Fréttablaðið - 05.10.2017, Side 39
Til sölu
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir
· Stækkun Mjólkárvirkjunar, Ísafjarðarbæ
· Eldi á sæeyrum á Eyrarbakka
skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr.
106 /2000. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni
7b, Reykjavík og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðun má
kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 6. nóvember
2017.
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Reykholtí í Þjórsárdal
Lögð fram til kynningar lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps sem nær til svæðis við Reykholt í
Þjórsárdal, umhverfis Þjórsárdalslaug. Fyrirhugað er að fara í uppbyggingu baðstaðar, veitingahúss og gistingu á svæðinu. Í gildandi
aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota en með breytingunni er fyrirhugað að breyta því í svæði fyrir
verslun- og þjónustu.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni:
2. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli, Hólmasel 2, á um 58 ha svæði í Flóahreppi.
Kynnt er lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir nýtt lögbýli sem stofnað verður á um 58 ha spildu úr landi Hólmasels og mun
fá nafnið Hólmasel 2. Deiliskipulagið sjálft mun ná til 14,3 ha svæðis næst Villingaholtsvegi og verður þar gert ráð fyrir byggingu
íbúðarhúss, hesthúss og skemmu ásamt húsnæði fyrir gesti og starfsfólk.
3. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli, Leyndarholt, á 7,5 ha spildu úr Brjánsstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kynnt er lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir nýtt lögbýli sem stofnað verður á um 7,5 ha spildu úr landi Brjánsstaða og mun
fá nafnið Leyndarholt. Fyrirhugað er að byggja á landinu íbúðarhús, skemmu og hesthús.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
4. Deiliskipulag smáhýsa með náttúrulaugum á svæði úr landi Tjarnar í Bláskógabyggð.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi sem nær til um 14,5 ha svæðis í landi Tjarnar rétt norðan við vegamót Reykjavegar og
Tjarnarvegar. Samkvæmt tillögunni er fyrirhugað að byggja smáhýsi með setlaugum, meðferðarhús, móttöku- og þjónustuhús
auk starfsmannaíbúða.
5. Deiliskipulag fyrir nýtt lögbýli sem kallast Sæholt úr landi Dalbæjar í Flóahreppi.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir nýtt lögbýli á 25,4 ha svæði úr landi Dalbæjar í Flóahreppi sem gert er ráð fyrir að fái heitið
Sæholt. Landið liggur að Gaulverjabæjarvegi nr. 33 norðan við bæjartorfur Vestri- og Eystri-Hellna. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðar-
húss auk landbúnaðarbygginga.
6. Deiliskipulag fyrir tvö lögbýli úr landi Lækjarbakka í Flóahreppi.
Kynnt er tillaga að deiliskipulagi fyrir tvö ný lögbýli úr landi Lækjarbakka land 1 lnr. 210365. Skipulagssvæðið nær til um 11,5 ha
svæðis sem liggur að Villingaholtsvegi nr. 305 en heildarstærð lögbýlana tveggja er um 67 ha. Gert er ráð fyrir að á hvoru lögbýli fyrir
sig verði heimilt að byggja íbúðarhús, hesthús, skemmu og reiðhöll.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá
9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is.
Skipulagstillögur 1-3 eru í kynningu frá 5. til 19. október 2017 en tillögur 4-6 frá 5. október til 17. nóvember 2017.
Athugasemdir og ábendingar við tillögur 1-3 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 19. október 2017 en 17. nóvember fyrir
tillögur 4-6. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi
petur@utu.is
petur@utu.is
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
VIÐ ERUM AÐ
TALA UM ÞIG
Hafðu það skemmtilegra í haust með Stöð 2
365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI
SMÁAUGLÝSINGAR 25 F I M MT U DAG U R 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7