Fréttablaðið - 05.10.2017, Síða 49
Föstudaginn 15. september síðastliðinn hóf Forseti Indlands,
Shri Ram Nath Kovind, tveggja vikna “Swachhta Hi Seva”
herferð sem snýr að hreinlæti og snyrtimennsku.
Er stefnan allsherjar vitundarvakning og að reyna fá Indverja til að
ganga betur um umhverfi sitt.
Herferðin byrjaði í Uttar Pradesh (hérað á Indlandi) með
því að taka upp metnaðarfulla stefnu ríkisstjórnarinnar
hreinlætismála. Herferðin, sem miðar að því að leggja
ennþá meira áherslu á hreinlætisráðstefnuna sem
Narendra Modi´s ríkisstjórn byrjaði á, sem nefnd var
“Swachh Bharat Mission”, og var hleypt af stokkunum
frá Kanpur. Forsetinn tók loforð af þegnum sínum um að
gera sitt besta að halda umhverfi sínu snyrtilegu.
Þjóðarherferðin mun sjá til þess að fólk frá öllum stéttum,
þ.m.t. forsætisráðherra, ráðherrar, þingmenn og frjáls
félaga samtök, taki allir þátt í “Shramdaan” fyrir hreinlæti
og uppbyggingu salernisaðstöðu víða. Takist það mun það
bæta umhverfi og minnka úrgang fólks á almannafæri.
Jafnframt er stefnt að frekari hreinsun á almennings –
og ferða mannastöðum.
Þann 17. september tóku Indverjar margir í sjálfboðavinnu
þátt í að þrífa og byggja salerni.
Varaforseti Venkaja Naidu heimsótti þorp í Karnataka
17. september og boðaði þáttöku fólks úr öllum stéttum
Indlands að taka þátt í uppbyggingu salernis og almenns
hreinlætis. 24. september tóku almennir þorpsbúar og
sveitarfélög upp sjálfboðavinnu. Hinn 25. september voru
svo almenningsstaðir, strætóskýli og sjúkrahús hreinsuð
af kappi.
Sérstök herferð sem snýr að hreinleika og snyrtimennsku
var sett afstað á 15 öðrum stöðum þann 1. október.
Sjónvarpsstöðin Doordarshan frumsýndi 17. september,
sem er fæðingardagur Forsætisráðherra Indlands,
Narendra Modi, kvikmyndina ‘Salerni: Ek Prem Katha.
Þess má svo geta að þann 2. október, var veitt verðlaun
fyrir ritgerðir, stuttmyndir og málverk sem tengjast
hreinlæti og þrifnaði. 2. október er afmælisdagur Gandhi
og einnig Swachh Bharat Diwas, (Hreinsum Indland
dagurinn).
Swachhta hi Seva (hreinlæti er hæfni) - herferð hreinlætismála á Indlandi
Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu núna í síma 511 2777
w w w . b e t r i b i l a k a u p . i s
Ármúla 4-6, Reykjavík|Firðinum, Hafnarfirði|511 2777 -
sala@betribilakaup.is
2017 Kia Niro Hybrid
Verð frá 3.650.000 kr.
2017 BMW 330e
Verð frá 4.595.000 kr.
2017 Toyota RAV4 Hybrid
Verð frá 4.590.000 kr.
2017 Toyota Auris Hybrid
Verð frá 2.990.000 kr.
2018 Volvo XC60 T8
Verð frá 7.300.000 kr.
2018 Volvo V90 T8
Verð frá 7.740.000 kr.
2018 Volvo XC90 T8
Verð frá 7.650.000 kr.
2018 Volvo S90 T8
Verð frá 7.550.000 kr.
2017 Outlander Instyle
Verð frá 5.250.000 kr.
2017 Outlander Arctic
Verð frá 4.615.000 kr.
2017 Outlander Sport
Verð frá 4.040.000 kr.
2017 Outlander Intense+
Verð frá 5.100.000 kr.
2017 Toyota Yaris Hybrid
Verð frá 2.490.000 kr.
2017 Toyota C-HR Hybrid
Verð frá 4.150.000 kr.
2017 Kia Optima Hybrid
Verð frá 3.990.000 kr.
2016 BMW X5 xdrive40e
Verð frá 7.200.000 kr.
