Faxi - 01.12.2019, Síða 16
16 FAXI
Í sumar urðu þau tímamót að dyrnar að Bókabúð Keflavíkur lokuðu í síðasta sinn.
Það tók bæjarbúa nokkurn tíma að átta
sig á þessum breytingum og ekki laust
við að mönnum hafi brugðið við þessi
tímamót, Bókabúð Keflavíkur var löngu
orðin samgróin bæjarmyndinni og einn
af þessum óbreytanlegu þáttum í daglegu
lífi. Það var sjónarsviptir að henni. „Nú er
hún Snorrabúð stekkur” gæti einhver hafa
tautað þungt hugsi.
Að sögn Þorsteins Marteinssonar, sem
betur er þekktur sem Doddi í bókabúð-
inni, voru þeir nokkrir sem gripu í tómt í
ágústmánuði þar sem hann var að ganga
frá húsnæðinu eftir flutninginn. Bókabúð
Keflavíkur, sem árið 2005 var seld til Penn-
ans var flutt í verslunarkjarnann í Krossmóa
og orðin hluti af keðju verslana um allt land
undir nafniu Penninn/Eymundsson.
Það var orðið langt um liðið frá því að
ljóðskáldið og leikritahöfundurinn Kristinn
Reyr ákvað að hefja bóksölu í húsnæði
Vörubúðarinnar hf. að Tjarnargötu 10 árið
1942. Áður höfðu kaupmenn á staðnum
haft bækur til sölu meðal annars varnings
og Kron rak um skeið bókadeild.
Það var á laugardegi þann 28. mars kl.
fimm eftir hádegi sem Kristinn Reyr og
Elín Ólafsdóttir starfsstúlka drógu tjöld frá
gluggum og loku frá búðarhurð. Bókabúð
Keflavíkur leit fyrst dagsins ljós en sala
þann opnunardag varð 103 krónur, að
aurum slepptum.
Í upphafi gekk verslunin undir nafni
eiganda síns en Kristinn Reyr fékk heimild
til þess að kenna búðina við byggðarlagið
hjá Hreppsnefnd Keflavíkur þann 22. mars
árið 1944. Síðar á því ári flutti verslunin að
Hafnargötu 34 þar sem Kristinn hafði byggt
yfir hana af miklum „stórhug og framsýni.”
Tilkoma bókabúðarinnar sem sér-
Nú er hún Snorrabúð stekkur
Bókabúð Keflavíkur í bæjarmyndinni
Þorsteinn Marteinsson eða Doddi í bókabúðinni eins og hann er þekktur í stiganum góða á æsku-
heimilinu þar sem hann stóð þegar hann bað föður sinn um starf í bókabúðinni eftir verslunarpróf.
Starfsfólk Bókabúðarinnar að Hafnargötu 32 fyrir jól 1970. Inga Árnadóttir, Jónína Olsen, Stella Olsen, Hrönn Þorsteinsdóttir, Valdís Árnadóttir og Marteinn.