Hlynur - 15.02.1981, Síða 22
Bögqlaafgreiðsla KEA.
Að Hafnarstræti 82 er svo þjón-
ustufyrirtæki, sem sennilega er það
eina á landinu sinnar tegundar, en
það er Bögglaafgreiðsla KEA. Pessi
þjónusta hefur verið starfrækt í ára-
tugi og þegar litið var við, var ekki
að sjá neinn verkefnaskort.
Við spurðum Árna J. Haraldsson
um gang mála og þarna fer fram af-
greiðsla á pósti og bögglum fyrir allt
Eyjafjarðarsvæðið. Pósthúsið raðar
pósti í póstpoka, sem komið er með
í afgreiðsluna og hingað koma einnig
blöðin til dreifingar. 7 póstbílar aka
svo póstinum um sveitir, flestir dag-
lega á virkum dögum eða annan
hvern dag.
Pá er þarna afgreiðsla fyrir rútuna
til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Hrís-
eyjar, sem fer daglega á sumrin, og
eins fyrir rútuna til Húsavíkur, sem
fer á milli fjórum sinnum á sumrin,
en þrisvar yfir veturinn. Flutninga-
bílar sem taka vörur á Dalvík,
Hauganesi og Grenivík, hafa einnig
viðkomu í Bögglaafgeriðslunni og
þangað berast pakkar frá öllum
deildum KEA. Svo er það ekki
aðeins pósturinn og pakkarnir, sem
þarna hafa viðkomu, því mannfólkið
þarf líka að fara á milli staða. Hvað
er það, sem KEA gerir ekki? er
stundum spurt. — RI.
Á efstu mynd er Margrét Klemensdóttir
að afgreiða einn viðskiptavininn, en sá
er Jón Jónsson. Á myndinni t. h. er Árni
Haraldsson, starfsm. Bögglaafgreiðslu,
en lengst til vinstri að neðan, er Jón
Ólafsson, póstur og gamall mjólkurbíl-
stjóri að snara inn síðustu bréfum að
„sunnan". í miðið raðar Ólafur Olgeirs-
son, póstm. í póstpokana, en t. h. er
Jóhann Sigurðsson, bifreiðastjóri.
22 HLYNUR
/