Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2019, Side 43

Faxi - 01.12.2019, Side 43
FAXI 43 Suðurnes og Reykjanes. Suðurnes hlaut 45% gildra atvæða og Reykjanes 55%. Alls 72% sem greiddu atkvæði skiluðu hins vegar auðu eða ógilduðu atkvæði sín, sem verður að teljast býsna hátt hlutfall. Nafnið Reykjanesbær var samþykkt í bæj- arstjórn 15. ágúst 1995 með níu atkvæðum gegn tveimur. Mikill styr stóð um fundinn og sennilega hefur bæjarstjórnarfundur ekki verið jafn hávær og þá. Í Víkurfréttum 17. ágúst var sagt frá þvi að vel á annað hundrað manns hefðu þeytt bílflautur utan við fundarsalinn í mótmælaskyni og þeir sem voru viðstaddir fundinn púuðu. Þeir vildu jafnframt að bæjarfulltrúar segðu af sér. „Hefði ekki verið gert í Sovét,“ var ritað í stóru letri á forsíðu blaðsins og þar vísað í ummæli Kristjáns Gunnarssonar bæjarfull- trúa á fundinum. Umræður bæjarfulltrúa um nafnamálið urðu líka heitar. „Ég get ekki búið við bæjarstjórn sem fyrirlítur lýðræði,“ er haft eftir Rúnari Júlíussyni tónlistarmanni í áðurnefndu tölu- blaði Víkurfrétta, og tók hann þá ákvörðun að selja húsið sitt. Hann hafði heitið því ef Keflavíkurnafninu yrði „hent á dyr“ eins og hann orðaði það. Rúnar fór þó hvergi og eins og hjá honum sjatlaðist nafnamálið með tímanum. Hann fann sér líka fljótt annað baráttumál, tvöföldun Reykjanes- brautar, sem er enn baráttumál. --- Nú verður kveikt á síðasta jólatrénu í Njarðvík Hvernig upplifðu bæjarfulltrúarnir Drífa Sigfúsdóttir, Jóhann Geirdal og Jónína Sanders þessa tíma? Það rifjuðu þau upp í ávarpi á hátíðarfundi sem bæjarstjórn hélt í Stapa á afmælisdaginn, 11. júní sl. og gáfu ritstjóra Faxa góðfúslegt leyfi til að birta hluta úr því. Hafa verður í huga að þau voru beðin um að hafa ávörp sín í léttari kantinum. Drífa Sigfúsdóttir: Í dag eru ekki margir bæjarbúar sem vita hvar mörkin milli bæjarfélag- anna Keflavík og Njarðvík voru en Steindór Sigurðs- son sagði ætíð að þegar þið akið í holuna – þá vitið þið að þið eruð komin í Keflavík! Hann sagði einnig að Hafnir hefðu sameinast Njarðvík árið 1990 ef það hefði ekki falið í sér að stjórnarmönnum í stjórn HS hefði fækkað um einn. Upp úr 1990 jókst þrýstingur á að skoða sameiningu og í tíð Jóhönnu Sigurðardóttur, sveitar- stjórnarráðherra var stofnaður starfshópur til að vinna að sameiningu sveitarfélaga og Ellert Eiríksson f.v. bæjarstjóri valdist m.a. í starfshópinn. Hann sagði gjarnan að hann væri meðreiðarsveinn Jóhönnu enda ferðaðist hann víða um land til að boða fagnaðarerindið. Ég hef alla tíð verið fylgjandi sameiningu sveitarfélaga og á þessum tíma reiknaði ég út sparnað fyrir íbúana ef við fækkuðum bæjastjórum, bæjarriturum, nefndum o.fl. Þessar skoðanir féllu mismikið í kramið hjá fólki. Í fjölskylduboðum hjá fjölskyldu eiginmannsins varð tómarúm í kringum mig enda fengu þau það með móður- mjólkinni hve vondir Keflavíkingar væru. Föðurbróðir hans var Karvel Ögmundsson, sá er áður hafði slitið samstarfi Keflavíkur og Njarðvíkur vegna ágreings um rafmagn. Hann varð reyndar sá fyrsti í fjölskyldunni á að jafna sig á sameiningunni en það tók lengri tíma fyrir marga. Skömmu fyrir kosningar um sameiningu sveitarfélaganna á Suðurnesjum bauð Finn- bogi Björnsson mér á fund til að ræða um sameininguna hjá Kíwanisklúbbnum í Garði ásamt Sigurði Ásbjörnssyni bæjarstjóra í Sandgerði. Ég tók fljótt eftir að ræða mín féll í grýttan jarðveg enda kom í ljós að allir félagsmenn voru algjörleg á móti sam- einingunni. Jóhann Geirdal: Þetta var á margan hátt spennandi og skemmtilegur tími með hæfilegri blöndu af gleði, átökum og miður skemmtilegum atburðum sem allir leystust þó vel á endanum. Þegar hugsað er til baka á þessi lýsing eflaust oft við en ég held ég geti fullyrt að Úrklippa úr Víkurfréttum 17. ágúst 1995 þar sem fjallað var um bæjarstjórnarfund Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna þar sem nafn Reykjanesbæjar var ákveðið.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.