Faxi - 01.12.2019, Qupperneq 29
FAXI 29
aðalhlutverkið í Regensburg fyrir 17 árum.
Svo ákveðinn var hann að hann festi kaup
á þýðingu á verkinu. Þeir Haraldur höfðu
margsinnis rætt uppsetningu á því, en það
stóð aldrei nógu vel á. Lengst af var það
húsnæðisskortur, en með tilkomu Hljóma-
hallarinnar breyttust forsendur og hægt var
að hefja viðræður á ný. Þegar svo blasti við
20 ára afmæli hjá bæði Tónlistarskólanum
og Óperufélaginu var tækifærið komið.
Forskóli verður til
með einsetningu grunnskóla
Fyrsta verkefni Haraldar Árna Haraldssonar
sem skólastjóra Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar var að leggja niður tónlistarskólana
tvo, segja öllum upp og stofna nýjan.
Starfsfólk var ráðið að nýju og starfsemin
stokkuð upp. „Þetta var að mínu viti mikið
heillaspor. Til varð stærri eining og hægt að
gera meira. Við tókum það besta úr báðum
skólum og innlimuðum inn í þennan,
reyndum að skauta framhjá því sem við
höfðum kannski ekki gert eins vel og síðan
höfum við stöðugt verið að bæta okkur og
gera betur. Nemendur skólans í hljóðfæra-
og söngnámi hafa aldrei verið fleiri en nú á
þessu afmælisári, eru orðnir rúmlega 400,
auk forskólanemenda sem eru hátt í 500
talsins. Það eru því fast að 900 nemendur í
tónlistarskólanum.“ Að sögn Haraldar hafa
tónfræðigreinarnar einnig verið stokk-
aðar upp nokkrum sinnum á þessum tíma
með það að markmiði að ná sem best til
nemenda og þar með betri árangri. Fyrir
nokkrum árum var ráðinn deildarstjóri
tónfræðigreina sem vann með skólastjórn-
endum að umtalsverðum breytingum. Enn
er að miklu leyti unnið eftir því skipulagi
sem þá var mótað og það hefur sett mark
sitt á skólann til bóta.
Einsetning grunnskóla var að hefjast
þegar Tónlistarskóli Reykjanesbæjar tók til
starfa og eitt af fyrstu verkefnum hins nýja
skóla var að koma tónlistarkennslu sem
mest út í grunnskólana. Haraldur hefur
orðið: „Þá var verið að stækka skólabygg-
ingarnar til að geta orðið við þeim laga-
skyldum að einsetja skóla, þar sem allur
hópurinn í grunnskólanum mætir á sama
tíma í skólann. Það var því gert ráð fyrir
hljóðfærakennslu alveg upp í 7. bekk inni
í grunnskólunum og það var sótt heimild
fyrir því frá menntamálaráðuneytinu. Öll
börn í 1. og 2. bekk grunnskólanna áttu að
verða nemendur í forskóla Tónlistarskólans
og fá þar af leiðandi markvissa tónlistar-
kennslu, sem miðaði að því að nemendur
yrðu undirbúnir undir áframhaldandi nám
í tónlistarskóla, í hljóðfæranám. Þannig
hefur fyrirkomulagið haldist. Þetta er ekki
tónmenntakennsla, heldur markviss undir-
búningur fyrir tónlistarnám og þar er regin
munur á. Síðan sáum við fyrir okkur, að
ef grunnskólanir í Reykjanesbæ væru allir
vel mannaðir af tónmenntakennurum, þá
væru þeir kennarar að fá ekkert smá flotta
nemendur í hendurnar í 3. bekk, hvað tón-
listarþekkingu varðar, eftir forskólann hjá
Jóhann Smári og Haraldur Arnbjörnsson skiptu með sér hlutverki Tevje. Hér syngur Haraldur á
síðasta rennsli fyrir frumsýningu. Ljósm. Svanhildur Eiríks
Valgeir Þorláksson, Valli bakari, hefur lengi sungið með Karlakór Keflavíkur og honum brá fyrir í
Fiðlaranum. Ljósm. Svanhildur Eiríks
Júlíus Viggó Ólafsson þótti standa sig vel í einu af
burðarhlutverkunum í sýningunni, sem tengda-
sonur Tevje. Ljósm. Svanhildur Eiríks