Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 6
FJÁRSJÓÐSLEIT „Hér með áskiljum
við okkur allan rétt með tilliti til SS
Minden og allra hluta eignarinnar
sem þegar eru fundnir eða kunna að
finnast,“ segir í bréfi skipafélagsins
Hapag-Lloyd til Umhverfisstofn-
unar.
Hapag-Lloyd er alþjóðlegt skipa-
félag með höfuðstöðvar í Ham-
borg í Þýskalandi. Í bréfi félagsins
til Umhverfisstofnunar segir að
það hafi orðið þess áskynja í gegn
um fjölmiðla að breska fyrirtækið
Advanced Marine Services óski
leyfis til að rjúfa gat á skrokk SS
Minden til að geta náð út boxi með
verðmætum málmi í póstherbergi
flutningaskipsins.
AMS hefur ekki sagt hver hinn
verðmæti málmur er talinn vera.
Fram hefur komið í Fréttablaðinu
að miðað við rúmmál kistunnar
og miðað við að innihaldið sé gull
gæti verðmætið numið yfir 12 millj-
örðum króna.
Hapag-Lloyd yfirtók á árinu 1970
þýska skipafélagið Nord deutscher
Lloyd sem gerði út SS Minden.
Áhöfn SS Minden sökkti skipinu í
september 1939 til að forða því frá
að falla í hendur breskra herskipa
Þýskt útgerðarfélag gerir tilkall
til fjársjóðsskipsins SS Minden
SS Porta var systurskip flutningaskipsins SS Minden sem liggur á hafsbotni undan Íslandsströndum. MYND/WIKIPEDIA
Skipafélagið Hapag-
Lloyd gerir tilkall til
þýska skipsins Minden
sem breska félagið AMS
hyggst opna á hafs-
botni undan Íslandi til
að ná upp verðmætum
málmum. AMS minnir
Umhverfisstofnun á lof-
orð um að gefa ekki upp
staðsetningu Minden.
SS MINDEN
Reykjavík
Egilsstaðir
Færeyjar
Gæslusvæði Breta
Flak Minden
er á þessum
slóðum um
120 sjómílur
frá ströndum
Íslands.
sem sóttu að því á fyrstu dögum
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Fulltrúar AMS sendu kafbát niður
að flaki SS Minden í apríl í vor en
voru stöðvaðir af Landhelgis-
gæslu Íslands. Bíður fyrirtækið
enn ákvörðunar um starfsleyfi
frá Umhverfisstofnun til að ljúka
leiðangrinum. Flakið er á yfir 2,2
kílómetra dýpi um 120 sjómílur
suðaustur af Íslandi.
Bragi Dór Bragason, lögmaður
AMS hér á Íslandi, segir í bréfi til
Umhverfisstofnunar að hvorki AMS
né Umhverfisstofnun sé í stöðu til
að meta hver sé eigandi SS Minden
og farms þess. Verðmætin verði flutt
til Bretlands.
„Líkt og áður hefur komið fram í
samskiptum okkar þá er það ætlun
umbjóðanda míns, komi í ljós að
verðmæti sé að finna í flakinu, að
skila þeim til breskra yfirvalda,
nánar tiltekið „UK Reciever of
Wreck“. Er þar um að ræða stjórn-
vald innan landhelgisgæslunnar
þar í landi sem hefur það hlutverk
að rannsaka og skera úr um hver sé
eigandi flaks eða þeirra verðmæta
sem finnast í flaki,“ rekur Bragi. „Ef
hið bæra stjórnvald kemst að þeirri
niðurstöðu að flakið eða farmur
þess tilheyri tilteknum eiganda þá
er verðmætunum skilað til þess
aðila gegn því að finnandi eigi rétt
á björgunarlaunum sem ákveðin
eru af stjórnvaldinu í samræmi við
almennar reglur.“
Þá leggur Bragi á það áherslu að
Umhverfisstofnun gefi ekki upp
staðsetningu SS Minden. „Þá er
það ítrekað að trúnaður ríki um
nákvæma staðsetningu flaksins, líkt
og áður hefur margoft komið fram
og samþykkt hefur verið með bréfi
Umhverfisstofnunar,“ undirstrikar
hann.
Almennur frestur til athuga-
semda við útgáfu starfsleyfis til
handa AMS vegna SS Minden rann
út 15. september. Engar athuga-
semdir bárust fyrir utan bréf
Hapag-Lloyd.
„Þetta bréf er ætlað til þess að
upplýsa ykkur um, að sem eigendur
SS Minden höfum við áhuga á fram-
vindu aðgerðaráætlunar AMS varð-
andi SS Minden og að fá vitneskju
um fyrirætlun þeirra varðandi sér-
hver verðmæti sem AMS kanna að
finna eða fjarlægja úr skipinu,“ segir
Hapag-Lloyd.
gar@frettabladid.is
VETRARSÝNING JEEP
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
JEEP SÝNING LAUGARDAGINN
7. OKTÓBER OPIÐ 12 - 17
®
®
Í OKTÓBER FYLGJA STÆRRI
VETRARDEKK ÖLLUM NÝJUM
VERÐ FRÁ 5.890.000.-
NEYTENDUR Velferðarráðherra skipaði
Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor
og Dóru Siv Tynes í verðlagsnefnd
búvöru í stað fulltrúa neytenda sem
enginn vill tilnefna.
