Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2019, Blaðsíða 24

Faxi - 01.12.2019, Blaðsíða 24
auðsjáanleg ummerki um þann bragga. Skagavöllur var í reynd aldrei notaður neitt að ráði en þjónaði hlutverki neyðar- flugvallar. Aðgengi að sjáanlegum minjum er sæmilegt enda eru þær skammt frá nýbyggðu hóteli en helst þyrfti að færa til girðingu í samráði við landeiganda þannig að minjarnar yrðu enn aðgengilegri sem og merkja minjarnar. Upplýsingaskilti mætti setja niður annað hvort við hótelið eða við enda flugbrautarinnar nálægt bílastæðinu við sjóvarnargarðinn Miðunarstöðin á Fitjum Breski herinn reisti miðunarstöð á Fitjum í október 1941 og kom þar upp aðstöðu smátt og smátt. Alls reistu Bretar 13 bragga og 5 steinhús. Þá áttu Bandaríkjamenn tvo bragga að Fitjum í stríðslok. Fitjabærinn var farinn í eyði og stóðu íbúðarhúsin enn uppi og voru þá í eigu Ingibjörns Þ. Jónssonar bónda á Efri-Flankastöðum sem leigði það Bretunum. Þarna var einnig loft- net sett upp, um 20 m stálmöstur. Stöðin var allstór og er áætlað að þarna hafi verið um 100 hermenn þegar mest var, allt til ársins 1945. Stöðin var lögð niður árið 1946 og keypti Ingibjörn bóndi á Flankastöðum þá 13 bragga og 5 lítil steinhús af Sölunefnd varnarliðseigna. Miðunarstöðvarnar á Fitjum og á Langholti, áttu að fylgjast aðallega með skipaumferð en einnig auðvelda stað- setningu á kafbátum og flugumferð en árangur mun ekki hafa verið mikill enda tæknin á frumstigi. Greinileg ummerki eru um braggabyggðina rétt suðaustan við gamla Sandgerðisveginn, skammt frá gamla bæjarstæði Fitja. Þarna eru enn sýnilegir allmargir grunnar, hleðslur, veggjabrot og sökklar undan möstrum. Varðstöðin á Fitjum Vel má sjá að braggarnir hafa ekki allir verið reistir á sama tíma. Þannig eru þeir eldri með hlöðnum grunni og hafa líklega verið með timburgólfi sem stóð á nokkrum steyptum staurum eða sökklum. Nýrri braggarnir hafa verið með steyptu gólfi og eru þeir grunnar sýnilegri. Einnig er þar heilleg múrsteinshlaðin kamína eða arinn sem stendur ennþá vel sýnileg. Hverfið á Fitjum er ágætlega varðveitt og minjarnar vel sýnilegar. Ástæða er til að hreinsa burt lauslegt járnarusl og víra og setja upp skilti með upplýsingum. Aðgengi er gott. Miðunarstöðin á Langholti í Leiru-Hverfið Howard Bretar og Bandaríkjamenn settu upp mið- unar- eða ratsjárstöð á Langholti í Leiru. Sautján braggar munu hafa staðið undir Langholtinu austanverðu og ratsjárloftnet uppi á holtinu. Hverfið hét eftir fyrrum yfirmanni merkjasveita Bandaríkjahers í Tennesseeríki í bandaríska þrælastríðinu og var kallað Howard. Steinsteyptir sökklar og steypt plata fyrir mastur loftnets á norðanverðu holtinu eru enn vel sýnilegir en lítil ummerki eru um sjálfa braggabyggð- ina. Talsvert umrót hefur orðið á svæðinu austan holtsins vegna starfsemi fiskvinnslu- fyrirtækja sem þarna hafa haft fiskþurrk- unartrönur um áraraðir. Grunnar undan húsi og einum bragga sem voru nokkuð 24 FAXI Braggagrunnur á Fitjum, hlaðnir veggir og steypt við innganginn.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.