að reyna að komast í gegnum völundarhús,“ bætti hún við og bretti upp ermarnar. „Koma svo, inn með ykkur og reynið nú að týnast ekki. Ég ƒnn réttu leiðina, sannið þið til,“ sagði Kata roggin um leið og hún arkaði inn í dimm göng völundarhússins. Konráð á ferð og ugi og félagar 378 Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið?? ? ? ? 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 F -F 3 0 4 2 4 3 F -F 1 C 8 2 4 3 F -F 0 8 C 2 4 3 F -E F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.