Heimsmynd - 01.02.1992, Page 25
'
r
finA Stutt sparikápa sem gengur
■ bæði að degi og kvöldi. Þær
eru til úr silki og vatteruðu satíni eins og þetta
sýnishorn frá Frank Usher. í stað kápu af þessu
tagi má nota sígildan rykfrakka, jafnvel með
fóðri, sem hægt er að hneppa úr.
2. Stutt betri kápa, jafnvel úr silki,
sem gengur bæði að degi og kveldi.
Teikningin er af Gucci silkikápu. Annar
valkostur og ugglaust hentugri í íslenskri
veðráttu er rykfrakki með fóðri sem
hægt er að hneppa úr þegar hlýrri mán-
uðir ganga í garð.
3. Kvöldkjóll. Já, hví ekki að eiga
einn síðan, sígildan með þunnum shif-
fonermum en svörtu jersey í bol og
þröngu pilsi. Kjóll, sem kemst nærri því
að vera sígildur. Teikningin er eftir
Geoffrey Beene. Fyrir þær hugmynda-
ríku má benda á góðar saumakonur,
góð efni og góðar fyrirmyndir úr
tískublöðum. Fyrir þær sem telja
ekkert hafa með síðan kjól að gera
má benda á litla, svarta kvöld-
kjólinn. Hann þarf meira segja
ekki að vera svartur. Slíkir kjól-
ar hafa gert sitt gagn lengur en
elstu tískuhönnuðir og flestar
konur muna.
4. Dragt er einkennisbúningur
nútímakonunnar. Einföld, einlit
dragt eins og þessi fyrirmynd eftir
Armani sýnir er hægt að nota næstum
hvar sem er. Aðskorinn síður jakkinn er
mjög klæðilegur. Á daginn má nota ein-
faldan silki- eða baðmullarbol undir og
aðskorinn blúndubol á kvöldin.
5. Falleg kvöldblússa við þröngar síð-
buxur. Þessi fyrirmynd er frá Calvin
Klein. Blússan er úr gagnsæju silki yfir
hvítum þröngum bol.
6. Þar sem dragtin er einkennisklæðn-
aður nútímakonunnar er heppilegt að
eiga eina buxnadragt til viðbótar. Þessi
dragt er teiknuð af Calvin Klein. Jakk-
KJÓLLINN.
Einn síður kjóll í klæðaskápnum þarf að vera mjög sí-
gildur. Þetta sýnishorn til hægri af aðskornum þröng-
um svörtum kjól með víðu shiffonpilsi er frá Christian Lacroix. Margar láta sár
nægja að eiga einn stuttan sparikjól en litli svarti kjóllinn er eitt sígildasta
bæri tískunnar á þessari öld. Þessi sýnishorn eru frá Calvin Klein, Laurel
Louis Féraud sem lífgar upp á svarta kjólinn með bleikum
Georgio Armani er þeirrar skoðunar að litli samkvæmiskjóllinn megi
hvítur eins og þessi blúndukjóll á myndinni.