Hlynur - 15.02.1981, Blaðsíða 19

Hlynur - 15.02.1981, Blaðsíða 19
Svið og veisla = sviðaveisla Nssingar á Vopnafirði halda upp- teknum hætti, mætast einu sinni á ári og eyða saman kvöldi og nætur- partíi. Að fornum sið sitjast þeir að sviðaáti á allrnasálna- og heil- agramessu. Húsráðendur á Refsstað leggja til húsnæði og matarföng, en þorpsbúar sjá um kaupstaðarvarn- inginn. Frést hefur að mestu mat- hákarnir líti eftir markinu tvíbitað og ómarkað, sjái þeir lambhrút með gott hnakkaspik í fyrstu rétt. Mæting er yfirleitt 100%, aldrei farið niður fyrir rúm 90%. Og oft hafa gamlir nemendur Reykjavíkur- skólans tekið þátt í sviðaveislu með okkur Bifrestingum. Prúðmannleg>- ur en svangur stígur hópurinn út úr skólabílnum á Refsstaðarhlaði kl. 8 að kvöldi, saddur og glaður kveður hann og stígur syngjandi um borð í rútuna á fjórða tíma nætur. Og á meðan mál manna er, að síðasta sviðaveisla hafi borið af þeim fyrri, höldum við áfram að hittast í lok sláturtíðar. Áður hef- ur verið gerð tilraun til að festa veislugesti á mynd með lélegum ár- angri, en vonandi hefur betur tek- ist til núna, þar sem veislugestir voru ekki nema á fyrsta kjamma þegar myndatakan fór fram. Ágústa. Svið — svið — svið, f. v.: Guðfinna Kristjánsdóttir, Kristján Magnússon, Ágústa Porkelsdóttir og Pórður Páisson. ... og aftursvið.f. v.: Þórður, að fá sér meira, Ásgeir Sigurðsson, Metúsalem Einarsson og Gunnar Pálsson. Nú er mál að linni, f. v.: Jörundur Ragnarsson, Rósa Jónsdóttir, Ragnheiður Pórðardóttir, Arndís Hólmkelsdóttir og Guðfinna. HLYNUR 19

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.