Hlynur - 15.02.1981, Side 9
Vigdís Pálsdóttir flytur
tímamótaávarp.
Líf og fjör í
Borgarnesi
Hér koma nokkrar myndir er
teknar voru á árshátíð Starfsmanna-
félags Kf. Borgfirðinga, sem haldin
var í samkomuhúsinu í Borgarnesi í
febrúar sl. Parna var líf og fjör að
vanda og sumir héldu áfram að
skemmta sér, því 7. mars var haldið
á hótelinu í Borgarnesi, fyrsta Vest-
urlandsmót Samvinnuskólamanna og
voru þar mættir bæði Bigrestingar og
nemendur úr Reykjavíkurskólanum.
Mátti þar kenna sum sömu andlitin
og á árshátíðinni hjá kaupfélags-
starfsfólkinu, s. s. sérfræðing í
veislustjórn, Jón Einarsson og Vig-
dísi Pálsdóttur frá Borgarnesi, nú-
verandi formann NSS.
Búist var við mikilli aðsókn á
þetta Vesturlandsmót, en hin dæma-
fáu illviðri vetrarins komu í veg fyrir
hana. Pó voru mættir um 60 manns
og skemmtu sér hið besta.
Jón Einarsson, veislustjóri,
með meiru.
HLYNUR 9