Hlynur - 15.02.1981, Page 20

Hlynur - 15.02.1981, Page 20
Efri mynd: Harðjaxlarnir hjá Bifreiðadeild KEA stilla sér upp fyrir Hlyn, f. v.: Hall- grímur Haraldsson, Tryggvi Jóhannesson, Gunnar Jónsson, Valdimar Halldórsson, Halldór Karlsson, Stefán Porvaldsson, Kristbjörn Björnsson og Gylfi Guðmarsson, formaður SKE. Neðri mynd: Stund milli stríða á kaffistofunni, f. v.: Stefán, Valdimar, Sigurgeir Jónsson og Gunnar. Flutningar af ýmsu tagi er snar þáttur í starfi kaupfélaganna flestra og geysimikilvægur þáttur í hinum dreifðu byggðum. Pegar fréttasnapar Hlyns voru á ferðalagi á Akureyri fyrri hluta vetrar, var litið við í Bifreiðadeildinni og síðar í sérstæðri þjónustudeild, sem er Böggla- afgreiðsla KEA. Hjá Bifreiðadeild KEA var leitað frétta hjá Halldóri Karlssyni og hann sagði okkur, að þar væru að jafnaði 8 flutningabílar í ferðum milli Akur- eyrar og Reykjavíkur og annar eins fjöldi í mjólkurflutningum. Nýjasti bíllinn var rétt kominn á götuna og hann var engin smásmíði, bar 11 og hálft tonn og kostaði á milli 60 og 70 milljónir gamalla króna. Mjólkurbílarnir flytja mjólk utan frá Ólafsfirði að vestan og Grenivík, austan Eyjafjarðar og frá innstu dölum. Alls hafði deildin í umfeð rúmlega 20 bíla. Halldór er enginn viðvaningur í akstri hjá KEA, því hann keyrði í 22 ár milli Reykjavíkur og Akur- 20 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.