Heimsmynd - 01.03.1991, Page 91
A special section
on global affairs prepared for
Heimsmynd
r
TheWorldPaper
BÓKHALDARAR HALDA UM TAUMANA
Spekingar
markaðstorgsins
; • V .V.v v
EFTIR NlGEL ADAM í London, Bretlandi
Góðlátlegur Walesbúi, Keith Burgess, er einn í hópi þús-
unda kaupsýslumanna sem helltust yfir Moskvu á síðasta
ári. Eins og flestar aðrar stórborgir í Sovétríkjunum er höfuð-
borgin umsetin vestrænum kaupsýslumönnum sem hafa ákafar
væntingar um hagsbætur af perestrojkunni.
Burgess kom með flugi frá London, þar sem hann stjórnar
Andersen Consulting, sem er útibú frá bókhaldsfyrirtækinu
Arthur Andersen í Chicago, og sérhæfir sig í ráðgjöf um stjóm-
un fyrirtækja. Hann sneri heim aftur að nokkrum dögum liðn-
um með óvenjulegt verkefni fyrir Moskvu sovétið: Að ráðleggja
borgaryfirvöldum hvemig þau gætu bætt heldur slitrótt dreifing-
arkerfi brauðs svo að það kæmist í búðir.
Andersen tók brauðdreifingarkerfið þegar til skoðunar og er
nú með vinnuhóp í Moskvu sem á að sjá um að ráðleggingum
hans sé framfylgt. Þær ráðleggingar eru víðtækar, allt frá því að
auka framleiðni í brauðgerðum til bætts pantanakerfis í brauð-
búðunum.
„Við ákváðum að skoða kerfið í heild sinni í stað þess að
búta það niður og skoða afmarkaða parta eins og Sovétmenn-
^irnir höfðu gert,“ sagði Burgess.
Stóru bókhaldsfyrirtækin eru nú afl á heimsmælikvarða og
ná nú inn á svið kaupsýslu sem var ókannað land fyrir
aðeins einum áratug. Núna er bókhaldara frá einhverj-
um þeirra, sem kallaðir eru ,,Þcir sex stóru“, að finna
heimshomanna á milli að gefa ráð um jafngerólík
verkefni og brauðdreifingu í Moskvu og einkavæð-
ingu í Argentínu.
Orðið „bókhaldari“ á vart við lengur þar sem
þessi stóru fyrirtæki fást við margvísleg verkefni
sem eru langt umfram það sem hingað til hef-
ur verið kallað „bókhald".
framhald á nœstu síðu
s i
HEIMSMYND 91