Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2019, Síða 31

Faxi - 01.12.2019, Síða 31
FAXI 31 Frá vígsluathöfn í Hljómahöll 6. apríl 2014. Karen stýrir hér stórum hópi tónlistarnemenda sem spilaði fyrir gesti í Rokksafni. Ljósm. TR fyrir nemendur sé frábær í Hljómahöll- inni. „Að sjá nemendur koma hingað beint eftir skóla til að bíða eftir tíma þótt þeir kæmust heim til sín á milli, er mjög gefandi og segir okkur að nemendum líði vel hér í tónlistarskólanum. Nemendur hreiðra um sig í sófunum hér uppi á efri hæðinni eða við borðin sem eru þar innst og eru kannski að læra þar eða matast og sömuleiðis á neðri hæðinni. Mér finnst svo gaman að sjá þau koma hérna og sjá hvað þeim finnst notalegt hér. Ég hef t.d. heyrt frá kennurum að það eru einhverjir sem eiga kannski klukkutíma á milli skóla og tónlistarnáms, en ákveða að koma hingað og bíða því það sé svo „nice“. Þetta er æðislegt.“ Óperufélagið Norðuróp verður til Aðstaðan skapaði líka svigrúm fyrir upp- setningu á verki eins og Fiðlaranum á þakinu. Hljómahöll var ekki fullkláruð þegar Norðuróp settu á svið óperuna Évgení Onegin eftir Pjotr Tchaikovsky í Hljóma- höll og það rifjast upp í viðtalinu að margir flúðu út af því að þeir héldu að loftið væri mettað af ryki vegna framkvæmdanna. Hið sanna var að þetta var reykur úr reykvél sem notuð var við uppfærsluna. Fyrir það hafði Norðuróp sett upp óperuna Tosca eftir Giacomo Puccini í Keflavíkurkirkju, þar sem hún smellpassaði þar inn, óperurnar Gianni Schicchi, einnig eftir Puccini og Z-ástarsaga eftir Sigurð Sævarsson, byggða á sam- nefndri bók Vigdísar Grímsdóttur. Síðast- nefndu óperurnar tvær voru settar upp í Dráttarbrautinni í Keflavík. Þá eru ótaldar uppfærslurnar norðan heiða, þar sem Óperufélagið varð til. Jóhann Smári rifjar upp. „Ég stofna Norðuróp á Akureyri árið 1999 með Sinfóníuhljómsveit Akureyrar, Leikfélagi Akureyrar og Tónlistarskólanum á Akureyri af því að árið á undan settum við þar upp Brúðkaup Fígarós eftir Mozart eða ég setti það upp í húsi Leikfélags Akureyrar. Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnaði, en þetta var uppsetning í samvinnu við Tón- listarskólann og Sinfóníuhljómsveit Norður- lands. Þá vaknaði þessi hugmynd, eigum við ekki að stofna óperufélag af því að það voru byrjuð að koma skemmtiferðarskip til Akureyrar og við vorum að hugsa, hvað er hægt að gera fyrir fólk sem kemur hingað? Eigum við að vera með einhvers konar tón- leika? Óperan er auðvitað alþjóðleg, þannig að okkur datt í hug að stofna eitthvað svo- leiðis. En svo fór það í allt aðra átt. Fyrsta verkið sem við settum upp var barnaóperan Sæmi sirkusslangan eftir Malcolm Fox, sem við fluttum líka í Reykjanesbæ. Svo flutti ég suður eftir að hafa búið á Akureyri í 3 ár og starfað sem deildarstjóri söng- og óperu- deildarinnar Tónlistarskólans þar.“ Jóhann Smári tók Óperufélagið með sér þar sem miklar breytingar voru hjá mörgum þeirra sem komu að stofnun félagsins. Hann er því framkvæmdastjóri og eini starfsmað- urinn en tekur með sér gott fólk þegar verk- efni eru sett upp. Það gerist þegar Jóhanni Smára dettur eitthvað nýtt í hug og hann fer að hugsa hvernig hann geti gert óperuna að- gengilega á þessu svæði. Þannig fengum við hingað suður Sæma sirkusslöngu, Gianni Schicchi, Z-ástarsögu, Brúðkaup Fígarós, sem var samstarfsverkefni Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Toscu, sem á sér sérstakan aðdraganda og unnið var skemmtilega úr. „Við fengum styrk til að halda tónleika, ég, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson og Bylgja Dís Gunnarsdóttir. Við þrjú veltum fyrir okkur hvað við gætum gert saman. Jú Tosca er með þrjú aðalhlut- verk og akkúrat raddtýpurnar okkar, bassa, tenór og sópran, svo það verk er upplagt. Eigum við þá kannski að halda tónleikana í kirkjunni? Svo þegar ég er að biðja um afnot af kirkjunni þá hugsa ég, bíddu fyrsti þáttur í kirkjunni, annar þátt í safnaðarheimilinu og sá þriðji út undir berum himni. Þá lá beinast við að setja upp Toscu sem er ein- mitt með þessi þrjú sögusvið. Við vorum sérstaklega þakklát fyrir aðstoð veður- guðanna, því veðurblíðan var einstök þegar þriðji þátturinn var fluttur úti undir berum

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.