Hlynur - 15.02.1981, Side 10

Hlynur - 15.02.1981, Side 10
momcts SLsi-ví^í? Á síðast liðnu vori var mér af- hent viðurkenningarskjal frá Starfs- mannafélagi S. í. S. fyrir félags- málastörf, einnig fyrirheit um ferða- lag til Ameríku. Pröstur Karlsson formaður félagsins, sem afhenti mér áður nefnt, fór þess á leit við mig, að ég segði frá hér í blaðinii að ferðinni lokinni. Tíu daga ferð til útlanda er tæpast talin frásagnarverð, eins al- geng og ferðalög eru orðin, en til- raun til þess að verða við ósk for- mannsins er gerð hér. Pó mér sé Ijóst, að það verður skuggi en ekki skin frá því ævintýri, sem þessi ferð var mér. Ferðin var skipulögð af SAFF sem kynnisferð héðan að heiman til Ice- land Seafood Corporation í U. S. A. dagana 21.—30. okt. Skyldi flogið til New York og ekið þaðan 23. til Boston á Fish Expo-heimssýningu varðandi sjávarútveg og komið til I. S. C. í Harrisburg 25. og dvalið þar til 30. að farið yrði heim. f hópnum voru sextán manns, níu ráðamenn í þeim fyrirtækjum samvinnumanna, sem vinna að fisk- framleiðslu til útflutnings ásamt sex konum sínum, auk mín. Ég hafði komið til New York í ársbyrjun 1941, farið þangað með ,,Lagarfossi“ og verið ellefu daga á leiðinni. Nú tók ferðalagið rúmlega fimm og hálfa klst., eða helmingi færri tíma en daga fyrir tæpum fjörutíu árum. Ekki fannst mér mikill munur að sjá yfir þá New York, sem ég sá nú og þeirri sem ég hafði í minn- ingu, þar voru og eru byggingar og aftur byggingar. Mörgum mun verða á að líta til himins, er þeir koma fyrst út á götu í New York, en fyrir augunum verða 50—80 hæða byggingar, en fólk áttar sig fljótlega, þegar það rekst á aðra vegfarendur. Ef til vill er það þó manngrúinn á götunni sem mesta athygli vekur, fólk frá öllum heimshornum og eins fjöl- breytilegt og það er margt, meira þó af lituðu fólki, en allir á ferð eftir götunni, sem verður eins og stór- fljót á leið til sjávar, að því breyttu, að þarna er straumurinn í allar áttir. New York verður ekki skoðuð til gagns á einum degi. Við sáum íslenska skínnskó í safni innflytjenda úti í Frelsisstyttunni, skautasvell undir berum himni í 10—15 stiga hita, mitt á meðal blómanna á Man- hattan. Gjöf Kína til Sameinuðu þjóðanna verður mjög minnisstæð — 150 kg fílabeinsverk með hrikafjöll austursins í bakgrunn, sem gnæfðu yfir skógum og ökrum með mann- grúa í forgrunn, allt útskorið með því listilega handbragði, sem ein- kenni er á kínverskum munum. Við ókum með bíl til Boston. Sagt er, að nú megi heita samfelld borg suður fyrir New York og norð- ur fyrir Boston, enda virtumst við aka í gegn um samfellda byggð, aðeins misajfnlega þétta, þrátt fyrir að þjóðvegir séu látnir sneiða fram hjá borgunum, en þeir í U. S. A. hafa tekið það upp — sennilega héðan! — að flokka vegi sína í þjóðvegi, sýsluvegi og hreppavegi. f fjörutíu ára minningu minni var Boston áþekk breskum hafnar- borgum þess tíma. Nú er þetta eins og ný borg með fjölbreyttum bygg- ingarmáta, stórbyggingum, skýja- kljúfum, jafnvel úr eintómu gleri. Heimssýningin Fish Expo var geysilega umfangsmikil. Ferðafélag- arnir héldu þar til allan daginn og sumir langt fram á kvöld. Fátt virt- ist hafa vakið áhuga þeirra til bóta fyrir íslenskan sjávarútveg og fisk- vinnslu og ýmsir hlutir, sem boðnir voru til sölu taldir úreltir hér á landi. Ég gafst upp á rápinu eftir fjóra eða fimm klukkutíma og gekk út í góða veðrið að skoða borgina. Svo settist ég á bekk við friðsæla götu. Komu þá karl og kona labbandi og um leið og þau ganga fram hjá, vindur maðurinn sér að mér og segir: „Komdu sæll og blessaður — vannst þú ekki einu sinni í Sam- bandinu? — Hvað heitir þú nú aftur?“ — Já, það er sagt að maður sé hvergi óhultur fyrir landanum,. Við flugum frá Boston til Harris- burg, um klukkustundarferð í al- skýjuðu og þar með útsýnislaust og lentum þar í lemjandi rigningu — eina regnið sem við fengum í ferð- 10 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.