Faxi - 01.12.2019, Qupperneq 13
FAXI 13
Óskum íbúum
í sameiginlegu sveitarfélagi
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári.
Gleðileg jól
Gott og farsælt nýtt ár!
Þökkum samskiptin á liðnu ári. SUÐURNESJABÆR
2014, að henni forspurðri. Ég heyri á henni
að þetta verður eitt þeirra dýrmætu augna-
blika sem hún tekur með sér úr skólanum
að starfslokum. Ég gef Gauju orðið:
„Þetta var svakalegt upplifelsi þegar ég
varð sextug fyrir fimm árum. Hófí var
margoft búin að spyrja hvort ég ætlaði
ekki að gera neitt, en ég svaraði því alltaf
neitandi, ætlaði bara að fara fyrr heim og
vera í bænum í rólegheitum. Rétt áður en
ég fer þá kallar Ásgerður á mig og segist
þurfa að tala við mig, segist þurfa að fara
aðeins yfir fjárhagsáætlunin með mér. Svo
tilkynnir hún mér að ég þurfi að fara með
Hófí, skreppa með henni aðeins. Ég verð
nú dálítið pirruð og segist ekki þurfa að
skreppa neitt, segist ekki hafa tíma í þetta,
hvorki fjárhagsáætlun né annað. Síðan
kemur Hófí inn og eftir þvarg okkar á milli
fer ég með Hófí, nokkuð pirruð af því að
ég mátti ekkert vera að þessu. Hún fer með
mér á hárgreiðslustofuna Hár og rósir og
þar bíður mín hárgreiðsla og ég er máluð
af Sólveigu systir hennar Hófíar. Svo þegar
þetta er búið grunar mig að Hófí sé búin
að skipuleggja hitting með fjölskyldunni á
Ránni. Mér er skipað að skipta um föt, fara
í spariföt og ég gerði það. Þegar við erum
komin í bílinn, segi ég Hófí að ég þurfi að
fara upp í Njarðvíkurskóla, því ég eigi eftir
að ganga frá skrifstofunni og læsa, sækja
dótið mitt og bílinn.
Þegar við komum á staðinn þá er búið
að flagga íslenska fánanum og ég hélt að
það væri leikur framundan. Þegar ég svo
fer út kemur Hófí á eftir mér og ég er alveg
hætt að skilja í þessu öllu saman. Svo sé
ég Vilbert í ganginum þegar ég geng hér
inn, svo sé ég Kidda og ég hugsa, hvað er
eiginlega að gerast hérna? Heyrðu þá er
salurinn fullur af fólki og búið að græja
þessa rosalegu veislu. Ég gat ekki sagt neitt
og hvorki grátið né hlegið. Ég stóð bara
frosin. En þetta var ótrúlegasta augnablik
sem ég hef upplifað. Þarna var búið að
kalla saman alla vinahópana mína, nú-
verandi og fyrrverandi samstarfsfélaga
og slegið upp veislu. Ég er ekki vön að
halda veislur en þetta heppnaðist ótrúlega
vel og var dásamleg stund. Myndin sem
blasti við mér þegar ég gekk inn í salinn er
enn greipt í huga mér. Það tóku allir þátt
í þessu og voru að skáskjótast hér allan
daginn með kökur og bakkelsi þegar ég
sá ekki til en heiðurinn átti Hólmfríður
Karlsdóttir og starfsfólkið hér í skólanum.
Ég er þeim afar þakklát fyrir þessa veislu,
einnig Ásgerði Þorgeirsdóttur skólastjóra
og starfsfólki Njarðvíkurskóla, fyrir þessa
veislu,“ segir Gauja að lokum.
Gauja hefur alveg verið að njóta sín í golfinu
á undanförnum árum og þar ætlar hún að
gera betur á næstu árum. Mynd úr einkasafni
Gauju.