Heimsmynd - 01.03.1991, Side 19

Heimsmynd - 01.03.1991, Side 19
UPPLJÓSTRANIR MARGRET A UTOPNU ... FRAMLAG ISLANDS I PERSAFLOADEILUNNI Seinheppni ráöherrann. JÚLÍUS OG JEPPINN Arshátíð stjórnarráðsins var haldin með pompi og pragt á Hótel íslandi þann 25. janúar. Hljómsveit Onnu Vilhjálms lék fyrir dansi, ráð- herrar völsuðu um gólfin og Spaugstofumenn skemmtu gestum á sviðinu í gervi þeirra. Nokkur hundruð starfsmenn ráðuneytanna og makar mættu prúðbúnir til að hlusta á Júlíus Sólnes flytja hátíðarræðu kvöldsins. Þá fyrstu og síðustu, hugsuðu ef til vill margir, þar sem Júlíusi umhverfisráðherra er ekki spáð löngum lífdögum í stjórnmálum. Fylgi Borgara- flokksins mælist vart og fáir búast við því að flokkurinn nái þingmanni inn í næstu kosningum. Júlíus Sólnes var mikill sjálfstæðismaður áður en hann gekk til liðs við Borgaraflokkinn og síðar ríkjandi vinstristjórn. Upp úr krafsinu hafði hann ráðherra- embætti og fínan jeppa, sem vakið hefur mikla athygli. Um síðustu páska velti Júlíus jeppanum. Vitni að atburðin- um segja jeppann hafa oltið á hliðina farþegamegin og því hafi ráðherrann getað rúllað rúðunni sín megin niður, stokkið bísperrtur upp um gluggann eins og skriðdreka- foringi og sagt: Allt í lagi með mig, allt í lagi með mig. Síðan stökk hann út úr bíln- um, gekk í kringum jeppann og sparkaði í hann hér og þar með þeim ummælum að þetta væri nú minnsta mál. Sjónarvottar mátu skemmd- irnar á bilinu 150 til 200 þús- und krónur, þar sem sú hlið á bílnum, sem niður sneri, var ónýt. Nú er búið að gera við bflinn og spurning hvort Júlíus geti ekki haldið honum áfram eftir næstu kosningar. Þá mætti hugsa sér að jepp- inn gæti verið framlag Islands til fjölþjóðahersins við Persa- flóa. Þessi rándýri jeppi er útbúinn stórflóknum meng- unarvarnarútbúnaði þannig að Júlíusi ætti ekkert að vera að vanbúnaði að vera í fremstu víglínu nálægt brenn- andi olíulindum og nota þennan merka útbúnað til að hreinsa eiturgufurnar úr efnavopnum úrvalshers Saddams. SENUFÍKLAR I nýútkominni bók sinni um Stöðvar 2-ævintýrið verður Jóni Óttari Ragnarssyni, fyrrum sjónvarpsstjóra, tíð- rætt um senufíkla, fólk sem njóti þess að vera í sviðs- ljósinu. Skömmu áður en Stöð 2 var sett á laggirnar sagði Helgarpósturinn sál- ugi frá því að Jón Óttar Ragnarsson hefði sett það sem skilyrði, veitti hann blaðaviðtai, að hann yrði á forsíðu við- komandi blaðs. í bók- inni birtir hann mynd af einni slíkri forsíðu þar sem hann er ásamt kær- ustu sinni en honum verð- ur tíðrætt um konurn- ar í lífi sínu í þessari títt- nefndu bók og hafa þær konur einnig skreytt for- síður blaða og tímarita. Nú bregður svo við að myndir birtast af ungri konu sem starfað hefur á Aðalstöðinni og er að flytja sig um set yfir á Rás 2. Morgunblaðið var með frétt um hana, Pressan og fólk á örugglega eftir að heyra meira frá Margréti Hrafnsdóttur. Blaðamanni HEIMSMYNDAR fannst hún forvitnilegt viðtalsefni af ýmsum ástœðum og fal- aðist eftir viðtali. Margrét sagðist ekki vilja koma í viðtal nema hún fengi að vera á forsíðu tímaritsins. Blaðamaðurinn tjáði henni að slík skilyrði væru aldrei samþykkt. Skömmu síðar féllst hún á að koma í viðtal án nokkurra vilyrða. Blaða- maðurinn afhenti viðtalið á ritstjórn blaðsins nokkrum dögum síðar. f umræddu viðtali varð Margréti tíð- rætt um senufíkla, frjálsar útvarps- og sjónvarpsstöðv- ar, andúð sína á menning- arsjóði útvarpsstöðva og fleiri mál sem hefta að hennar mati markaðsskil- yrði frjálsu stöðvanna í samkeppni við ríkið. En þegar hér var komið við sögu segir Margrét þessum blaða- manni að fleiri tíma- rit séu á höttunum eftir henni og hún sætti sig ekki við minna en forsíðu. Blaðamað- urinn minnir hana á að hún hafi fallið frá öllum slík- um skilyrð- um áður en viðtalið var tekið og HEIMSMYND taki aldrei viðtöl á þessum forsendum. Margrét lét þau rök sem vind um eyru þjóta: Forsíðan ellegar ekk- ert viðtall Við það varð blaðamaðurinn að sætta sig og að nokkurra daga vinna væri farin í súginn. Von- andi mætir Margrét sjálf ekki þessum vinnubrögðum á vegi sínum í hörðum heimi fjölmiðlanna. Eða mega viðmælendur ríkisút- varpsins búa sig undir það að vera lofað topptíma í kvöldfréttunum mæti þeir í viðtal hjá Margréti á rás- inni? HEIMSMYND 19

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.