Fréttablaðið - 05.10.2017, Síða 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 3 4 . T Ö L U B L A Ð 1 7 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7
FRÍTT
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þorvaldur Gylfason
segir sjálfstæðisbaráttunni ekki
lokið. 19
SPORT Ragnar Sigurðsson hlakk-
ar til leiksins gegn Tyrkjum. 28
MENNING Tíu daga tvíæringur í
Reykjavík þjófstartar í kvöld. 34
LÍFIÐ Margir héldu að árið 2017
yrðu allir á flugbílum og með
vélmennaþjóna en í
staðinn fengum við
bara „snjallbursta“ og
„regnhlífadróna“ svo
dæmi séu nefnd. 42
PLÚS SÉRBLAÐ
FÓLK
*Samkvæmt prentmiðla-
könnun Gallup apríl-júní
2015
K R I N G L U
K A S T
20–50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUM VÖRUM
5.–9. OKT.
STJÓRNMÁL Heilbrigðismálin eru það
málefni sem skiptir fólk mestu máli
í kosningabaráttunni fram undan.
Þetta sýna niðurstöður skoðana-
könnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2
og Vísis. Rétt rúmlega þriðjungur, eða
37 prósent, þeirra sem afstöðu tóku
nefndu heilbrigðismál. Næstflestir
eða 12 prósent völdu efnahagsmál, 7
prósent málefni eldri borgara, 6 pró-
sent nefndu menntamál og 4 prósent
skattamál. Aðrir málaflokkar voru
sjaldnar nefndir og til dæmis nefndu
einungis 2 prósent svarenda umhverf-
ismál og 1 prósent menningarmál.
Þegar svörin eru skoðuð eftir kynj-
um sést talsverður munur, því 44 pró-
sent þeirra kvenna, sem afstöðu taka,
nefna heilbrigðismálin en einungis
17 prósent karla. Hins vegar nefna
17 prósent karla sem afstöðu taka
efnahagsmálin en einungis 6 prósent
kvenna.
Heilbrigðismálin eru á meðal helstu
bitbeina á Alþingi og hart var tekist á
þegar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar-
innar var kynnt snemma í september
og staðan varð forsætisráðherra að
umræðuefni í stefnuræðu hans. „Það
er sérstakt gleðiefni að nú stefni loks
í að á vormánuðum verði tekin fyrsta
skóflustungan að meðferðarkjarna
nýs Landspítala,“ sagði Bjarni og bætti
við að gera þyrfti gangskör að bygg-
ingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða
í framhaldinu.
En stjórnarandstaðan sakaði ríkis-
stjórnina um að svelta heilbrigðis-
kerfið. „Þeir sem þurfa mest á þjón-
ustu ríkisins að halda, svo sem eins
og sjúklingar, eiga ekki að njóta góð-
ærisins,“ sagði Oddný Harðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Könnun Fréttablaðsins var gerð
þannig að hringt var í 1.354 manns
þar til náðist í 800 samkvæmt lag-
skiptu úrtaki 2. og 3. október. Svar-
hlutfallið var 59,1 prósent. Þátttak-
endur voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt
eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri. Spurt var: Hvaða málefni
skiptir þig mestu máli i kosninga-
baráttunni fram undan? Alls tóku 80
prósent afstöðu til spurningarinnar,
17 prósent sögðust óákveðin en 3 pró-
sent svöruðu ekki. – jhh / sjá síðu 8
Umhverfismál og menning mæta afgangi
Menning og umhverfis-
mál eru kjósendum ekki
ofarlega í huga í kosn-
ingabaráttunni, sam-
kvæmt nýrri könnun
Fréttablaðsins. Rúmlega
þriðjungur svarenda
telur heilbrigðismál
skipta mestu máli. Efna-
hagsmálin þar á eftir.
44 prósent þeirra
kvenna, sem afstöðu taka,
nefna heilbrigðismálin en
einungis 17 prósent karla.
FJÁRSJÓÐSLEIT Skipafélagið Hapag-
Lloyd gerir tilkall til þýska skips-
ins Minden sem breska félagið
Advanced Marine Services (AMS)
hyggst opna á hafsbotni undan
Íslandi til að ná í verðmæta málma.
Hapag-Lloyd yfirtók árið 1970 það
skipafélagið sem gerði út SS Minden.
Í bréfi félagsins til Umhverfisstofn-
unar segir að það hafi orðið þess
áskynja í gegn um fjölmiðla að AMS
óski leyfis til að rjúfa gat á skrokk
Minden til að geta náð út boxi með
verðmætum málmi.
„Líkt og áður hefur komið fram í
samskiptum okkar þá er það ætlun
umbjóðanda míns, komi í ljós að
verðmæti sé að finna í flakinu, að
skila þeim til breskra yfirvalda,”
segir Bragi Dór Bragason, lögmaður
AMS hér á landi. – gar / sjá síðu 4
Þýsk útgerð vill
eiga innihaldið
Gróður landsins ber með sér að haustið er komið. Suðvestanlands hafa fyrstu dagar haustsins verið mildir og margir nýtt veðrið til útivistar. Til að mynda þetta fólk sem spókaði sig um í Laugar-
dalnum í gær. Suðaustan- og austanlands hefur væta og vindur verið til ama og horfur eru á að slíkt haldi áfram. Stormviðvörun hefur verið gefin út fyrir svæðið á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR