Fréttablaðið - 05.10.2017, Page 48
er Ragnar Helgi Ólafsson sem hefur
leik í Harbinger að Freyjugötu 1 í
kvöld og fær svo til sín gestaskáld á
hverjum degi sýningartímans.“
Á morgun byrjar ballið með því
að Hildigunnur Birgisdóttir opnar
sýningu á skúlptúrum, vídeóum og
kaktusum í Þjónustumiðstöðinni
að Vesturgötu 7 klukkan 15. Í hús-
næði Hönnunarmiðstöðvarinnar
í Aðalstræti tekur Ásgerður Birna
Björnsdóttir við, búin að smíða
þeramín, hljóðfæri sem fólk spilar á
án þess að snerta. „Ferðalög fólksins
kringum skúlptúrana búa til hljóðið
sem verður streymt yfir í Kling og
Bang í Mar shall húsinu á Granda-
garði. Þannig verða hreyfingar fólks
í Geysishúsinu að hljóðmynd í Kling
og Bang,“ útskýrir Edda Kristín. „Það
eru margir svona snúningar á hátíð-
inni.“
Formleg opnunarhátíð Sequences
verður í Hafnarhúsinu, í portinu
klukkan 16. „Þar verður listamaður-
inn Aki Sasamodo með kraftmik-
inn og hressandi gjörning þar sem
tramp ólín og ruslagámar koma við
sögu,“ lýsir Edda Kristín. „Göngutúr
þessa dags endar svo í Marshallhús-
inu, en gjörningar verða á vegi fólks á
leiðinni þangað og Endalausi dagur-
inn, yndislegt verk eftir Birgi Andrés-
son, er á húsgafli á Grandagarði 39.“
Í Marshallhúsinu verða tvær sýn-
ingar opnaðar samtímis klukkan
17. Samsýning og sólargjörningur
í Kling og Bang og í kjölfarið opnar
hin bandaríska Joan Jonas sýningu
í Nýlistasafninu. Hún er heiðurs-
listamaður hátíðarinnar. „Við erum
afskaplega ánægð og stolt af því
að Jonas skyldi koma,“ segir Edda
Kristín og heldur áfram: „Hún hefur
gert margt eftirtektarvert á sínum
ferli sem hófst á 6. áratugnum.
Vinnur með vídeó, gjörninga, hljóð
og frásagnir sem birtast í verkunum
á ýmsan máta. Elsta vídeóverkið
hennar, frá 1968, er á sýningunni og
þau nýjustu eru frá 2016. Jonas lærði
upphaflega skúlptúr en er frum-
kvöðull í vídeó- og gjörningalist, er
nýjungagjörn, forvitin og framsækin
og verður með tilraunakennt erindi
í Tjarnarbíói á sunnudaginn. Það
er gjörningur sem ég held að verði
algert sælgæti fyrir skilningarvitin.
Þar blandar hún saman marglaga
vörpun og litríkum og hrífandi texta.
Jonas er að vinna með Maríu Huld
Markan tónskáldi. Við erum alsæl
með að hún skyldi vilja gera eitthvað
alveg nýtt hér.“
Margot Norton, sýningarstjóri New
Museum í New York, heldur utan um
aðaldagskrá Sequences. En svo er
aukadagskrá. „Þannig er Sequences,
eins og í upphafi, vettvangur fyrir til-
raunir þar sem listamennirnir hafa
frjálsar hendur,“ segir Edda Kristín.
„Ég held að það sé hægt að fullyrða
að mikil gróska sé í myndlistinni hér á
landi og listamenn og aðrir njóta þess
að kynnast senunni. Svona hátíðir
virka líka eins og vítamínsprauta –
kjarni sem mikilvægt er að hlúa að
og áhrifin seytla út í lögin.“
SVONA HÁTÍÐIR
VIRKA LÍKA EINS OG
VÍTAMÍNSPRAUTA – KJARNI
SEM MIKILVÆGT ER AÐ HLÚA AÐ
OG ÁHRIFIN SEYTLA ÚT Í LÖGIN.
Það verður margt spenn-andi að skoða í galleríum og öðrum sýningar-stöðum, enda koma listamennirnir, tuttugu og einn talsins, víða að
úr heiminum,“ segir Edda Kristín
Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri
myndlistarhátíðarinnar Sequenc-
es sem verður formlega opnuð á
morgun í áttunda sinn og stendur til
15. október. Reyndar verður þjóf-
start í kvöld. „Yfirskrift hátíðarinnar
er Teygjanlegir tímar og þegar einn
listamaðurinn óskaði eftir að opna
sýningu kvöldið fyrir formlega
opnun gátum við ekki neitað. Það
Sælgæti fyrir
skilningarvitin
á listahátíðinni
Sequences
Sequences myndlistarhátíðin er tíu
daga tvíæringur í Reykjavík sem hefst
formlega á morgun en þjófstartar í
kvöld. Þar eru framsækin verk eftir
fjölda listamanna.
Það eru hressandi dagar fram undan hér í borginni því það er alltaf eitthvað stórkostlegt sem gerist þegar listafólk frá
ýmsum löndum hittist og tengir verk sín saman þó ólík séu,“ segir Edda Kristín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Verk eftir Birgi Andrésson, er á Grandagarði 39. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING