Fréttablaðið - 05.10.2017, Side 31
Burt með g-strenginn því nú eiga allir að klæðast þægi-
legum nærbuxum.
Konur ættu að gleyma blúndu-, silki- og g-strengsnærbuxum um þessar mundir. Nú eiga allir að ganga í þægi-
legum undirfatnaði, eftir því sem netsíðan
Who What Wear segir. Einfaldar og þægi-
legar bómullarnærbuxur og brjósthaldarar
án spanga og óþægilegs skrauts er málið.
Best er að hafa þetta allt sem náttúrulegast.
Samkvæmt WWW hafa undirfatafyrirtæki
sem leggja áherslu á þægindi og góð efni
aukið sölu sína umtalsvert að undanförnu.
Óaðlaðandi nærföt eru það heitasta. Sér-
staklega hefur lífræn bómull orðið eftirsótt,
konur vilja einfaldlega þægileg undirföt. Þótt
oft sé því haldið fram að þægileg undirföt séu
ömmuleg og ljót er sú ekki raunin. Framleið-
endur hafa sett á markað fallegan undir-
fatnað sem er um leið notalegt að klæðast.
Þegar konur eru að fara eitthvað sérstakt
fara þær í glæsilegri undirfatnað en alla jafna
velja þær að klæðast vönduðum nærfatnaði
úr gæðabómull. Flestar konur hafa prófað
g-strengsnærbuxur og eru sammála um að
þær eru ekkert sérstaklega þægilegar. Það er
því best að taka Bridget Jones á þetta og horfa
til nærfataskúffunnar hennar ömmu.
Burtu með g-strenginn
Hárið er viðkvæmast þegar það er blautt og um 30 prósent teygjanlegra en
þegar það er þurrt. Því ætti alls
ekki að greiða það fyrr en það
hefur fengið að þorna. Af sömu
ástæðu ætti ekki að setja það í
tagl á meðan það er blautt. Hvort
tveggja veldur sliti.
Ef hárið á það til að flækjast
eftir þvott er gott að renna í
gegnum það með puttunum, leyfa
því að þorna og móta það svo með
bursta og öðrum þar til gerðum
hjálpartækjum.
Ekki er ráðlagt að byrja að blása
hárið á meðan það er rennandi
blautt. Best er að um það bil 60
prósent rakans séu gufuð upp. Því
lengur sem notaður er hiti á hárið
því líklegra er að það skemmist.
Best er að þurrka það létt með
handklæði og bíða með hárþurrk-
una í 15-20 mínútur.
Aldrei skyldi nota sléttujárn á
blautt eða rakt hár. Það hreinlega
brennur upp og eyðileggst.
Ekki greiða
hárið blautt
Stranger Things bolurinn skar sig úr á
sýningu Louis Vuitton.
NORDICHPHOTOS/GETTY
Hönnunarstjóri Loius Vuitton, Nicolas Ghes-quière, er greinilega ekki
lítið spenntur fyrir annarri þátta-
röð af Stranger Things. Á tísku-
sýningu lúxusmerkisins, sem
haldin var í París á þriðjudaginn
var sást fyrirsæta í stuttermabol
með mynd af auglýsingu fyrir
þáttinn. Önnur syrpa þáttanna
verður frumsýnd á Netflix seint
í þessum mánuði og Ghesquière
þótti tilvalið að nýta tækifærið til
að minna á þá.
Bolurinn var svartur og í
gamaldags stíl, en skreyttur með
lítilli áfastri keðju við hálsmálið.
Hönnuðurinn er þekktur
aðdáandi vísindaskáldsagna og
bauð ungu aðalleikurunum í
Stranger Things í skoðunarferð
um höfuðstöðvar Loius Vuitton í
fyrrahaust.
„Við ræddum saman og okkur
fannst fyndið að hafa smá vísun
í þáttaröðina sem er væntanleg
á sýningunni,“ sagði Ghesquière.
„Ég held að þetta hafi verið ein
vinsælasta flíkin baksviðs.“
Stranger Things
á sýningarpalli S O T H Y S D A G A R Í L Y F J U
ER HÚÐIN ÞÍN AÐ FÁ RÉTTA MEÐHÖNDLUN?
Sothys sérfræðingur veitir þér ráðgjöf og
húðgreiningu eftirfarandi daga í Lyfju:
Lyfju Smáralind í dag frá kl. 14 -18.
Lyfju Lágmúla á morgun, föstudag, frá kl. 14 -18.
Lyfju Smáratorgi á laugardag frá kl. 14 -18.
Reykjanesbæ Smáralind Smáratorgi Lágmúla Borgarnesi Selfossi
25%
AFSLÁTTU
R
5. - 8. októ
ber
V E G L E G G J Ö F !
Sothys snyrtitaska ásamt 75 ml Body Scrub og 75 ml Body Lotion fylgir
með þegar keyptar eru Sothys vörur fyrir 5.000 kr. eða meira.*
*Gildir meðan birgðir endast.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7