Samkvæmt búvörulögum eiga ASÍ
og BSRB að tilnefna sinn fulltrúann
hvort. Hvorug samtakanna nýttu sér
réttinn og féll það í skaut velferðarráð-
herra að tilnefna í þeirra stað.
„ASÍ krafðist þess fyrir tveimur
árum að þessi nefnd yrði lögð niður,
enda væri starfsemi hennar tóm vit-
leysa,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, for-
seti ASÍ, og segir ASÍ ekki vilja ábyrgð
á þessu kerfi. Greinin eigi að falla
undir samkeppnislög eins og aðrar
atvinnugreinar.
„BSRB og ASÍ hættu að tilnefna full-
trúa í verðlagsnefnd þegar mjólkur-
framleiðendur ályktuðu á aðalfundi
að gera breytingar á verðlagsnefnd-
inni og ákveða sjálfir hvernig þeir
verðlegðu sínar vörur,“ segir Elín
Björg Jónsdóttir, formaður BSRB.
„Við verðum bara að treysta því að
þarna séu neytendur inni því allir eru
neytendur búvara,“ segir Elín, aðspurð
hvort hún telji ekki slæmt að neytend-
ur eigi ekki lengur fulltrúa í nefndinni.
Neytendasamtökin eiga ekki til-
nefningarrétt í nefndina og hafa ekki
sóst eftir því að sögn Brynhildar Pét-
ursdóttur, framkvæmdastjóra sam-
takanna. „Ástæðan er fyrst og fremst
sú að nefndin vinnur eftir fyrirfram
gefnum forsendum sem nefndarmenn
hafa lítið um að segja.“ Neytendasam-
tökin hafi oft hafa gagnrýnt land-
búnaðarkerfið því ekki
sé nægilegt tillit tekið til
hagsmuna neytenda.
Aðalhagfræðingur Við-
skiptaráðs er nýskipaður
formaður nefndarinnar,
en Viðskiptaráð hefur gagn-
rýnt landbúnaðarkerfið
harðlega á svipuðum
forsendum og ASÍ,
BSRB og Neytenda-
samtökin. Ólíkt sam-
tökum launafólks
og neytenda fagnar Viðskiptaráð
hins vegar fjölbreyttri samsetningu
nefndarinnar, að sögn Katrínar Olgu
Jóhannesdóttur, formanns Við-
skiptaráðs.– aá
Enginn vill tilnefna fulltrúa neytenda í verðlagsnefnd búvara
BANDARÍKIN Marilou Danley, kær-
asta fjöldamorðingjans Stephens
Paddock, kom til Bandaríkjanna í
gær. Hún var á Filippseyjum þegar
Paddock myrti 58 tónleikagesti við
Mandalay Bay hótelið í Las Vegas
og særði rúmlega 500 áður en hann
svipti sig lífi.
Alríkislögregluþjónar tóku á móti
Danley þegar hún lenti í Los Angeles
í gær og greinir Reuters frá því að
Alríkislögreglan (FBI) vonist til þess
að Danley samþykki yfirheyrslu.
Vonast FBI eftir því að Danley búi
yfir upplýsingum um árásina eða
ástæðurnar sem lágu að baki henni.
Hún hafði verið á Filippseyjum frá
því í september.
Í viðtali við ástralska miðilinn
7News sögðu systur Danley að
hún hefði ekki vitað af ferð sinni til
Filippseyja fyrr en Paddock sagðist
hafa keypt miða fyrir hana. Hún
hefði sem sagt verið send út. – þea
Lögreglan tók á
móti Marilou
Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ,
segir ASÍ hafa
krafist þess að
nefndin yrði
lögð niður.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn hafa
verið úrskurðaðir í vikulangt gæslu-
varðhald vegna gruns um aðild að
stunguárás í heimahúsi í Breiðholti
í fyrrakvöld. Mennirnir eru grunaðir
um að hafa átt aðild að verknað-
inum. Annar þeirra var handtekinn
í fyrrakvöld en hinn í gær.
Einar Guðberg Jónsson, lögreglu-
fulltrúi, segir rannsókn málsins í
fullum gangi. Lögreglan hefur yfir-
heyrt töluvert marga vegna árásar-
innar. Einar segist ekki hafa tölu yfir
hve marga. Spurður hvort margir
hafi verið á vettvangi árásarinnar
segist hann ekki gefa það upp.
Maðurinn sem ráðist var á var
fluttur á sjúkrahús í fyrrakvöld
og gekkst undir aðgerð. Hann var
stunginn í kviðarholið en lögreglan
hefur lýst árásinni sem„töluverðri
atlögu.“ Maðurinn er ekki talinn
vera í lífshættu. -bo
Í gæsluvarðhald
vegna árásar
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð