Heimsmynd - 01.09.1986, Síða 72

Heimsmynd - 01.09.1986, Síða 72
HULDA HÁKONARDÓTTIR ennþá meira mál fyrir þær sem hafa ekki alist upp við ofbeldi og djöflagang. Mér fannst hins vegar engin skömm að því að fara og ég þorði alveg að segja fólki frá því hvar ég væri. Sterkasta til- finningin sem ég fann fyrir var þakklæti. Þakklæti yfir að það skyldi vera hægt að komast á svona stað og komast að því í leiðinni að maður er ekki einn í svona tilfinningabasli. Það var líka gott og heil- mikill lærdómur að geta rætt málin við hinar konurnar. Mér fannst við flestar eiga það sameiginlegt að drykkja á heim- ilinu er aðalorsakavaldurinn. Þegar menn eru búnir að drekka ákveðið magn eru þeir komnir með svo mikil geðræn vandamál. Það verður á þeim persónu- leikabreyting, sem oft er miklu erfiðara að vinna á en að setja tappann í flöskuna. Alltof margar konur virðast halda að þær þurfi að koma allar lemstraðar til þess að fá inni í Athvarfinu. Það er mesti misskilningur því það er hægt að kvelja mann á svo margan hátt og þó að oft sé þröngt í Athvarfinu er samt alltaf pláss. Eitt af því, sem mér fannst ómetanlegt þar, var að í seinni skiptin sem ég var þar var kominn barnastarfsmaður. Yndisleg manneskja, sem krakkarnir elskuðu. Og hvað sjálfa mig varðar, þá liggur mér við að fullyrða að veran í Kvennaathvarfinu hafi bjargað geðheilsu minni á þessum tíma.“ -En það kom ekki til greina að fara í foreldrahús? „Ég hef verið spurð að þessu áður og mín svör eru þau að það sé vísasta leiðin til þess að enda aftur heima í óbreyttu ástandi. Ég var búin að reyna að leita til ættingja áður en ég fór í Athvarfið. Allir vilja ráða manni heilt og ráðskast með mann, sem gerir mann bara ráðvilltari. í Athvarfinu gat ég hugsað málin sjálf í næði. Svo eru fjölskyldur auðvitað ólíkar og það getur verið bæði óþægilegt og niðurlægjandi að þurfa að setjast upp hjá skyldmennum, sem búa kannski við mis- jafnar aðstæður til þess að taka við nið- urbrotinni konu með barnahóp og óðan mann á hælunum. Konum gengur líka misjafnlega vel að koma undir sig fótunum og þó að maður eigi ekki að alhæfa svona, þá finnst mér, af því sem ég hef séð að dæma, stelpunni í fiskinum oft takast það betur en konu forstjórans. Stelpan í fiskinum er vön að þurfa að sjá um sig sjálf. Kona forstjór- ans er miklu háðari karlinum, allt er á hans nafni og hún er búin að vera svo lengi í feluleiknum að henni gengur enn verr að horfast í augu við sjálfa sig. Kon- ur, sem eiga menn í áberandi stöðum, virðast líka stundum hafa af því áhyggjur að þær séu að kasta rýrð á nafn mannsins með því að viðurkenna að hann mis- þyrmi þeim. Samt skil ég þetta allt vel. Maður missir alla viðmiðun í svona ástandi. Þú reynir að velta fyrir þér mál- unum og finna einhverja lausn; en því meira sem þú hugsar því þrengri verður hringurinn. Svo verður þú svo hrædd að þú getur ekkert gert.“ Eftir viku í Kvennaathvarfinu treysti hún sér samt ekki til annars en að fara heim aftur. „Ég var í vinnu, með börn í skóla og vissi að við fengjum hvort eð er aldrei frið.“ Ástandið fer stigversnandi; drykkjan og ofbeldið aukast, hún „frýs“ alltaf meira og meira, hann hættir að vinna, „lifir á plastinu“, en getur samt ekki hugsað um yngri börnin „af því að það var svo mikið að gera hjá honum við að gera ekki neitt.“ Um haustið fer hún aftur í Athvarfið eftir að hann hefur ráðist á hana - hún man ekki lengur af hverju - en flytur heim eftir nokkra daga þegar hann fer í meðferð. Elann kemur heim „útskrifaður“ og segist vera „búinn að læra að drekka“. Galdurinn sé sá að drekka aldrei daginn eftir. Eftir því fer hann í einhvern tíma en ástandið skánar lítið frá hennar bæjar- dyrum séð og aftur vill hún skilja. „Það er talað um að alkóhólistinn þurfi að finna sinn botn,“ segir hún „en ég held að hinn aðilinn þurfi það ekkert síður og ég var komin niður á minn. En hann vildi ekki skilnað, var reyndar alltaf mjög brotinn eftir að hann hafði sleppt sér, og þetta lafði svona mánuðum saman. Ein- staka sinnum reyndum við að vera eins og venjuleg hjón og fara til dæmis út saman. En það er ekkert gaman að slíku þegar maður veit að það er fyrirfram dauðadæmt." Um áramótin féll síðan reglan um að drekka ekki nema einn dag í einu endanlega úr gildi. Eftir nokkurra sólarhringa fyllerí kemur hann heim og segist allt í einu vilja skilja. Hann flytur út í bæ en aldrei allur ... er alltaf með annan fótinn heima. Hann er kominn með vinkonu úti í bæ. „Það besta sem hann gat gert mér. Ég mátti passa mig að hrópa ekki húrra.“ En hann heldur áfram að koma heim og hún þorir ekki að skipta um lása. „Það er svo auðvelt að sparka upp einni hurð.“ Sama sagan endurtekur sig með ýms- um tilbrigðum þangað til eina nótt í fyrra að nágrannarnir verða að ganga á milli. Hún flýr í Athvarfið og er þar í hálfan mánuð. í þetta sinn skilur hún við hann. Nú á hún ekkert nema „búslóðina og börnin“. En hann hættir ekki að ógna henni þó hann sé nú hættur að drekka og hún hefur enga tölu á því hve oft hún hefur þurft að biðja um lögregluvernd. Hann hótar að stytta þeim báðum aldur og hefur reynt hvort tveggja. Hún hefur ver- ið „heppin" hingað til. Fólk hefur komið henni til bjargar og lögreglan er inni í málinu og fljót á staðinn þegar hún veit að hann er annars vegar. Hræddust af öllu virðist hún næstum vera við það sem hann kann að gera sjálfum sér til að ná sér niðri á henni. Hann er búinn að slasa sig einu sinni. Lét hana vita áður svo hún væri ekki í vafa um að það væri henni að kenna. Aðkoman var ljót en hann lifði. Þegar hún kom til hans á spítalanum brosti hann til hennar. „Ég sé hana ekki,“ segir hún þegar ég spyr hana hvernig hún sjái framtíðina fyrir sér. 72 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.