Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2019, Side 39

Faxi - 01.12.2019, Side 39
FAXI 39 kom út platan Hvít er borg og bær með jólalögum Ingibjargar sem sló í gegn. Platan er að öllum líkindum fyrsta alíslenska jóla- platan hérlendis og þannig varð Ingibjörg Þorbergs enn og aftur leiðandi frumkvöðull í plötuútgáfu á Íslandi. Á plötunni mátti finna lög eins og Jólabros í jólaös í flutningi Egils Ólafssonar sem samið er til frænku Ingibjargar í Keflavík, Jólaköttinn með Björk og Grýlukvæði í meðförum meistara Megasar. Eitt lítið jólalag Magnús Kjartansson Eitt lítið jólalag eftir Magnús Kjartansson sem þekkt varð í flutningi Röggu Gísla átti erfiða fæðingu en það bráðvantaði jólalag á plötu Brunaliðsins. Jólin færðust óðfluga nær og var textinn því gerður í fljótheitum. Magnús hafði hent gys að því að 90% af íslenskum jólatextum innihéldu um 200 orð sem svo væru sett saman með samteng- ingum og atviksorðum. Textinn er þannig leikur að því, lítið og sætt og barnslega einfalt. Þar kveður við nýjan tón enda ekki sungið um jólasveina, Betlehem eða Jesú- barnið. Magnús átti aldrei von á því að lagið yrði eitthvað annað en uppfyllingarefni og hefur það gert honum þann óleik að verða bæði vinsælt og gífurlega mikið notað. Í myrkri og kulda' er gott að hlýja sér Við draum um ljós og betri heim Og lítið jólalag Og léttan jóladag. Og lítið jólatré Og lítið jólabarn Og nýja jólaskó Og hvítan jólasnjó Og fallegt jólaljós Jólasveinninn kemur Ég sá mömmu kyssa jólasvein Þú komst með jólin til mín Rut Reginalds Þegar Magnús Kjartansson og félagar hans í Júdas voru að leika í Keflavík á þjóðhá- tíðardaginn 1973 steig ung stúlka á svið í hæfileikakeppni barna og unglinga. Hún hét Rut Reginalds og átti eftir að eiga skæran feril sem barnastjarna en hún söng m.a. inn á plöturnar um Róbert bangsa og Simmsala- bimm sem var fyrsta eiginlega barnapoppp- latan sem gefin var út á Íslandi. Haustið 1977 söng Rut tvö jólalög í hressi- legri kantinum á jólaplötuna Jólastrengir. Þetta voru lögin Jólasveinninn kemur og Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Lögin slógu sam- stundis í gegn eins og annað sem hún hafði tekið sér fyrir hendur og í uppgjöri dag- blaðsins á íslenska poppárinu um áramótin hafnaði hún í öðru sæti sem söngkona ársins, þá rétt ríflega tólf ára gömul. Þó nokkrum árum seinna, eða árið 1989 fékk Björgvin Halldórsson Rut til liðs við sig og sungu þau saman eitt af þekktari jólalögum þjóðarinnar, Þú komst með jólin til mín sem kom út árið 1989 á plötunni Allir fá þá eitthvað fallegt. Lagið er ítalskt að uppruna eins og svo mörg íslensk jólalög sem er svo alveg sjálfstætt rannsóknarefni. Jólin alls staðar Vilhjálmur og Elly Systkinin Vilhjálmur og Elly frá Merkinesi voru gædd mikilli tónlistargáfu og einir ástsælustu tónlistarmenn þjóðarinnar. Þau voru bæði tónviss og með skýra framsögn sem þau gátu vafalaust þakkað móður sinni Hólmfríði sem söng með kirkjukórnum í Höfnum í áratugi. Að öðru leyti voru þau ólíkir söngvarar. Vilhjálmur heillaðist af kántríslögurum en Elly deildi ekki þeim áhuga hans, hún var meira fyrir suðræna og seiðandi tónlist. Þau höfðu bæði vítt tónsvið, Villi gat sungið upp í skýin en Ellý fór niður í kjallara. Síðasta plata þeirra systkina þar sem þau sungu saman var jólaplata sem hitti beint í mark og nýtur vinsælda enn í dag. Nóttin var sú ágæt ein Sigvaldi Kaldalóns Sigvaldi Kaldalóns gerðist héraðslæknir Keflvíkinga árið 1929 en af pólitískum ástæðum settist hann að í Grindavík þar sem vel var tekið á móti honum. Margir hafa líkt dvöl Kaldalóns í Grindavík við menningarlega vígslu en margir af kunn- ustu listamönnum þjóðarinnar á þeim tíma dvöldu á heimili þeirra hjóna til lengri eða skemmri tíma. Má þar nefna Gunn- laug Scheving listmálara, Einar Ben, Stein Steinarr skáld og Ríkharð Jónsson mynd- höggvara að ógleymdum Eggerti bróður Sigvalda. Í sumum tilfellum var dvöl þess- ara kunnu listamanna á heimili Sigvalda ekki aðeins lyftistöng fyrir menningarlíf í Grindavík heldur fyrir alla þjóðina. Þannig hafa Grindavíkurár Gunnlaugs Scheving hlotið þann sess að vera sérstakur kapítuli í sögu íslenskrar myndlistar, eins konar óður til íslenskra sjómanna með svipuðum hætti og lag Sigvalda Kaldalóns „Suður- nesjamenn.” Nóttin var sú ágæt ein var samin við ljóð Einars Sigurðssonar og vilja margir kalla það eitt fegursta jólalag allra tíma en það var frumflutt í Grindavík árið 1941. Það snjóar Nú mega jólin koma fyrir mér Sigurður Guðmundsson Sigurður Guðmundsson hefur verið vinsæll á jólamánuðum undanfarin ár, en hann gaf út með Memphismafíunni jólaplötuna Nú stendur mikið til árið 2015 sem varð sígild um leið og hún kom út. Tvo laganna hafa verið eru talin ein af 10 bestu jólalögum landsins skv. álitsgjöfum RUV. Þar flytur Sigurður lögin Það snjóar og Nú mega jólin koma fyrir mér en textana gerði snillingur- inn (sem við Suðurnesjamenn getum því miður ekki eignað okkur) Bragi Valdimar Skúlason. Nú mega jólin koma fyrir mér komst líka á lista hjá starfsfólki Íslands- stofu fyrir stuttu sem flokkaði jólalögin eftir málaflokkum stofunnar, skóstærð og augnlit svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur Sigurður lengi átt gott samstarf við söngkonuna Sigríði Thorlacius og er það orðin hefð hjá þeim að slá í nýtt jólalag og bjóða gestum á hátíðartónleika rétt fyrir jól. Á öðrum sunnudegi aðventunnar alhliða hreinsunarstarf á sér stað þá söngperlur ég söngla ýmsum kunnar og síðan læt ég renna í funheitt bað. Þá allar spjarirnar ég af mér reiti og öllum deginum við þvotta ver ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti ég skef úr eyrum svona að mestu leyti þá mega jólin koma fyrir mér. Dagný Maggýjar

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.