Fréttablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 36
Það tekur um átta
tíma að flétta sítt
hár. Maður stendur upp á
endann allan tímann en
mér finnst það bara
gefandi og skemmtilegt.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Afrófléttur hafa alltaf verið heitar og exótískar, en aldrei í tísku sem nú,“ segir Patience
A. Karlsson, eigandi Afro Zone í
Hólagarði í Efra-Breiðholti. Þar fást
afrískir kjólar, skór og skart, í bland
við framandi hráefni til matar-
gerðar og brakandi ferskt grænmeti
og ávexti sem Patience flytur inn til
landsins og fæst margt hvert hvergi
annars staðar.
Í afvikið horn Afro Zone setjast
konur á öllum aldri í stólinn hjá
Patience sem er meistari í afrískum
hárlengingum og afrófléttum.
„Til mín koma litlar stelpur sem
vilja fallegar, síðar fléttur með
perlum, unglingsstúlkur sem vilja
litríkar, skreyttar afrógreiðslur
eins og þær sjá stjörnurnar með, og
svo konur á öllum aldri sem vilja
hárlengingar, fléttur og skraut í
hár sitt,“ segir Patience, sem hefur í
nógu að snúast í hárgreiðsluhorn-
inu, en þar þarf að panta tíma.
„Það tekur um átta tíma að flétta
sítt hár og maður stendur upp á
endann allan tímann. Mér finnst
það bara gefandi og skemmtilegt!“
segir hún og hlær dillandi hlátri í
einstaklega vinalegu andrúmslofti.
Á veggjum Afro Zone er ríkulegt
úrval af hárvörum; glansandi hár-
lengingar og hárkollur í mörgum
litum, perlur, skraut, greiður,
sjampó, hárnæringar og hvers kyns
stílvörur í hárið.
„Afrískar konur leggja mikið
upp úr flottum hárgreiðslum því
hárgerð þeirra er afar hrokkin, stríð
og ómeðfærileg. Erfitt er að greiða
og móta hárið, og því nota þær
fléttur eða hárlengingar til að gera
hárið meðfærilegra. Margar kjósa
að flétta hárlengingar saman við
hárkollur sem þær setja upp eins og
húfur yfir kollinn, sem getur verið
mjög hentugt og þægilegt,“ segir
Patience á lýtalausri íslensku en
hún er fædd og uppalin í Gana.
„Hvítar konur eru í meirihluta
þeirra sem koma til mín í fléttur því
sterk fléttuhefð er meðal svartra
kvenna sem margar kunna að flétta
sig sjálfar. Tískan segir til sín og ekki
spilla fyrir áhrif fræga fólksins sem
sýnt hefur sig með fléttur og litríkar
hárlengingar að undanförnu. Vin-
sælast er að flétta áberandi litum
inn í flétturnar, ásamt perlum,
skrauti og þykkum snúningum,“
segir Patience sem fylgist vel með
afrískum tískustraumum, eins og
úrvalið í Afro Zone ber glöggt vitni.
Afro Zone er í Hólagarði, Lóuhólum
2-6, í Efra-Breiðholti. Sjá nánar á
Facebook, undir Afro Zone.
Heitar og exótískar
Í afrísku búðarhorni í Efra-Breiðholti stendur Ganamær
og fléttar litríka lokka og perlur í hár kvenna á öllum aldri
og af mörgum þjóðernum. Hún segir íslenskar konur
heillaðar af afrófléttum og fögrum hárlengingum.
Patience A. Karlsson í Afro Zone sem er ævintýraheimur þegar kemur að afrískum fléttum og hárlengingum. MYND/ERNIR
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Ný sending
Kjóll á 9.900 kr.
- stærð 36 - 46
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Kjóll á
7.900 kr.
- stærð 38 - 44
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
JÓLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 28. nóvember.
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband
við auglýsingadeild Fréttablaðsins:
Símanúmer
512 5402
Netfang
serblod@365.is
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R