Heimsmynd - 01.02.1992, Qupperneq 37

Heimsmynd - 01.02.1992, Qupperneq 37
dagblað Bretlands, birti viðtal við hinn látna, fengið í gegnum miðil. í viðtalinu tilkynnti Maxwell að hann sæi ekki eftir neinu og að peningarnir væru geymdir í vörugeymslu í New York. „Nafn Roberts Maxwell mun ekki gleymast," sagði andi hins látna. Þetta ógleymanlega nafn var í raun það fjórða sem auðjöf- urinn hafði valið sér. Ludvik Hoch, eins og hann hét þá, fæddist sem fátækur gyðingadrengur í þorpinu Solotvino í austurhluta Tékkóslóvakú árið 1923. Helsta keppikefli hans í þá daga var að eignast skó, skýrði hann frá síðar. Er seinni heimsstyrjöldin skall á missti hinn ungi Ludvik næstum alla fjölskyldu sína í útrýmingarbúðum nasista. Sjálfur komst hann lífs af til Bretlands og skipti um nafn. Áður en hann datt niður á Maxwell-nafnið kallaði hann sig Leslie du Maurier eftir merki á sígarettutegund og síðar Leslie Jones. Flóttamaðurinn ungi gekk í breska herinn. Barðist hann af miklu hugrekki og fékk heiðursmerkið Military Cross árið 1945. Var hann mjög stoltur af þessum heiðri og titlaði sig ávallt Robert Maxwell MC. Á stríðsárunum hitti hann hina frönsku eiginkonu sína, Betty. Á brúðkaupsmynd þeirra er Maxwell ungur og glæsi- legur herforingi og næstum óþekkjanlegur í samanburði við þann afdankaða fituhlunk sem hann síðar varð. Eftir stríðið fór Maxwell að fikra sig áfram í viðskiptalífinu. Árið 1951 var hann orðinn nægilega stöndugur til að setja lítið útgáfu- fyrirtæki á laggirnar en það var Pergamon Press. Pá var hann þingmaður fyrir breska verka- mannaflokkinn um árabil. Fyrsta fjármálahneykslið á ferli hans kom seint á sjöunda áratugn- um þegar Maxwell seldi Perga- mon. Bandaríski kaupandinn ásakaði Maxwell um að hafa gefið villandi upplýsingar um verðgildi fyrirtækisins. I skýrslu frá opinberri rannsókn á málinu var því lýst yfir að Robert Maxwell væri „ekki hæfur til þess að vera við bústjórn fyrirtækis (publicly quoted)“ - orð sem margir áttu eftir að muna seinna meir. Einn höfundur skýrslunnar sagði nýlega: „Mér fannst þá að hann væri sá mesti þrjótur sem ég hefði nokkru sinni hitt. Honum var alveg fyrirmunað að skilja muninn á sínu eigin fé og annarra." í byrjun áttunda áratugarins virtist framtíðin ekki brosa við útgefandanum. Honum tókst þó að festa kaup á Pergamon aftur árið 1974. Á þeim grunni hóf hann uppbyggingu við- skipta og síðar heimsveldis síns. Hann ferðaðist um heiminn og keypti hvert fyrirtækið á fætur öðru, prentsmiðjur, sjón- varpsstöðvar, dagblöð, lyfjaframleiðslufyrirtæki og tölvufyrir- tæki. Allir vissu að þetta heimsveldi var bæði stórt og flókið í sniðum en fáa grunaði að það hefði verið sett saman þannig af ásettu ráði til þess að breiða yfir grunsamlegar og í flestum til- vikum ólöglega viðskiptahætti. Einkalíf Maxwells var einnig hverfult. Maxwell-hjónin eign- uðust átta börn. Elsti sonurinn, fluggáfaður og efnilegur ung- ur piltur, lenti í bílslysi fimmtán ára og lá í dái þar til hann lést nokkrum árum síðar. Ein dóttirin dó þriggja ára úr hvítblæði. Af eftirlifandi börnum er elsti sonurinn Philip hlédrægur eðlis- fræðingur sem kom lítið sem ekkert nálægt viðskiptum föður síns. Tvær dætranna fóru sínar eigin leiðir, ein varð kennari og hin leikkona. Pað voru þrjú yngstu börn Maxwells sem voru í sviðsljósinu. Ian og Kevin unnu