Sparaðu og pantaðu allar tegundir beint
frá verksmiðju!
www.facebook.com/betribilakaup.is
BÆKUR
Grænmetisætan
Han Kang
Íslensk þýðing: Ingunn Snædal
Útgefandi: Bjartur
Prentun: Printon, Eistlandi
Kápuhönnun: Arndís Lilja Guð-
mundsdóttir
Síðufjöldi: 200
Rithöfundurinn Han Kang var fyrir
skömmu á meðal áhugaverðra gesta
bókmenntahátíðar í Reykjavík en
fyrir skömmu kom út skáldsaga
hennar Grænmetisætan, í íslenskri
þýðingu Ingunnar Snædal, sem
sumarið 2016 hlaut breytta útgáfu
ef hinum virtu Man Booker bók-
menntaverðlaunum. Verðlaunin
komu ýmsum á óvart en ættu þó
ekki að þurfa að gera það. Græn-
metisætan er gríðarlega áhuga-
verð skáldsaga. Hún er í senn vel
skrifuð og snjöll en býr um leið yfir
ákveðinni menningarlegri vídd og
breiðri skírskotun inn í líf fólks um
víða veröld.
Grænmetisætan segir sögu hinnar
ofurvenjulegu Yeong-Hye sem í kjöl-
far draums tekur þá ákvörðun að
hætta að borða kjöt og aðrar dýra-
afurðir, eiginmanni og fjölskyldu til
mikillar skapraunar og skammar.
Kjötát er mikilvægur þáttur í kór-
eskri menningu í samfélagi þar sem
það er einnig litið hornauga að fara
á einhvern hátt á móti straumnum
– að vera öðruvísi. „Konan mín brást
ekki væntingum mínum, hún var
algjörlega venjuleg eiginkona sem
sinnti sínu án nokkurs ósmekklegs
kæruleysis,“ (bls. 8) segir eiginmað-
ur Yeong-Hye og sögumaður fyrsta
hluta af þremur en hver hluti á sinn
sögumann og sjónarhorn á líf og
ákvarðanir aðalpersónunnar.
Grænmetisætan er saga sem á sér
sögu. Hún byggir á smásögu Han
Kang, Ávöxtur konu minnar, frá
1997. Höfundur hefur einnig sagt
frá því í viðtölum
að hugmyndin
eigi sér uppruna
á miða sem hún
fann í gögnum
ljóðskáldsins Yi
Sang. Hann var
fæddur árið 1910
og lést aðeins 27
ára gamall og hafði
mikil áhrif á nútíma-
bókmenntir Kóreu.
Á miðanum stóð
einfaldlega: „Mér
finnst að manneskjur
ættu að vera plöntur.“
Þetta er í raun grunn-
hugmyndin sem sækir
á aðalpersónuna og
af því leiðir vissulega
ákveðin höfnun á
mennskunni og allri þeirri grimmd
sem henni fylgir.
Ákvörðun Yeong-Hye dregur því
dilk á eftir sér og gjörbreytir ekki
aðeins lífi hennar, heldur á ein-
hvern óræðan hátt afhjúpar það
ferli samfélag sem er í senn byggt á
grimmd og kröfunni um einsleitni.
Að auki er þetta lífsákvörðun sem
heldur áfram að þróast í gegnum
söguna með afleiðingum sem eru
í senn eina rétta og óumflýjanlega
niðurstaðan. Einfaldlega vegna
þess að í ákvörðun Yeong-Hye er
fólgin höfnun á ofbeldi og þráin
eftir hinu friðsama lífi sem gerir
ekki kröfu um að nærast á öðru lífi.
Eitthvað sem vissulega á sér víða
skírskotun langt umfram menn-
ingarsamfélag Kóreu og ákvörðun
aðalpersónunnar. Jafnvel höfnun
á grunneðli mannskepnunnar og
framgangi hennar og
ört vaxandi skaðlegri
fyrirferð í náttúrunni.
Han Kang krefur þann-
ig lesendur sína um að
leita svara við stórum
s p u r n i n g u m s e m
mannkynið stendur
frammi fyrir í dag en
virðist í sífellu hlaupa
undan og forðast með
öllum ráðum. Spurn-
ingum sem eiga
ótvírætt erindi til
íslenskra lesenda þó
svo Grænmetisætan
sé langt að komin.
Grænmetisætan
er gríðarlega vel
skrifuð og heillandi
skáldsaga. Han
Kang hefur ólík stílbrigði eftir
sögumönnum auðveldlega á valdi
sínu, en verkið er í senn heildstætt,
markvisst og krefjandi. Vönduð
þýðing Ingunnar Snædal skilar
blæbrigðamun á milli sögumanna
og vonandi láta íslenskir lesendur
ekki þessa frábæru skáldsögu fram
hjá sér fara.
Magnús Guðmundsson
NIÐURSTAÐA: Mögnuð og
krefjandi skáldsaga sem á brýnt
erindi við samtíma okkar og hug-
myndaheim.
Að hafna grimmd og gerast planta
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35F I M M T U D A G U R 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7