Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 39
Til sölu Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun um matsskyldu Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir · Stækkun Mjólkárvirkjunar, Ísafjarðarbæ · Eldi á sæeyrum á Eyrarbakka skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106 /2000. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðun má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 6. nóvember 2017. AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Aðalskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 1. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Reykholtí í Þjórsárdal Lögð fram til kynningar lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem nær til svæðis við Reykholt í Þjórsárdal, umhverfis Þjórsárdalslaug. Fyrirhugað er að fara í uppbyggingu baðstaðar, veitingahúss og gistingu á svæðinu. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota en með breytingunni er fyrirhugað að breyta því í svæði fyrir verslun- og þjónustu. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni: 2. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli, Hólmasel 2, á um 58 ha svæði í Flóahreppi. Kynnt er lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir nýtt lögbýli sem stofnað verður á um 58 ha spildu úr landi Hólmasels og mun fá nafnið Hólmasel 2. Deiliskipulagið sjálft mun ná til 14,3 ha svæðis næst Villingaholtsvegi og verður þar gert ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, hesthúss og skemmu ásamt húsnæði fyrir gesti og starfsfólk. 3. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli, Leyndarholt, á 7,5 ha spildu úr Brjánsstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Kynnt er lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir nýtt lögbýli sem stofnað verður á um 7,5 ha spildu úr landi Brjánsstaða og mun fá nafnið Leyndarholt. Fyrirhugað er að byggja á landinu íbúðarhús, skemmu og hesthús. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 4. Deiliskipulag smáhýsa með náttúrulaugum á svæði úr landi Tjarnar í Bláskógabyggð. Auglýst er tillaga að deiliskipulagi sem nær til um 14,5 ha svæðis í landi Tjarnar rétt norðan við vegamót Reykjavegar og Tjarnarvegar. Samkvæmt tillögunni er fyrirhugað að byggja smáhýsi með setlaugum, meðferðarhús, móttöku- og þjónustuhús auk starfsmannaíbúða. 5. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli sem kallast Sæholt úr landi Dalbæjar í Flóahreppi. Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt lögbýli á 25,4 ha svæði úr landi Dalbæjar í Flóahreppi sem gert er ráð fyrir að fái heitið Sæholt. Landið liggur að Gaulverjabæjarvegi nr. 33 norðan við bæjartorfur Vestri- og Eystri-Hellna. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðar- húss auk landbúnaðarbygginga. 6. Deiliskipulag fyrir tvö lögbýli úr landi Lækjarbakka í Flóahreppi. Kynnt er tillaga að deiliskipulagi fyrir tvö ný lögbýli úr landi Lækjarbakka land 1 lnr. 210365. Skipulagssvæðið nær til um 11,5 ha svæðis sem liggur að Villingaholtsvegi nr. 305 en heildarstærð lögbýlana tveggja er um 67 ha. Gert er ráð fyrir að á hvoru lögbýli fyrir sig verði heimilt að byggja íbúðarhús, hesthús, skemmu og reiðhöll. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is. Skipulagstillögur 1-3 eru í kynningu frá 5. til 19. október 2017 en tillögur 4-6 frá 5. október til 17. nóvember 2017. Athugasemdir og ábendingar við tillögur 1-3 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 19. október 2017 en 17. nóvember fyrir tillögur 4-6. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@utu.is petur@utu.is Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR VIÐ ERUM AÐ TALA UM ÞIG Hafðu það skemmtilegra í haust með Stöð 2 365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI SMÁAUGLÝSINGAR 25 F I M MT U DAG U R 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.