Faxi - 01.12.2019, Síða 2
2 FAXI
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík
Ritstjóri: Svanhildur Eiríksdóttir, sími 894 5605,
netfang svei@simnet.is
Blaðamaður: Dagný Maggýjar
Blaðstjórn: Eysteinn Eyjólfsson formaður, Jóhann Friðrik Friðriksson,
Ríkharður Ibsen, Kristinn Óskarsson, Hannes Einarsson og Kristján
Jóhannsson.
Öll prentvinnsla: Stapaprent ehf. Grófin 13c, 230 Reykjanesbær
sími 421 4388, netfang: stapaprent@gmail.com
Netfang vegna auglýsinga: eysteinne@gmail.com
Auglýsingasími: 698-1404, veffang: www.mitt.is/Faxi
Forsíðumynd: Rán Ísold Eysteinsdóttir
1. tölublað - 79. árgangur - 2019
Al l i r myndatextar í þessu og öðrum
heftum Faxa eru b laðsins
Fylgt úr hlaði
Jólablað Faxa í ár er sannkallað stórviðburðablað, því hér er
hverjum stórviðburðinum á fætur öðrum gerð skil.
Fyrst er að nefna stórafmæli málfundafélagsins Faxa, sem varð 80 ára
10. október sl. Eysteinn Eyjólfsson Faxafélagi og formaður blaðstjórnar
rifjar hér upp upphafsár málfundafélagsins og félagatal tekið saman
af Kristni Óskarssyni er birt. Faxamenn gerðu sér ferð á Bessastaði í
tilefni afmælisins og eftir höfðinglegar móttökur á Bessastöðum var
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands gerður að heiðursfélaga, þeim
16. í röðinni. Árið 2020 mun 80. árgangur Faxa líta dagsins ljós.
Við vekjum einnig athygli á 20 ára afmæli Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar og Óperufélagsins Norðuróps á árinu. Haldið var upp á þessi
tímamót með uppsetningu á söngleiknum Fiðlaranum á þakinu í
Stapa, sem sannarlega féll í góðan jarðveg hjá Suðurnesjamönnum.
Uppsetningin var gríðarleg vinna fyrir þátttakendur, en ekki síður
mikill og góður skóli fyrir þá.
Þá varð Reykjanesbær 25 ára á árinu og rifjaður er upp aðdragand-
inn að stofnun sveitarfélagsins og hasarinn í kringum nafngiftina.
Þrír bæjarfulltrúar úr fyrstu bæjarstjórn Reykjanesbæjar, þau
Drífa Sigfúsdóttir, Jóhann Geirdal og Jónína Sanders leyfa okkur að
skyggnast inn í tíðarandann.
Sælasjoppa eða Biðskýlið í Njarðvík hefur verið hluti af sjoppumenn-
ingu okkar í 60 ár. Á árum áður var sjoppan miðpunkturinn í bæjar-
lífinu í Njarðvík og var jafnvel hálfgerð félagsmiðstöð. Við rifjum
upp sögu hennar í Sögu húsanna.
Við rifjum líka upp sögu Bókabúðar Keflavíkur m.a. með viðtali við
Þorstein Marteinsson, Dodda í bókabúðinni, en hann er sá eigandi
Bókabúðarinnar sem starfaði þar lengst. Í sumar var rekstri bóka-
búðar hætt í húsnæðinu við Sólvallargötu 2 og hún flutt í Krossmóa.
Það var sama þó bókabúðin hafi verið orðin hluti af keðju Eymunds-
sonar, fólk talaði enn um Bókabúð Keflavíkur.
Annar áberandi Suðurnesjamaður fær einnig sinn stað í jólablaði
Faxa. Guðríður Vilbertsdóttir, Gauja húsvörður eins og hún er
gjarnan kölluð, er að láta af störfum sem umsjónarmaður fasteignar
í Njarðvíkurskóla eftir tæp 40 ár í starfi. Hún Gauja hefur ekki
farið hefðbundna leið á sínum starfsferli sem skemmtilegt er að rifja
upp með henni. Fyrrverandi og núverandi nemendur fara fallegum
orðum um Gauju og sumir halda að skólinn hætti að vera til þegar
hún yfirgefur hann í árslok.
Hannesarættin í Keflavík er stór ætt og telur hátt í þúsund manns
í dag. Helmingur þeirra eða 500 ættmenni komu saman í sumar
til þess að minnast látinna ættingja sem margir settu svip sinn á
samfélagið. Líklega hefur þar verið um að ræða stærsta ættarmót
landsins það árið. Faxamaðurinn Hannes Einarsson er úr Hannesar-
fjölskyldunni og naut liðsinnis Dagnýjar Maggýjar við að skrásetja
sögu hennar.
Eiríkur Hermannsson sagnfræðingur og Rannveig Traustadóttir
fornleifafræðingur hafa kortlagt stríðsminjar á Suðurnesjum og gefið
út ítarlega skýrslu, sem m.a. var send til Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Eiríkur gerði útdrátt fyrir Faxa sem birtur er hér.
Fjölmargir Suðurnesjarithöfundar og skáld eru að gefa út bækur nú
fyrir jólin og við birtum lista yfir þær.
Við lítum líka yfir farinn veg með Einari Fali Ingólfssyni sem yfirgaf
Keflavík eftir nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja til að mennta sig
frekar, m.a. í bókmenntafræði og ljósmyndun. Einar Falur bregður
upp skemmtilegum myndum frá Heiðarveginum í Keflavík með
orðum út frá 50 ára gömlum ljósmyndum í pistlinum Þá og þar.
Séra Fritz Már Jörgensen prestur í Keflavíkurkirkju, og spennusagna-
höfundur, talar í pistlinum Hér og nú um kærleika jólanna og
hvernig hann birtist í hjálpsemi við náungann og þeirra sem minna
mega sín. Fritz læðir að þeirri góðu hugmynd að láta þann jólaanda
lifa áfram. Þannig lifi náungakærleikurinn allt árið um kring.
Með þessum orðum sendum við jólakveðjur til lesenda með ósk um
kærleika og frið á komandi ári.
Svanhildur Eiríksdóttir ritstjóri
Dagný Maggýjar blaðamaður