Hlynur - 15.02.1981, Side 18

Hlynur - 15.02.1981, Side 18
Vináttuvikugestir á ferð í Aimannagjá sumarið 1978. Vináttuvika á íslandi 23. júní til 2. júlí í sumar 1 sumar verður í þriðja sinn á íslandi, staðið fyrir svokallaðri vin- áttuviku, með þátttöku samvinnu- starfsmanna frá öllum Norðurlönd- unum. Fyrst stóð LÍS fyrir svona viku sumarið 1975, síðan 1978 og var þá mest ferðast um Norðurland, en nú er það Suður- og Suðaustur- land, sem farið verður um. Ferðaá- ætlunin er í stórum dráttum þannig: Þriðjudagur 23. júni: Komið til Islarids frá Khöfn og gist að Flúðum. Miðvikuda&ur 24. júni: Dvalið á Flúðum, en sennilega farið í skoðunarferð að Gullfossi og Geysi. Pá verður fundur í KPA- ráðinu. Fimmtuda&ur 25. júní: Ekið frá Flúðum að Skaftafelli og gist þar í tjöldum. Föstudagur 26. júní: Litast um í Skaftafelli og síðan ekið að Höfn og gist þar. Lauftardazur 2. júní: Skoðuð starfsemi KASK og farið í skoðunarferð austur í Lón. Sunnudaftur 28. júní: Ekið frá Höfn til Hvolsvallar og gist þar. Mánuda^ur 29. júní: Ekið frá Hvolsvelli til Þorláks- hafnar, með viðkomu í Mjólkurbúi Flóamanna og farið með Herjólfi til Vestmannaeyja. Par farið í skoðun- arferð og gist. Þriðjudagur 30. júní: Farið frá Vestmannaeyjum til Porlákshafnar með Herjólfi og síðan til Reykjavíkur um Þingvelli. Gist á einkaheimilum í Reykjavík. Miðvikudazur 1. júlí: Farið í heimsóknir í samvinnu- fyrirtæki í Reykjavík. Um kvöldið lokahóf. Fimmtudaiur 2. júlí: Frjáls dagur í Reykjavík og haldið heim um kvöldið. Mjög mikil eftirspurn er eftir að komast á þessa viku annars stað- ar að frá Norðurlöndunum, en hvert land hefur rétt til að senda mest 13 þátttakendur. Á það einnig að sjálf- sögðu við um íslendinga. Pátttöku- gjald fyrir allan tímann verður sem svarar eitt þúsund sænskum krónum. Sérstakt leiguflug verður til og frá Kaupmannahöfn og auk vináttu- vikufara, verður knattspyrnulið sam- vinnustarfsmanna í Árósum með í ferð í boði Starfsmannafélags SÍS. Pá hefur verið skipulögð sérstök ferð fyrir allt að 20 manna hóp samvinnustarfsmanna frá Norður- löndum, þar sem aðallega verður dvalið vestur í Dö'íum og lögð á- hersla á útreiðatúra og veiðiskap til sjós og lands. Yrði þessi ferð einnig á sama tíma og vináttuvikan. Umsóknarfrestur til 15. maí n. k. Peir samvinnustarfsmenn, sem á- huga hafa á að taka þátt í þessari vináttuviku, 23. 6. til 2. 7. í sumar, þurfa að hafa samband við skrifstofu LÍS, síma 91-21944 fyrir 15. maí n. k. í síðasta lagi. Sérstök ástæða er til að hvetja starfsmenn til að gefa þessari viku gaum. Parna svífur andi norrænnar samvinnu svo sann- arlega yfir vötnum, ferðast er um stórbrotnar slóðir og ferðakostnaður í algjöru lágmarki, en inní þátttöku- gjaldi er allur ferða-, uppihalds og gistikostnaður. 18 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.