Faxi - 01.12.2019, Qupperneq 33
FAXI 33
himni í garði kirkjunnar.“ Jóhann Smári
nefndi sérstaklega hversu vel Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum hafi stutt við
bakið á félaginu með styrkjum.
Fiðlarinn á þakinu
á alltaf erindi við fólk
Verkið Fiðlarinn á þakinu kom til hans, eins
og Jóhann Smári hefur orð á. Hann hafði
ekki bara sungið aðalhlutverkið og ákveðið
þá að festa kaup á íslensku þýðingunni,
heldur segir hann söngleikinn vera vel
þekktan og dáðan um allan heim. Til að
mynda þekki allir lögin „Ef ég væri ríkur“
og „Sól rís, sól sest.“ Í stuttu máli segir
söngleikurinn frá Tevje mjólkurpósti, fjöl-
skyldu hans og samferðafólki í litla þorpinu
Anatevka í Rússlandi í upphafi 20. aldar,
þegar kommúnisminn var allsráðandi. Tevje
heldur fast í gamlar siðvenjur og reynir
að stjórna fjölskyldunni samkvæmt þeim.
Smátt og smátt molnar þó undan þeim.
Eiginkonan og dæturnar sjá að mestu um
það. Spurning hvort höfundur hafi verið
undir áhrifum frá kvenréttindabaráttunni
sem var að ryðja sér til rúms á sjöunda
áratugnum. Bíómynd var gerð eftir verkinu
árið 1971.
En á þessi söngleikur enn erindi við fólk?
„Mér finnst það já. Við hlæjum að því á
æfingum að auðvitað er rosaleg karlremba
í stykkinu. Við erum að tala um 1905 í
Rússlandi, pabbinn á bara að ráða en hann
ræður ekki neinu. Það eru stelpurnar og
konan. Er það ekki alltaf svoleiðis?“ spyr
Jóhann Smári og heldur áfram „Fólk elskar
Fiðlarann. Bæði er tónlistin skemmtileg og
svo er þetta bara allt svo mannlegt. Það er
fullt af góðum bröndurum í verkinu og það
snertir mann svo, því það fer í allar átti. Það
er líka ljótleiki í því en maður stendur með
fólkinu.“
Vá! Af hverju ertu ekki
bara að gera þetta?
Þetta má vera ástæðan fyrir því að svo
margir kusu að taka þátt í verkinu eins og
raunin varð. Þrír söngvarar röðuðust nánast
í hvert hlutverk, þegar æfingar hófust í
október 2018. Stjórnendur höfðu ekki
miklar áhyggjur af því þá enda bjuggust þeir
við að kvarnast myndi úr hópnum því æf-
ingar voru stífar og reyndu mikið á. En svo
varð ekki. Auk nemenda úr Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar tóku þátt söngnemendur úr
tónlistarskólum nágrannasveitarfélaganna.
Aðalhlutverkinu, Tevje mjólkurpósti, skiptu
Jóhann Smári og Haraldur Arnbjörnsson
með sér og hlutverk konu hans, Golda,
sungu Dagný Þórunn Jónsdóttir og Linda
Pálína Sigurðardóttir.
Þátttakan í uppsetningunni hefur verið
mikill og dýrmætur skóli fyrir alla þátt-
takendur. Það eru viðmælendurnir þrír
allir sammála um. Söngleikir séu snúnir
og margir nemendanna að stíga sín fyrstu
skref í tónlistarnámi. Það sé því dýrmætt í
reynslubankann að fá að syngja með hljóm-
sveit og undir hljómsveitarstjórn. „Það
hefur verið mjög gaman að sjá hvað sumir
eru miklir náttúrutalentar. Það er þarna
inn á milli fólk sem maður hugsar. VÁ! Af
hverju ertu ekki bara að gera þetta?,“ segir
Jóhann Smári.
Áskorunin sem Karen hefur staðið
frammi fyrir er ekki minni, þó hún sé þræl-
vön hljómsveitarstjórn. Hún er nefnilega
söngstjóri líka og söngvararnir reiða sig á
hennar stjórn. „Þetta er útsetning sem gerð
er fyrir atvinnumenn í tónlist úti í hinum
stóra heimi og þetta er hundrað blaðsíðna
bók í alls konar tóntegundum. Ég hef oft
stoppað og sagt til hughreystingar, þetta
skiptir engu máli, þetta eru BARA NÓTUR,
þó að það sé kross fyrir framan hverja
einustu nótu,“ segir Karen og hlær. En þó
að þetta sé erfitt á köflum bætir hún því við
að þetta sé bara gaman.
Skemmtunin skilaði sér vel til áhorfenda
en þrjár sýningar voru fluttar 14., 15. og 16.
nóvember síðastliðinn, fyrir fullu húsi.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Brunavarnir Suðurnesja
sími 421-4748
Suðurnesjamenn
Gleðileg jól
gott og farsælt komandi ár.
Jón Gunnarsson og Haraldur Arnbjörnsson dansandi kátir í hlutverkum sínum í Fiðlaranum
á þakinu. Ljósm. Svanhildur Eiríks