Faxi - 01.12.2019, Page 11
FAXI 11
Konan sem á skólann
Fyrir skömmu sagði einn nemandi við
Gauju, „þessi skóli verður ekki til þegar þú
ert farin.“ Það eru líka nemendur í skól-
anum sem halda að Gauja eigi skólann. Hún
sagðist hafa heyrt á tali nokkurra nemenda
um daginn að einn nemandi spurði, hvort
vildir þú vera skólastjórinn eða konan sem á
skólann? Svarið var, konan sem á skólann.
Heyrum fleiri ummæli frá nokkrum
núverandi og fyrrum nemendum
Njarðvíkurskóla:
„Gauja gat gert allt, hún er þúsundþjala-
smiður Njarðvíkurskóla. Alltaf þegar eitt-
hvað óhapp kom upp var Gauja komin. Svo
er hún líka bara vinur allra. Við kölluðum
hana Gauja legend, af því að hún var bara
ógeðslega skemmtileg og fyndin og nennti
að tala við okkur, annað en allir hinir.“
„Ætli það hafi ekki verið haustið 1981
að við krakkarnir tókum eftir ungri
snaggaralegri konu, pínu strákalegri á
göngum Njarðvíkurskóla. Var okkur tjáð
að þarna væri kominn nýi húsvörðurinn.
Einmitt! Þetta var svolítið undarlegt í þræl
rígbundnum hugmyndum um kynbundin
hlutverk og hugmyndafræði um að gamlir
kallar ættu einkarétt á að vera húsverðir, eða
umsjónarmenn fasteigna eins og þeir voru
síðar kallaðir.
En það má með sanni segja að Gauja
húsvörður hafi mjög fljótlega orðið ein af
okkur, eða þannig. Það gat vissulega heyrst
í henni og ef henni var misboðið þá notaði
hún ,,lúðurinn” því hún er raddsterk með
afbrigðum. En hjartahlýju og jákvæðni
dreifði hún um ganga Njarðvíkurskóla. Þau
eru orðin mörg árin síðan ég útskrifaðist frá
skólanum mínum, Njarðvíkurskóla og enn
er Gauja fasti punkturinn í skólalífinu, og
aðeins einn starfsmaður eftir í skólanum,
hættur kennslu en heldur tauginni við
sinn gamla vinnustað til tugi ára, Guðjón
Sigurbjörnsson. Segir kannski eitthvað um
andann þarna. Og enn er manni heilsað
af Gauju eins og maður sé enn nemandi!
,,Hvað segir þú gott elskan mín?“
„Það voru þrír skólastjórar á mínum
námsárum, en Gauja var alltaf til staðar.
Hún var eini fasti punkturinn í skólanum og
sem slíkur varð hún manni svo mikilvæg.
Maður gat alltaf stólað á hana.“
„Gauja er mamma 2 í skólanum, er svo
góð, knúsar mann alltaf þegar manni líður
illa. Heilsar okkur alltaf með því að segja
„Hæ elskurnar mínar.“ Allir í mínum bekk
vilja ekki að hún hætti. Hún er bara svo
frábær.“
Ekki slæm eftirmæli þetta!
Golfið og barnabörnin sjö
Gauja viðurkennir að auðvitað verði
skrítið að fara úr skólanum. Þar eigi hún
þó barnabarn, hana Bríeti Silfá hans Kidda
og hennar Hófíar svo hún sér fyrir sér að
tengslin við skólann muni ekki rofna í
bráð. Hún ætlar að gefa barnabörnunum
sínum sjö meiri tíma en hún hefur haft
hingað til. Auk Bríetar Silfá eru það Mikael
Máni, Gabríel Sindri og Arthur Möller og
Gunnar Már, Birta Rós og Harpa Sóley
Vilbertsbörn.
Ég spyr hana hvað annað sé framundan, ég
viti að hún hafi verið að spila golf. Einhver
plön?
„Sko, tómstundir mínar hafa komið i tíma-
bilum, verið kaflaskiptar. Þegar ég var yngri
var ég á fullu í hestunum. Svo byggði ég mér
sumarbústað í Borgarnesi sem ég seldi bara
í fyrra því það er erfitt að reka tvö heimili.
Svo hef ég verið mikið í göngum og útivist
upp um fjöll og firnindi, en svo var ég
komin með nóg af því og fór í golf af því að
ég vildi áfram vera í útivist. Það eru örugg-
lega komin um 10 ára síðan, Harpa Guð-
mundsdóttir dró mig út á völl og það var
ekki aftur snúið. Ég skellti mér svo í kennslu
hjá Erlu Þorsteinsdóttur. Það var frábært,
ég upplifði tíma hjá henni sem urðu til þess
að ég snéri ekki til baka. Nú ætla ég á fullu
í það. Eftir að ég gat einbeitt mér að golfinu
eftir að ég seldi sumarbústaðinn þá datt ég
niður í forgjöf, komin niður í 21. Ætli ég
flytji ekki bara á völlinn með vorinu.“
Við getum ekki látið hjá líða að rifja
upp í lokin afmælisveislu sem haldin var
til heiðurs Gauju sextugri í skólanum árið
Gauja önnur frá vinstri í hópi góðra golffélaga hjá Golfklúbbi Suðurnesja í Leirunnni. Mynd úr einkasafni Gauju.