Fréttablaðið - 05.10.2017, Qupperneq 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Skyrtan er keypt á fatamarkaði
á Bar Ananas. Gallabuxurnar eru
frá Tommy Hilfiger og beltið átti
mamma Védísar Fríðu þegar hún var
unglingur. MYND/EYÞÓR
Védís Fríða er í peysu af ömmu sinni, leðurjakka sem hún keypti í Rauðakrossbúðinni og innan undir er hún í svörtum kjól frá Monki. MYND/EYÞÓR
Fjölskyldan mín ákvað eigin-lega að ég yrði listakona strax þegar ég var á unga aldri þar
sem ég gerði lítið annað en að
teikna. Það var engin þvingun því
ég kann hvort eð er ekkert annað.
Nema kannski að elda,“ segir Védís
Fríða Óskarsdóttir. Hún er á öðru
ári í sjónlistadeild við Myndlista-
skólann í Reykjavík. Samhliða
náminu vinnur hún á sambýli hjá
Reykjavíkurborg.
Spáir þú mikið í tísku? Ég get
verið föst í tölvunni tímunum
saman á meðan tískuvikan í New
York stendur yfir, en spái lítið í
hvað er í tísku þegar ég kaupi föt á
sjálfa mig.
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? Ég myndi lýsa honum sem
mjög óreglulegum.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég versla aðallega hjá Rauða
krossinum og Hjálpræðishernum
en svo rata ég einnig oft inn á
skemmtilega markaði og í leyndar
nytjabúðir.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Áttu þér uppáhaldsfataverslun?
Það er svo ógurlega mikið til af
fötum í heiminum að ég kaupi
eiginlega bara notuð föt. Mér
finnst sérstaklega gaman að fara
á fatamarkaðinn við Hlemm, þar
leynast helstu gersemarnar.
Hvaða föt eru í mestu uppáhaldi
hjá þér? Föt sem er erfitt að greina
hvort manni finnst vera hryllingur
eða tærasta snilld. Svo er efnið
auðvitað eitt það mikilvægasta að
mínu mati.
Hvaða flík hefur þú átt lengst og
notar enn þá? Það mun vera föl-
bleika Spaksmannsspjaraskyrtan
mín sem ég keypti á 100 kall í Kola-
portinu fyrir um það bil 10 árum.
Ég hef notað hana rosalega mikið
í gegnum tíðina, enda sést það vel
á henni.
Uppáhaldshönnuður? Aless-
andro Michele, yfirhönnuðurinn
hjá Gucci, er búinn að gera
magnaða hluti upp á síðkastið.
Notar þú fylgihluti? Ég á mjög
mikið af skartgripum en nota þá
örsjaldan, set þá kannski á mig og
ríf þá af mér áður en klukkutími er
liðinn. Ég kaupi samt alltaf meira
af skartgripum þrátt fyrir að vera
hundrað prósent meðvituð um
þessa hegðun.
Áttu þér tískufyrirmynd? Já, flest
allar úr sjónvarsþáttum og bíó-
myndum frá 10. áratugnum. Buffy
og Willow úr Buffy the Vampire
Slayer og Cher úr Clueless myndu
líklega þó teljast sem uppáhalds.
Bestu og verstu fatakaupin?
Bestu fatakaupin mín eru
klossalegir pönkaraskór sem
ég keypti á fatamarkaði
háskólanema og passa við
allt! Verstu kaupin eru goth
tútúpils sem ég keypti í 8.
bekk sem mér fannst ógurlega
nett og kostaði 5.000 krónur
sem var heilmikill peningur á
þeim tíma, og svo að sjálfsögðu
notaði ég það aldrei.
Er eitthvert tímabil sem þú tengir
sérstaklega við í tískunni? Já, aðal-
lega 70’s og 90’s.
Finnst þér gaman að klæða þig
upp á? Aðeins of gaman stundum
en ég má ekki hafa samt of mikinn
tíma til að hafa mig til, þá fer allt til
fjandans.
Ég á mjög mikið af
skartgripum en
nota þá örsjaldan, set þá
kannski á mig og ríf þá af
mér áður en klukkutími
er liðinn.
Védís Fríða Óskarsdóttir
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
HAUSTYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
Skoðið laxdal.is
Vertu vinur
á Facebook Laugavegi 63 • Skipholt 29b • S: 551 4422
KRINGLUNNI | 588 2300
verð áður 5.995
3.995
KRINGLUKAST
verð áður 3.995
1.995
KRINGLUKAST
verð áður 11.495
8.495
KRINGLUKAST
Frábær
tilboð
Allir fylgihlutir með 20% afslætti
Valdar vörur með 50% afslætti
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R