Heimsmynd - 01.02.1992, Page 62

Heimsmynd - 01.02.1992, Page 62
sitt sem ráðvillt, bæði á hvíta tjaldinu og í einkalíf- inu. Kvikmyndin Sleeping with the Enemy rakaði inn 98 milljónum dollara og framleiðendur voru að von- um ánægðir. Hinn skjóti frami reyndist ungu leik- konunni hins vegar um megn og þegar hún var lögð inn á spítala síð- astliðið vor fór Gróa á Leiti á kreik. Julia var sögð í eiturlyfj- um og fleira í þeim dúr. Mánuði síðar hætti hún við að ganga upp að altarinu með Kiefer Sutherland, leikaranum og syni Donalds, á tólftu stundu. Julia hefur leikið í tveimur öðrum kvikmynd- um á árinum, Dying Young og í Hook í leikstjórn Stevens Spielberg. Ólafur Jóhann Ólafsson, forstjóri hjá Sony, og mest seldi rit- höfundur ársins á íslandi, kynntist Juliu þegar tökurn- ar á Hook stóðu yfir. Kvik- myndin er framleidd af Col- umbia sem er í eigu Sony. I viðtali við HEIMSMYND síðastliðið haust lýsti Ólafur engri sérstakri hrifningu af stjörnunni en þar var hún í hlutverki Tinkerbell. Hann lét þess þó ógetið að Julia gekk stundum undir nafninu Tinkerhell, svo erfið þótti hún í umgengni á tökustað. Árið 1992 hyggst hún nota til að hlaða rafhlöðurnar á nýjan leik og hvíla sig (og aðra). Önnur leikkona er til- nefnd og sú er ekki hvíldar- þurfi. Það er Jodie Foster Julia Roberts: Hún fór úr hlutverki fögru konunnar yfir í hlutverk þeirrar ráövilltu bæði á hvíta tjaldinu og í einkali'finu. sem átti stjörnuleik í kvik- myndinni Lömbin þagna á móti Anthony Hopkins. Foster sem hóf feril sinn á hvíta tjaldinu barnung, hefur lokið námi frá hinum virta Yale háskóla og reyndi fyrir sér sem leikstjóri í fyrsta sinn síðastliðið ár í kvik- myndinni Little Man Tate. „Hún er fæddur leikstjóri,“ segir fyrrum leikstjóri henn- ar í kvikmyndinni Accused en fyrir hlutverk sitt þar sem fórnarlamb nauðgunar fékk Foster Óskarsverðlaun. Hún vakti þó fyrst heimsathygli þegar tilræðismaðurinn John Hinkley, sá er reyndi að myrða Ronald Reagan, lýsti því yfir árið 1981 að hann gerði það vegna ástar á Jodie Foster. Hún hefur svarið þess eið að nefna hann aldrei á nafn og þegar hún uppgötvaði að sjón- varpsstöð ætlaði sýna filmu- bút frá tilræði Hinkleys á sama tíma og hún átti að vera í viðtali gekk hún snúð- ugt út rétt áður en bein út- sending hófst. Nú í febrúar kemur á markaðinn mynd Woodys Allen, Shadows and Fog, en þar er Foster í stóru hlutverki. „Það var fínt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að stjórna,“ sagði hún um þátt sinn þar og kvaðst ætla að einbeita sér að leiknum á ný - innan brans- ans er hún uppnefnd frök- en stjórnsöm - sígilt upp- nefni á konum með bein í nefinu. Það er ekki nóg með að Borís Jeltsín sé sannlega einn af mönnum árs- ins, sumir ganga svo langt að tala um ár Jeltsíns, eins og tíma- ritið Newsweek. Breska blaðið Economist talar ekki um Rússland, heldur Jeltsínland. Vegna þeirrar velvildar sem ímynd Gor- batsjovs er umlukin á Vesturlöndum er rétt að ít- reka andúð á þeim aðferð- um sem Borís Jeltsín beitti þegar hann var að bola Gorba frá - hann hafði ekki einu sinni fyrir því að segja honum upp í eigin persónu. Hann tók yfir skrifstofu hans, embætti og starfslið í Kreml og sagðist aldrei mundu fara á fund hans framar. Aðspurður um hvort Gorbi yrði þá að leita til hans svaraði Borís: „Af- hverju? Til að ná í ellilífeyr- inn?“ Og undir þær efa- semdir skal líka tekið að Borís kann að verða enn einn einræðisherrann sem þetta vesalings fólk hefur mátt þola í aldanna rás. Borís er bolalegur í fasi og

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.