Faxi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Faxi - 01.12.2019, Qupperneq 42

Faxi - 01.12.2019, Qupperneq 42
42 FAXI Þann 11. júní 2019 voru 25 ár síðan Reykjanesbær varð til og fyrsta bæjar- stjórn sveitarfélagsins tók til starfa. Aðdrag- andinn að sameiningu Keflavíkur, Njarð- víkur og Hafna var nokkur og verður hér aðeins litið aftur til þess tíma. Nafngiftin á hið nýja sveitarfélag átti sér líka aðdraganda og þar hitnaði hressileg í kolunum. Sennilega hefur hávaði í kringum bæjarstjórnarfund ekki verið jafn mikill hvorki fyrr né síðar en á fundinum 15. ágúst 1995 þegar nafngiftin var samþykkt. Tíðarandinn verður líka rifjaður upp með þremur bæjarfulltrúum úr fyrstu bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Drífu Sigfúsdóttur, sem var forseti bæjarstjórnar, Jóhanni Geirdal og Jónínu Sanders. Viðræður um fækkun sveitarfélaga á Íslandi varð hávær á árinu 1993 þegar ríkis- valdið hóf að leggja áherslu á sameiningu sveitarfélaga í hagræðingarskyni. Í 20 ára afmælisriti Reykjanesbæjar kemur fram að umræður hafi verið heitar á Suðurnesjum. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum lét því vinna skýrslu um hagkvæmi sameining- ar sveitarfélaga á Suðurnesjum. Niðurstaðan sýndi að sameining væri ekki hagkvæm á þessu stigi. Skýrslan var gagnrýnd og há- værar raddir urðu um að allar upplýsingar í málinu hefðu ekki verið lagðar fram. Hafnarbúar ákafastir til sameiningar, Njarðvíkingar tregastir Gengið var til kosninga 20. nóvember 1993. Niðurstöður hennar sýndu að íbúar í Kefla- vík, Njarðvík og Höfnum vildu sameiningu, þó Njarðvíkingar hafi verið tregastir til en 58% kjósenda samþykktu. Hins vegar vildu 98% þeirra Hafnarbúa sem kusu sameinast og 89% Keflvíkinga. Íbúar í hinu sveitar- félögunum fjórum á Suðurnesjum höfnuðu sameiningu. Í ljósi þessarar niðurstöðu þurfti að kjósa að nýju meðal íbúa í sveitar- félögunum þremur. Það var gert 5. febrúar 1994 og samþykkt með meirihluta atkvæða kjósenda. Hið nýja sveitarfélag gekk fyrst um sinn undir nafninu Keflavík, Njarðvík og Hafnir en umræður um nýtt nafn á sveitarfé- lagið hófust strax. Þar með hófst nafna- málið mikla og mönnum var heitt í hamsi. Margir vildu að sveitarfélagið héti Keflavík, þar sem það væri þekkt, m.a. út af Kefla- víkurflugvelli. Njarðvíkingar bentu hins vegar á að lofað hefði verið að finna nýtt nafn á sameinað sveitarfélag. Því var efnt til nafnakosningar 16. apríl 1994 og stóð valið um fimm nöfn: Suðurnes, Reykjanes, Hafnavík, Fitjar og Nesbær. Suðurnes hlaut flest atkvæði og voru margir íbúar svo vissir um að þetta yrði nafnið á bæinn, að farið var að nota Suðurnesjabær sem nafn á hið nýja sveitarfélag. Skemmtilegt að það skyldi svo notað á sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis. Sveitastjórnarkosningar fóru fram 28. maí 1994. Í sveitarstjórnarlögum er ákvæði þess efnis að ný sveitarstjórn taki við völdum 14 dögum eftir kosningar. Sá dagur bar upp á 11. júní sem er því stofndagur Reykjanesbæjar. Eins og sveitarfélagið hét bæjarstjórnin fyrst um sinn bæjarstjórn Keflavíkur-Njarðvíkur og Hafna. Fyrsti fundur bæjarstjórnar var haldinn 21. júní í fundarsal bæjarstjórnar á Tjarnargötu 12. Á þeim fundi var Drífa Sigfúsdóttir kjörin forseti bæjarstjórnar og Steindór heitinn Sigurðsson 1. varaforseti. Jónína Sanders var kjörin formaður bæjarráðs og Ellert Eiríksson ráðinn bæjarstjóri. Hann hafði gegnt embætti bæjarstjóra Keflavíkur. Nafnamálið varð hitamál Nafnakosning var kærð í tvígang en ákveðið var að niðurstaða kosninga sem fram fóru 8. apríl, samhliða alþingiskosningum, skyldi standa. Þá var einungis kosið um atkvæða- flestu nöfnin frá fyrri kosningu, sem var Reykjanesbær verður til Fyrsta bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Ljósm. Oddgeir Karlsson

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.