Hlynur - 15.02.1981, Qupperneq 37

Hlynur - 15.02.1981, Qupperneq 37
Bergenferð LÍS sl. sumar Dagana 26. júlí til 11. ágúst sl. sumar ferðaðist um 50 manna hópur um Noreg á vegum LfS, en flogið var til og frá Bergen. Fararstjóri var sá góðkunni, Porsteinn Máni Árnason. Dvalið var á tjaldstæðum og ferðaleiðin var um ýmsar stór- brotnustu byggðir Noregs, fyrst hald- ið norður, m. a. um hina hrikalegu firði, Sognsæ og Geirangursfjörð og allt til Álasunds. Paðan var svo haldið í suðurátt um Romsdal, Guð- brandsdal og til Oslóar og þaðan í vestur til Bergen og hringnum lokað. Hér verður engin ferðasaga sögð, en gripið niður í myndamöppu eins ferðafélagans, Gunnars Sigurjónsson- ar. Eins er hluti af kveðju í bundnu og óbundnu máli frá eihum úr hópnum, Ásgeiri Gunnarssyni á Höfn í Hornafirði, sem Ásgeir sendi feðafélögum sínum á ferða- og myndakvöld, sem haldið var í Hamragörðum í haust: ,,Góðir ferðafélagar. Mér þykir miður að geta ekki komið í Hamragarða, en ég vil ekki láta hjá Iíða, að þakka ykkur fyrir síðast. Ég fór þessa ferð fyrir at- beina barna minna og tengdabarna og gerði hvorki að kvíða né hlakka, en þegar ég var sestur upp í flug- vélin á Keflavíkurflugvelli, fannst mér það byrjun á ævintýri. Petta hugboð brást heldur ekki, því öll var ferðin mér eitt ævintýr. Kom þar margt til. í fyrsta lagi ágætt veður allan tímann, í öðru lagi bílstjórinn okkar, Porgeir. Við íslendingar hugs- um oft ekki út í það, þegar af stað er farið, hversu gott er heilum vagni heim að aka. í þriðja lagi fararstjór- Hópurinn á fullri ferð í Bergen. Grillað f Álasundi. Ferðahópurinn á fögrum stað. HLYNUR 37

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.