Hlynur - 15.02.1981, Blaðsíða 14
Utanlandsferðir LÍS í sumar
• Kaupmannahöfn
• Sumarhús í Finnlandi
• Skotland
Par sem þátttaka í LÍS-ferðum
undanfarin sumur hefur ekki verið
sem skyldi, þá var ákveðið að draga
saman seglin og haga ferðalögum í
sumar á annan veg en áður. Nú
verður t. d. engin tjaldferð og er
það vissulega miður, því þessar ferð-
ir hafa ávallt tekist framúrskarandi
vel og verið þær langódýrustu í boði.
Kaupmannahöfn 23. júní—2. júlí.
Petta verður ferð á einstökum
kjörum, en 10 dagar í kóngsins
Kaupmannahöfn; flug, gisting og
morgunverður mun kosta um 28.000
krónur.
Lögð verður áhersla á að kynnast
í leiðinni samvinnuhreyfingunni í
Danmörku, með heimsóknum til
samvinnufélaga og skipulagðar verða
einnig heimsóknir á ýmsar forvitni-
Iegar slóðir í Kaupmannahöfn og
nágrenni. Jafnvel verður boðið upp
á ferð til Hamborgar, ef áhugi er til
staðar hjá hópnum. Sá margslyngi
Porsteinn Máni Árnason, sem dvalið
hefur í Kaupmannahöfn um nokkur
ár, mun sjá um fararstjórnina.
Par sem sætafjöldi er takmarkað-
ur, er vissast að panta strax og sér-
stök áhersla að hvetja þá,, sem vilja
fræðast um samvinnustarf hjá ná-
grönnum okkar, að koma í þessa
ferð. Par mun engum leiðast.
Frá Kaupmannahöfn. Til vinstri ræðast þeir við, Þorsteinn Máni Árnason, t. v. og séra Jóhann Hlíðar, en myndin er tekin í Bella-
höj, í ferð LÍS um Danmörku sumarið 1977. Til hægri er sá merkilegi Sívaliturn.
14 HLYNUR