Heimsmynd - 01.02.1992, Síða 10

Heimsmynd - 01.02.1992, Síða 10
w w STJORNMAL/eftir Guömund Einarsson ÉG ÞURFTI AÐ FÁ MÉR JAKKAFÖT - Því þingmenn eru alltaf í veislum með fullt af bitlingum, allt frítt og rosalegt kaup! Guðmundur Einarsson sat á Alþingi fyr- ir Bandalag jafnaðarmanna og síðar Al- þýðuflokkinn. Hann var áður háskóla- kennari og rifjar upp breytinguna sem það hafði í for með sér að setjast á þing. Guðmundur er nú aðstoðarmaður Jóns Sigurðssonar viðskipta- og iðnaðarráð- herra. Er þingmannslífið draumur hins djarfa manns? Þaö vantar ekki að nógu margir virðast vilja koma sér í það. Það er meira framboð en eftirspurn. En hvers vegna er þessi sókn eftir að komast í framboð? Er það vegna valdanna eða launanna? Er búið að búa til einhverja mynd af þingmannslífinu eins og sjó- mannslífinu. Fjör og peningar? A meðan fimmtudagsþátturinn á frí- vaktinni var næstum eini danslagaþáttur- inn í ú'tvarpinu stóð maður í þeirri trú að sjómenn hefðu það allra manna best. Þeir voru eina atvinnustéttin sem hafði heilan óskalagaþátt út af fyrir sig. Það var líka líf og fjör og maður heyrði hvernig þeir „slógu upp balli á bryggj- unni eitt sinn“, og sögðu svo „vertu sæl mey“ og fengu sér „nýja í næstu höfn“. Svo heyrðust líka sögur af rosalegum tekjum og þær heyrast enn. Sjómenn eru hátekjumenn, sagði sagan. En sjómennirnir segja sjálfir að það sé önnur hlið á málinu. Slorið, kuldinn og kvenmannsleysið. Og þeir segja að kaupið sé oftast lágt, að minnsta kosti alltaf óvíst, því þeir rói upp á hlut. Og þeir minna á að margir þeirra eru lengi að heiman í burtu frá fólkinu sínu. En hvernig er þetta með líf þingmann- anna? Þeir hafa aldrei verið með dans- lagaþátt. Þó eru þeir alltaf í útvarpinu með öðruvísi lög, sum hver engin óskalög að vísu, sem fólkið í landinu dansar eftir. En er jafngaman hjá þingmönnum og sjómönnum? Og eru þeir jafnríkir? Það skilst manni. f útvarpi og sjónvarpi eru þeir vaskir og glaðlegir. Það „gustar um sigluna kalt“ í þinginu, rifrildi og hlátra- sköll. Svo eru þeir alltaf í veislum, með fullt af bitlingum, allt frítt og rosalegt kaup. En þingmennirnir segja sjálfir að það sé önnur hlið á málinu, slúðrið, atið og öryggisleýsið. Þeir segja að kaupið sé ekki hátt, og þótt vinnudagurinn sé lang- ur, fái þeir aldrei yfir- og næturvinnu- kaup. Og margir eru lítið heima. Menn verða víst aldrei sammála um það hvernig þingmannslífið er. Af minn- ingabókum að dæma er það harla gott. Guðmundur Einarsson. Fyndnir, gamlir þingmenn, sem farnir eru af þingi, lýsa pví þannig að það hlýt- ur að vera skemmtilegt. Líklega eru allir þingmenn, líka núverandi, sammála um að Alþingi sé frábært eftir á. Þannig er margt af því góða í lífinu. Smala- mennska, fjallgöngur og vetrarvertíð eru góð eftir á. En hvernig er Alþingi á meðan á því stendur? Er það glymjandi orðaskylm- ingar og gneistandi tilsvör? Er það hreint og nýstrokið, hrópandi ferfalt húrra fyrir forseta vorum og fósturjörð? Nei, ekki alltaf. Stundum er það hug- myndasnautt og þvermóðskufullt. Það gneistar ekkert af þingmanni, sem búinn er að vera með bandorminn í brjóstvas- anum í þrjár vikur, náði samkomulagi um að lækka 1.57 prósent í 1.54 prósent eftir langar deilur í nefnd og tókst að breyta og í eða og aftur í og eftir tveggja klukkutíma deilur í þingflokksfundi. Og í bullandi málþófi á þriðja nætur- fundinum í röð er þingmaður ekki þveg- inn og strokinn. Og hann hrópar ekki ferfalt húrra fyrir neinum, ekki einu sinni tvöfalt. Hann þegir og dottar í stólnum. En allt þetta amstur og basl með ut- andagskrárumræðum, þingsköpum og öllu saman er auðvitað þolanlegt ef þingmenn eru á jafn háu kaupi og allir segja. Og svo eru þeir víst vaðandi í aukapeningum fyrir allskonar stjórnir, nefndir og ráð. Ég varð eitt sinn þingmaður og hafði áður kennt uppi í Háskóla. Ég hækkaði í launum við að fara á þing, að minnsta kosti ef ég tók ekki yfirvinnuna í kennsl- unni með í reikninginn. En svo fóru að koma nýir útgjaldaliðir. Ég þurfti að fá mér jakkaföt, þau fyrstu í sjö ár, því ekki dugði að vera eins og larfur til fara. Það fóru meiri útgjöld í fatapressun á mánuði en áður á heilu ári. Svo ég minnist nú ekki á merkin og happadrættismiðana, sem engin leið var að koma sér undan að kaupa. Alþingis- menn eru auðveld bráð fyrir góðverka- sölumenn og einn mánuðinn fóru þrjú þúsund krónur í þennan lið. Og leigubíl- ar heim af næturfundum. Og matur á veitingahúsum í kringum fundahöld úti á landi. Og . . . Útkoman varð auðvitað sú að ég komst ekkert betur af en áður. Og afhverju komu bitlingarnir ekki? Það kaus mig enginn í bankaráð. Enginn kaus mig í útvarpsráð, stjórn Landsvirkj- unar eða neina aðra stjórn. Þannig er það líka með flesta þingmenn. Þeir eru aldrei kosnir í neitt, nema þetta Alþingi og sumir eru ekki einu sinni kosnir á það aftur.D 10 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.