Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 80

Fréttablaðið - 16.11.2019, Síða 80
Listakonan Ragnheiður Jónsdóttir stendur rétt innan við dyrnar á gamla Borgarbókasafninu í Þingholtunum. Hún er með vasaljós sem hún beinir að sonum sínum tveimur sem eru að koma fyrir stórri og glæsi- legri mynd vinstra megin við inn- ganginn. „Ég var með þessa mynd á fyrstu sýningunni með kola- teikningum árið 1990 og hef ekki sýnt hana síðan. Hún heitir Síðasta blómið,“ segir listakonan og bætir við að verkin á þessari sýningu séu sambland frá öllum tímaskeiðum, bæði grafík og kolateikningar. Þótt arkitektúr Einars Erlends- sonar arkitekts sé samur við sig í húsinu er það allt steypugrátt að innan. Enn er eftir að tengja ljósin á neðri hæðinni þegar mig ber að garði en Ragnheiður segir þau verða komin fyrir sýningaropnun og kveðst ekki hafa hikað þegar henni bauðst að sýna í þessu flotta húsnæði, þó að það sé á byggingar- stigi. Við höldum upp gamla snúna stigann með virðulegum handrið- unum. Þó að Ragnheiður sé 86 ára er hún létt í spori. Staðnæmumst við tvær myndir sem hún kveðst hafa verið með á samsýningu úti í Danmörku 1969, í fyrsta skipti sem hún sýndi erlendis. „Önnur minna mynda birtist í blaði með krítík um sýninguna, ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.“ Næsta stopp er við svarthvíta grafíkmynd. „Þessi er frá 1970, þá var ég í París að læra að setja lit í grafík. Hún heitir Sum- arið 70 og þarna er ég strax farin að vekja athygli á menguninni.“ Margt sem konur upplifa Staða kvenna hefur verið Ragnheiði hugleikin. Konan með tertuna er dæmi um það. Þó að hún sé reist, þá sér hún ekkert, tertan, sem er hennar kóróna, veldur því. „Þessi mynd heitir Deluxe and delightful, upplýsir Ragnheiður. Fleiri myndir eru í sama anda. „Það er margt sem konur upplifa og kringum þessar myndir voru heilmiklar vanga- veltur. Þær eru frá 1979,“ segir hún og næst snúum við okkur að seríu með bókamyndum sem gerð er með grafík. „Þessar eru frá 80 og 81. Ég spyr karlmann: Hvað er líkt með konu og bók? – Þér finnst hún álit- leg, þú festir þér hana, þú strýkur hana, þú sekkur þér ofan í hana, þér finnst hún frábær, þú setur hana í efstu hillu svo allir fái að sjá hana. Svo einn góðan veðurdag finnst þér hún algerlega innantóm, andlaus skrudda og þú losar þig við hana og lánar hana öðrum.“ Ertu fráskilin? Er það fyrsta sem mér dettur í hug eftir þessar útskýr- ingar. „Nei, nei. Því miður dó maðurinn minn fyrir næstum sex árum, hann hét Hafsteinn Ingvarsson og var tannlæknir en hafði sönginn sem áhugamál. Hann varð 81 árs og hætti bara að vinna þremur mánuðum áður en hann dó. Varð aldrei skjálf- hentur, hugsaðu þér hvað hann var lán- samur. Ég hitti hann í Versló, Þar sat hann á aftasta bekk, ári seinna vorum við orðin par og vorum sama n það sem eftir var. Giftum o k k u r t ve i m u r dögum eftir að við útskrifuðumst sem stúdentar, fórum í skólaferðalag, með bekknum til allra h i n n a Nor ðu r- landanna, sem var líka okkar brúð- kaupsferð. Fjórum mánuðum seinna fæddist fyrsti sonurinn. Þannig að maður skipulagði tímann vel!“ segir Ragn- heiður brosandi. Mikill dómur upp kveðinn Við erum komnar að glugga á efri hæðinni og lítum út. „Grundar- stígurinn hér við hliðina er dásam- legur partur af mínu lífi, þar voru bæði Verslunarskólinn og Hand- íðaskólinn sem ég byrjaði á kvöld- námskeiðum í þegar ég var 17 ára. Ég bjó hjá móðurbróður mínum og fjölskyldu í Þingholtsstræti 21 svo það var stutt að fara. Þá gekk ég alltaf fram hjá þessu húsi sem við erum í núna. Ég var alin upp austur í Þykkvabæ og þó að það væri heil- mikill bær á þeim tíma hafði ég ekki séð aðra eins höll. Það er því alger draumur að fá að sýna hér. Ég á svo gleðilegar minningar frá þessum árum.“ Í sal á neðri hæðinni er risastór kolamynd Ragnheiðar á einum vegg og nýtur sín vel. „Ég dvaldi í Nor- rænu listamiðstöðinni úti í Finn- landi 1993, það var yndislegt og ég fékk þar flotta vinnustofu, þá gerði ég svo stórar myndir án þess eigin- lega að átta mig á því. Ég hef aldrei getað sýnt þessa,“ segir hún. Húmtjöld heit a t vær háar myndir í einni stofunni og í ann- arri er meðal annars sex mynda sería úr Völuspá. „Völuspá hefur alltaf heillað mig frá því ég kynnt- ist henni í sögutímum í Versló. Ég gerði seríu út frá henni 91-92, þar er mikill dómur upp kveðinn,“ segir Ragnheiður. Nú þokumst við nær útidyrum og áður en ég kveð tekur Ragn- heiður fram að sýningin verði opnuð í dag, laugardag, klukkan 16 og standi í hálfan mánuð. „Það eru allir velkomnir, ég ætla að vera hér sem mest, allan tímann, og hafa gaman af að spjalla við þá sem líta inn. Viltu koma þeim skilaboðum áfram að fólk er beðið að taka með sér gesti!“ Hafði ekki séð aðra eins höll Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarmaður opnar sýningu í dag á verkum sínum í Villa Frida – sem er upprunalega nafnið á gamla Borgarbókasafnshúsinu við Þing- holtsstræti 29a. Sýninguna kallar hún Þú vaknar að morgni. Ragnheiður segir algeran draum að fá að sýna í gamla Borgarbókasafninu. „Ég á svo gleðilegar minningar frá þessum slóðum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Konan með tertuna er meðal þekktustu mynda Ragnheiðar. VÖLUSPÁ HEFUR ALLTAF HEILLAÐ MIG FRÁ ÞVÍ ÉG KYNNTIST HENNI Í SÖGUTÍMUM Í VERSLÓ. ÉG GERÐI SERÍU ÚT FRÁ HENNI 91-92, ÞAR ER MIKILL DÓMUR UPP KVEÐINN. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 6 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :3 9 F B 0 9 6 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 F -C B 8 4 2 4 3 F -C A 4 8 2 4 3 F -C 9 0 C 2 4 3 F -C 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 9 6 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.