Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 12
SPÁNN Carles Puigdemont, forseti
héraðsstjórnar Katalóníu á Spáni,
sagði í gær að héraðið myndi lýsa
yfir sjálfstæði innan 48 klukkustunda
eftir að öll atkvæði í kosningum
sunnudagsins hefðu verið talin.
Hann býst við að það gerist um eða
eftir helgi.
Kosningarnar eru umdeildar en
Spánverjar lýstu þær ólöglegar og
kröfðust þess að þær færu ekki fram.
Héraðsstjórnin hélt hins vegar ótrauð
áfram og var spænska lögreglan send
til héraðsins. Átök brutust út og
særðust nærri 900 í átökum við lög-
reglu. Níutíu prósent atkvæða féllu
sjálfstæði í vil en kjörsókn var rúm
fjörutíu prósent.
Katalónar héldu áfram mótmælum
í gær og beindist reiðin nú að Filipp-
usi sjötta Spánarkonungi sem sagði
á þriðjudag að leiðtogar Katalóníu
hefðu, með því að halda kosning-
arnar, svívirt yfirvöld og brotið lýð-
ræðislegar hefðir.
Óljóst er hvort Katalónía verði
sjálfstæð í bráð og nærri öruggt er að
Spánverjar munu ekki samþykkja
sjálfstæðisyfirlýsingu Puigdemont-
stjórnarinnar. Það er þó áhugavert
að skoða hvort Katalónía hafi burði
til þess að standa sjálfstæð.
Í úttekt BBC í gær kemur fram að
Katalónar hafi sitt eigið tungumál,
fána, leiðtoga og þing. Þá eru Kata-
lónar með sína eigin lögreglu, fjar-
skiptastofnun, sína eigin ræðismenn
erlendis, skóla og heilbrigðisstofn-
anir. Hins vegar skortir landamæra-
gæslu, tollgæslu, sendiráð, varnarlið,
seðlabanka og margt fleira.
Efnahagur Katalóníu er sterkari en
í ýmsum öðrum héröðum Spánar.
Eitt helsta slagorð katalónskra sjálf-
stæðissinna er „Madríd rænir okkur“
og vísar til þess að Katalónía greiðir
meira til spænska ríkisins en saman-
lagt virði þess sem Katalónar fá frá
ríkinu er.
Alls greiða Katalónar um tíu
milljarða evra, andvirði 12 billjóna
króna, meira til Spánar en þeir fá. Þó
er viðbúið að stór hluti mismunarins
myndi fara í að koma upp innviðum í
sjálfstæðri Katalóníu
Ferðaþjónusta í Katalóníu er sterk
sömuleiðis en átján af þeim 75 ferða-
mönnum sem heimsækja Spán heim-
sækja Katalóníu og stendur hún þar
fremst í flokki á meðal spænskra
héraða. Þýðir það að 24 prósent
ferðamanna heimsækja Katalóníu
en Katalónar eru sextán prósent
Spánverja.
Á móti sjálfstæðri Katalóníu
vinnur sú staðreynd að héraðið
skuldar 77 milljarða evra sem sam-
svarar 35,4 prósentum af vergri
landsframleiðslu héraðsins. Þar af
skuldar Katalónía Spánverjum 52
milljarða evra.
thorgnyr@frettabladid.is
Katalónar sjálfstæðir
um eða eftir helgina
Katalónar hyggjast lýsa yfir sjálfstæði innan nokkurra daga. NORDICPHOTOS/AFP
Katalónar ætla að lýsa
yfir sjálfstæði þegar
endanlegar niðurstöður
kosninga sunnudagsins
liggja fyrir. Yfirlýsing
Spánarkonungs vekur
reiði sjálfstæðissinna.
Katalónía gæti spjarað
sig sem sjálfstætt ríki en
skuldar þó 35,4 prósent
vergrar landsframleiðslu
sinnar.
BANGLADESS Mannúðarsamtök
sem aðstoða flóttamenn í Bangla-
dess lýstu því yfir í gær að þörf væri
á um 47 milljörðum króna á næstu
sex mánuðum til þess að veita 1,2
milljónum manna lífsnauðsynlega
hjálp. Stærstur hluti flóttamann-
anna eru börn.
Af þessum 1,2 milljónum er
bróðurparturinn Rohingjar sem
flúið hafa ofsóknir í Rakhine-héraði
nágrannaríkisins Mjanmar. Alls eru
meira en 800.000 Rohingjar komnir
til Bangladess, þar af rúm hálf millj-
ón síðan í lok ágúst. Til viðbótar við
Rohingjana bætist svo það heima-
fólk sem aðstoðar flóttamennina og
heldur úti flóttamannabúðunum.
„Rohingjar nærri Cox Bazar-
borg eru í afar viðkvæmri stöðu,
flestir hafa þeir orðið fyrir miklum
og alvarlegum áföllum, og þeir búa
nú við gríðarlega erfiðar aðstæður,“
sagði Robert Watkins, starfsmaður
Sameinuðu þjóðanna í Bangladess,
í yfirlýsingu í gær.
Þessi mikli fólksflótti sem hófst
í lok ágúst orsakast af ofbeldi í
Rakhine-héraði. Í kjölfar árásar
skæruliða af þjóðflokki Rohingja
á herstöð beitti herinn valdi gegn
almennum borgurum af þjóð-
flokknum.
Mannréttindastjóri SÞ hefur
greint frá því að herinn taki Roh-
ingja af lífi án dóms og laga og
brenni bæi þeirra til grunna. Hann
hefur jafnframt gengið svo langt að
tala um þjóðernishreinsanir í þessu
samhengi.
Því hafa yfirvöld í Mjanmar hins
vegar neitað og segjast eingöngu
vera að berjast við liðsmenn frelsis-
hers Rohingja (ARSA). – þea
Þörf fyrir 47 milljarða
til aðstoðar Rohingjum
Ástandið í flóttamannabúðum Rohingja þykir slæmt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Efnahagur Katalóníu er
sterkari en í ýmsum öðrum
héröðum Spánar. Eitt helsta
slagorð katalónskra sjálf-
stæðissinna er „Madríd rænir
okkur“ og vísar til þess að
Katalónía greiðir meira til
spænska ríkisins en saman-
lagt virði þess sem Katalónar
fá frá ríkinu er.
BLEIKASLAUFAN.IS
#BLEIKASLAUFAN
Við leitum svara með þér.
Kaupum Bleiku slaufuna og styrkjum
Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
KRABBAMEIN VEKUR
ÓTAL SPURNINGAR
Við erum byrjuð að bólusetja
Þú ert velkominn í inúenzubólusetningu hjá okkur
Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík · sími 591 7000
Starfsfólk Heilsugæslunnar Höfða
Opið fyrir bólusetningu frá 8-16
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð