Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2019, Side 28

Faxi - 01.12.2019, Side 28
28 FAXI Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Óperu-félagið Norðuróp réðust í stórvirki á árinu, uppsetningu á söngleiknum Fiðlar- anum á þakinu. Tilefnið var ærið, bæði skólinn og óperufélagið áttu 20 ára afmæli í haust. Tónlistarskólinn ætlar reyndar að taka afmælið lengra því starfsárið verður afmælisár. Söngleikurinn var aðeins byrj- unin og mun afmælisárið ná hámarki með vorinu með viðburði sem enn er í mótun og ekki hægt að segja frá að svo stöddu. Þó hefur verið upplýst að fleiri komi að því en Fiðlaranum, þar sem 35 söngvarar og 14 hljóðfæraleikarar tóku þátt. Svanhildur Eiríksdóttir settist niður með Haraldi Árna Haraldssyni skólastjóra Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Karen Janine Sturlaugsson aðstoðarskólastjóra og Jóhanni Smára Sævarssyni stofnanda og framkvæmdastjóra Óperufélagsins Norður- óps í húsakynnum tónlistarskólans til að ræða um starfsemi hans og Óperufélagsins ásamt uppsetningunni á Fiðlaranum á þakinu. Jóhann Smári leikstýrði og sá um framkvæmdastjórn ásamt Haraldi. Hljóm- sveitastjóri var Karen. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar tók til starfa 1. september 1999. Grunnur hans liggur í skólunum tveimur Tónlistarskólan- um í Keflavík og Tónlistarskóla Njarðvíkur. Við sameiningu sveitarfélaganna, ásamt Höfnum, árið 1994 héldu tónlistarskólarnir áfram að starfa í sitthvoru lagi í fimm ár. Þá þótti tímabært að sameina skólana sem þó störfuðu áfram í sitthvoru húsnæðinu, við Austurgötu og Þórustíg. Það var því mikil bylting þegar skólinn flutti í Hljómahöllina í byrjun árs 2014. Um svipað leyti og Tónlistarskóli Reykja- nesbæjar tók til starfa var Jóhann Smári Sævarsson óperusöngvari á Akureyri að vinna á fullu í tónlist og stýra söngkennslu í Tónlistarskóla Akureyrar. Það vantaði fé- lag til þess að standa fyrir tónleikum, m.a. fyrir gesti af skemmtiferðaskipum. Óperu- félagið Norðuróp varð til og hefur fylgt Jóhanni Smára allra sinna ferða, enda er hann einn við stjórnvölinn, en drífur með sér fólk í þau verkefni sem félagið stendur fyrir hverju sinni. Hann hafði gengið með þann draum í maganum að setja Fiðlarann á þakinu á svið alveg frá því að hann söng VÁ! Af hverju ertu ekki bara að gera þetta? Þau þrjú sem áttu vega og vanda að uppsetningu Fiðlarans á þakinu og stjórna Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar og Norðurópi, f.v. Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri, Karen Janine Sturlaugsson aðstoðar- skólastjóri og Jóhann Smári Sævarsson framkvæmdastjóri Norðuróps. Ljósm. Svanhildur Eiríks Frá æfingu í Stapa undir lok æfingartímans. Jóhann Smári í hlutverki Tevje að þenja raddböndin. Ljósm. Reykjanesbær

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.