báðir í fyrirtækjum föð- ur síns. Yngsta barnið var hin fallega og dekraða Ghislaine, augasteinn föður síns en gælunafn hans á henni var Benjamin (samanber nafn yngsta sonar Jakobs í Gamla testamentinu). Snekkjuna sína skírði Maxwell Lady Ghislaine í höfuðið á dóttur sinni. Þessi snekkja, þar sem Maxwell mætti örlögum sínum, var aðeins eitt leikfangið til viðbótar í safni milljónamæringsins. Fáir léku hlutverk auðkýfingsins eins vel og hann. Höfuð- stöðvar hans voru ættarsetrið í Headington Hall í Oxford en hann átti ótal aðrar eignir um allan heim, þar á meðal kastala í Suðvestur-Frakklandi og glæsilega villu í Búlgaríu. Sagt var að hann hafi fengið villuna í staðinn fyrir grunsamlegan greiða sem hann gerði fyrrverandi harðstjóra þar. Á efstu hæð aðalstöðva Mirror Group í London var geysi- lega stór og konungleg skrifstofa Maxwells. Starfsfólk talaði af lotningu um níundu hæðina. Á þakinu var lendingarstaður fyrir einkaþyrlu hans. Þegar starfsfólk heyrði hreyflahljóð á þakinu kallaði einhver háðfugl, „the ego has lartded“ (egóið er lent, orðaleikur sem byggir á titli reyfarans The Eagle has landed). Það er ekki hægt að segja um Maxwell að hann hafi verið vinsæll meðal starfsmanna sinna. Honum var oft líkt við Cit- izen Kane, eigingjarna blaðakónginn sem Orson Wells gerði ódauðlegan í samnefndri kvikmynd. Afskiptasemi hans af rit- stjórnum blaða sinna fór mjög fyrir brjóstið á mönnum. Maxwell sótti fast að fá fréttir um sjálfan sig eða eigin starf- Maxwell ásamt sonum sínum lan og Kevln. Hann gerði miklar kröfur til sonanna sem áttu að taka við stórveldi hans. Þeir urðu fyrir barðinu á óhefluð- um skapsmunum hans en sýndu stillingu og yfir- vegun þegar til tíð- inda dró. semi í blöðum sínum Á European minntust menn þess þegar fyrsta tölublaðið kom út. A forsíðunni var einkafrétt um leynilega herflutninga til Austur-Þýskalands. Á síðustu stundu birtist Maxwell á fréttadeild blaðsins og heimtaði að forsíð- unni yrði breytt. Aðalfréttin skyldi vera um niðurstöður nýrr- ar skoðanakönnunar sem voru nauðaómerkilegar. Frétta- punkturinn að mati Maxwells var sú staðreynd að fyrirtækið sem gerði skoðanakönnunina var í hans eigu. Sem vinnuveitandi var hann ekkert lamb að leika við. Hann átti það til að strunsa inn í skrifstofur án nokkurs fyrirvara og sæti fólk aðgerðalaust var það rekið á stundinni. Hann var óútreiknanlegur. Eina stundina virtist hann léttur og gaman- samur en þá næstu ógnvekjandi og skuggalegur. Á sekúndu- broti gat hann svipt af sér ham skrímslis og orðið að góðleg- um, örlátum og höfðinglegum manni. Háttsettur starfsmaður hans sagði mér sögu sem lýsti þess- um þáttum í fari Maxwells vel. Eitt sinn kom Maxwell að máli við þennan yfirmann í fyrirtækinu og bað hann að fara í við- skiptaferð til útlanda. Maðurinn sagðist því miður ekki geta farið. Maxwell, sem var alltaf fremur orðljótur, bölvaði hon- um í sand og ösku áður en hann tilkynnti honum að hann væri rekinn. Þegar aumingja maðurinn komst loks að skýrði hann fyrir Maxwell af hverju hann gæti ekki farið í þessa viðskipta- ferð, hann þyrfti að heimsækja móður sína, aldraða ekkju sem væri að gangast undir augnaðgerð. „Því sagðir þú þetta ekki strax?“ öskraði auðjöfurinn. „Ég er með góðan augnlækni í framhald af bls. 78 HEIMSMYND 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.