Heimsmynd - 01.09.1986, Blaðsíða 84
AD
vera Hemingway-isti er aö
sofa í klukkutíma eftir dúndurdrykkju
döur en maöur vaknar í bygginga-
vinnuna og hugsa sem svo: Fapa
heföi Idtiö sig hafa þaö.
margar hverjar ágætar, en samt orðnar
undarlega stirðar og úr sér gengnar.
Gamli maðurinn og hafið, ekkert annað
en skopstæling gamals höfundar á fyrri
verkum. Nei, nú á að láta Ernest fá einn
á magann, og fylgja högginu eftir með
einum undir hökuna svo gamli Ernest
skalli gólfið og rísi helst ekki upp á ný.
Og ekki er hann viðstaddur til að verja
sig með nýjum bókum eða gamaldags
kjaftshöggi. Hann sendi eitt sinn bók-
menntamanni flugmiða til Kúbu og flug-
miðanum fylgdi stuttaralegt bréf: Þú ert
velkominn að mæta kæri vinur, hvenær
sem þú vilt og svo lokum við okkur inni í
gluggalausu herbergi báðir tveir og
sjáum til hver kemur út á undan.
Ókjör nýrra bóka hafa komið út á
seinni árum fyrir tilstilli ekkju hans,
Mary. Hálfpartinn undrar mann að hún
skuli láta sig hafa það. Ernest Heming-
way lét eftir sig skjal þar sem hann bað um
að sínar gömlu og óútgefnu bækur yrðu
aldrei prentaðar. Hvað þá að tínd yrðu til
sendibréf. Hann sagði: enginn hefur rétt
til að grafa upp slíkt dót, til þess að hinir
og þessir geti síðan borið það saman við
þann texta sem ég hef bestan samið. En
öll þessi fyrirmæli hefur ekkjan hundsað
og mætti segja mér að hún fengi: „gú-
moren á latínu" ef Ernest kæmi aftur
heim. Papa hefði orðið að fá frí frá fjöl-
skyldu og vinum. Hann hefði skroppið til
Perú eða Spánar og lent þar á öðru fyller-
íi með kunningjum, tafist síðan við
glampandi silungsá, og áður en hann
vissi, þá var kominn tími til að drífa sig
heim til Miss Mary og heilsa upp á hana
og fjölskylduna, en hvað er nú þetta,
Mary er búin að gefa út gömlu bréfin, og
krítikerar hafa haldið stórveislu, og skrif-
að langar greinar um hvað bréfin nú eru
þunn, og heimskuleg, og illa samin, og
ömurleg sem framast má verða, og varla
pappírsins virði.
Og gamli vinurinn Hotchner er búinn
að skrifa bók, sem heitir Papa Heming-
way. Hann segir svo ansi skilmerkilega
frá ofsóknarbrjálæðinu: Tveir banka-
menn voru að vinna eftirvinnu að kvöldi
til og Ernest hélt að þeir væru F.B.I.-
agentar að njósna um sig.
Á öðrum stað segir Hotchner: Papa?
Hvers vegna viltu fremja sjálfsmorð. Og
Hemingway svaraði: Hvað heldur þú að
verði um mann sem er orðinn sextíu og
tveggja ára, þegar hann gerir sér það
ljóst að hann muni aldrei skrifa þær sög-
ur og þær bækur sem hann lofaði sjálfum
sér að honum skyldi takast að semja?
Mary samdi bók. Litli bróðir samdi
bók. Stóra systir aðra. Sonurinn Gregory
eina til. Og skruddur eftir hinn og þenn-
an mundu duga til að fylla eina venjulega
íslenska hansasamstæðu.
Sem betur fer brást allt þetta fólk
trausti gamla mannsins, maður blaðar í
84 HEIMSMYND