Faxi - 01.12.2019, Síða 6
6 FAXI
Hún Guðríður Vilbertsdóttir, alltaf köll-uð Gauja eða jafnvel Gauja húsvörður,
hefur ekki beinlínis farið hefðbundna leið
í lífinu. Hún hefur lengi unnið störf sem
fáar konur hafa gegnt, keyrt alls kyns stór
vinnutæki, unnið erfiðisvinnu í fiskvinnslu
og verið umsjónarmaður fasteignar, að
öllum líkindum eina konan á landinu
þegar hún hóf störf í Njarðvíkurskóla árið
1981. Hún ætlaði að staldra stutt við, líkaði
skólaumhverfið ekki vel eftir erfiða reynslu
í æsku, en er að láta af störfum um þessar
mundir eftir tæp 40 ár í starfi. Það er ekki
nema von að börnin haldi að hún eigi skól-
ann, svo stór hluti er hún af daglegu starfi
Njarðvíkurskóla og hefur verið lengi. Einn
nemandi heldur því fram að skólinn verði
ekki til þegar Gauja hættir um áramótin.
Fyrrum og núverandi nemendur í skólanum
eiga fallegar minningar um Gauju og hún
sömuleiðis um þá. Svanhildur Eiríksdóttir
hitti Gauju í Njarðvíkurskóla og átti við
hana gott spjall.
Gauja er fædd á Minni Ólafsvöllum í
Rangárvallasýslu en staldraði ekki lengi við
þar, heldur fór á flæking víða um land. „Ég
tengi mig mest í Skagafjörðinn. Ég kom
oftast þangað aftur. Svo hafði ég viðkomu
í Reyðarfirði þar sem ég var farin að vinna
í síld 8 ára gömul. Eftir flakk í áraraðir
fluttum við úr Skagafirðinum til Reykja-
víkur þar sem ég vann m.a í Ísbirninum.
Þar erum við í einhvern tíma en svo festi
ég rætur þegar ég kom hingað suður til að
vinna á vertíð í Sandgerði 16 ára gömul. Ég
segi gjarnan að þá hafi ég framkallast.“
Skólaganga Gauju var stopul vegna
þvælings og eins og fylgir þegar rót kemst á
börn ná þau ekki að tengjast né öðlast þann
aga sem nám krefst. Henni leið því aldrei
vel í grunnskóla og þaðan flosnaði hún upp.
„Ég var í rauninni voða lítið í skóla af því að
maður var alltaf á þvælingi. Maður byrjaði
ekkert aftur þegar maður flutti á miðjum
skólavetri. Það var ekkert kerfi þá sem
fylgdi því eftir hvort börnin kæmu í skóla.
Þetta var stofnun sem ég ætlaði aldrei inni
í aftur á minni ævi. Þegar krakki er langt
á eftir í öllu og getur ekki neitt, þá getur
honum ekki liðið vel í skóla. Á þessum tíma
var enginn stuðningur við þá nemendur
sem þurftu á því að halda og þá fórstu bara í
að vera villingur til fá athygli.“
Og varst þú villingur í skóla?
„Já maður kom sér bara í það til að fá
athygli og til þess að vera með einhverjum,
þá gerði maður það bara, stundaði það. Þess
vegna veit ég alveg hvað villingur er í raun-
inni og næstum því kann að taka á því.“
Fyrsta konan í verkamannavinnu hjá ÍAV
Gauja varð snemma móðir en soninn
Vilbert eignaðist hún 17 ára gömul. Þá var
Gauja að vinna í Hrafninum í Sandgerði þar
Skólinn verður ekki til þegar þú hættir
Oftast er það Gauja sem er á bak við myndavélina í skólanum en nokkrar fundust þó í gömlum
myndaalbúmum. Hér situr Gauja inn á kennarastofu með töfluna góðu fyrir aftan sig, en svona kerfi
var notað í kennslu til að skipuleggja kennslustundir kennara og stofuskipan. Ljósm. Njarðvíkurskóli
„Gauja er mamma 2 í skólanum,“ segir einn núverandi nemenda í Njarðvíkurskóla.
Börnin flykktust að henni þegar ljósmyndara bar að garði. Ljósm. Svanhildur Eiríks