Fréttablaðið - 05.10.2017, Page 50
Aðrar flottar á RIFF
3/4 (Three Quarters)
Faces Places
Lo and Behold
Reveries of the Connected
World
Into the Inferno
Grizzly Man
Clouds of Sils
Maria
Tom of Finland
Western
When You Look Away
Winter Brothers / Vinterbrødre
Leikstjóri: Hlynur Pálmason
Í dimma kalknámu í Danmörku
mæta bræðurnir Emil og Johan til
vinnu dag eftir dag. Kuldinn er alls-
ráðandi. Ekki á það bara við um
vetrartímann sem umlykur söguna,
heldur hvernig mannlegum sam-
skiptum er háttað hjá bræðrunum,
þar sérstaklega Emil, sem er töluvert
lágstemmdari og sorglegri, hreint
út sagt. Í frístundum sínum glápir
Emil á nágrannastúlku sína gegnum
gluggann og bruggar áfengan við-
bjóð úr efnum sem hann stelur úr
námunum og selur svo kollegum
sínum. En hvað gerist svo þegar Emil
er neyddur út fyrir þægindaramma
sinn?
Það blasir nánast alveg við augum
að leikstjóri myndarinnar eigi sér
bakgrunn í ljósmyndun og myndlist.
Myndmálið poppar allsvakalega út,
meira að segja í hinu hversdagsleg-
asta umhverfi, og oft er spilað með
þagnir á réttum stöðum þar sem
römmunum er leyft að koma sínu til
skila án mikils rembings. Við stjórn-
völinn situr Hlynur Pálmason með
þétt taumhald þar sem sjálfsörugg og
einföld frásögn hans fær að anda út.
Einnig er kvikmyndataka Mariu
von Hausswolff alveg meiriháttar
og gæðir andrúmsloft og fíling, sem
er að mestu óaðlaðandi eða eymdar-
legt, ómældri fegurð. Hljóðmyndin
er líka ákaflega vönduð.
Dýnamík bræðranna er kostuleg
(hvernig samband þeirra á það til
að leysast bókstaflega upp í pissu-
keppni er hrein dásemd), þótt sagan
snúist í rauninni öll í kringum ein-
farann Emil. Hann er einfaldur en
flókinn á sama tíma. Það er erfitt að
halda upp á hann en maður kemst
ekki hjá því að finna örlítið til með
honum í baráttu hans við að finna
sinn stað í lífinu þegar hristist upp
í tilverunni.
Það kemur hins vegar fyrir að
myndin virki frekar stefnulaus, í
miðbikinu hvað mest, og tekst leik-
stjóranum ekki alveg að landa blá-
endanum eins og hann vill. Einnig
er leitt hversu lítil áhersla er lögð
á Johan og ekki síður leikkonuna
Victoria Carmen Sonne sem leikur
Önnu, nágranna bræðranna, en
bæði tvö eru augljóslega mjög mikil-
væg í lífi aðalpersónunnar, ef ekki
þau einu mikilvægu.
Vetrarbræður gengur hins vegar
listilega upp þrátt fyrir smágalla sína.
Hún er heilt yfir skondin, pínu dökk,
öðruvísi og tilraunagleðin nýtur
sín oftar en ekki, sérstaklega þegar
stíllinn daðrar við súrrealisma eða
draumkenndar senur.
Lúmskt dáleiðandi og sérvisku-
leg bíómynd. Hún er ekki gerð fyrir
hvern sem er en hún er vel þess virði
að líta á.
Disappearance / Napadid
Shodan
Leikstjóri: Ali Asgari
Það getur oft verið erfitt að vera
ungur, vitlaus og ástfanginn, sér-
staklega innan samfélagsreglna í
Íran, eins og þau Sara og Hamed fá
að kynnast. Disappearance gerist á
örlagaríkri nóttu þar sem þau flakka
milli sjúkrahúsa í Teheran í von um
að fá aðstoð eftir óhapp sem hvorugt
þeirra þorir mikið að hafa hátt um.
Nóttin framundan verður þó löng og
sér parið að afleiðingar kæruleysis
þeirra munu hafa hafa gríðarleg áhrif
á framtíð þeirra beggja.
Disappearance er ekki það fyrsta
sem neinn ætti að leita til í leit að
skemmtun eða afþreyingu. Myndin
endurtekur sig, sérstaklega í því
hvernig parið flakkar á milli eins-
leitra spítala og upplifir svipuð
vonbrigði aftur og aftur. En það
er meira eða minna tilgangurinn.
Þau eru föst í slæmri hringekju sem
kemur frá erfiðum aðstæðum og
kröfum samfélagsins sem eru á góðri
leið með að drepa ástina, eða í það
minnsta draga úr hvatvísi hennar.
Leikstýran Ali Asgari einblínir á
rýrnun sakleysisins með hægum
en grípandi hætti. Við kynnumst
aðalpersónunum ekkert gríðarlega
en myndin snýst meira um ástand
þeirra heldur en tengsl. Fjarlægðin
sem myndast hjá þeim með hverri
senu er sömuleiðis í einu burðar-
hlutverkinu og áhorfandinn finnur
stöðugt fyrir henni.
Asgari vinnur óaðfinnanlega
með leikurum sínum og kreistir út
trúverðugan leik frá skjáparinu og
rífur pent í hjartaræturnar með litlu
augnablikunum í sögunni. Myndin
er stutt, brött og hefði ekki mátt
vera svo mikið sem senu lengri, en
raunsæið sker sig úr og hljóðlátur
en firnasterkur endir innsiglar skila-
boðin vel og tryggir litla perlu sem er
þess virði að ræða.
Miracle / Stebuklas
Leikstjóri: Eglė Vertelytė
Miracle gerist í litlum bæ í Litháen í
kringum upphaf tíunda áratugarins.
Bærinn var áður undir kommúnista-
stjórn og ríkir mikil eymd meðal
íbúa. Aðalpersóna myndarinnar,
Irena (frábærlega leikin af Eglé Mikul-
ionyté), er sjálf á barmi gjaldþrots og
er eigandi svínabús sem ekki ber sig.
Lífið virðist vera á hraðri leið niður
á við þegar skyndilega mætir auð-
ugur, amerískur herramaður (Vyto
Ruginis) í bæinn og lætur ekki lítið
fyrir sér fara.
Ameríkaninn vill kaupa svína-
búið, finna nýjan flöt á rekstrinum
og hefur kannski eða kannski ekki
lausnina á öllum vandamálum Irenu.
Er draumurinn þá að rætast eða er
eitthvert smátt letur sem enn hefur
ekki komið í ljós? Og er nokkuð hægt
að velta sér upp úr smáu letri þegar
möguleikarnir eru takmarkaðir fyrir?
Sagan fjallar með ferskum hætti
um tengingu okkar við fortíðina,
heimaslóðir, erfiðleikana við að
horfa fram á við og hvernig lítið,
hrörnandi bæjarsamfélag tekur
umsvifalaust nýjan lit þegar áhrif
og peningamáttur Kanans kemur
og umbreytir öllu á örlagastundu. Í
leikstjórasætinu sér Eglė Vertelytė til
þess að enginn rammi fari til spillis
og heldur líflegum takti með óút-
reiknanlegri framvindu sem aldrei
missir flugið eða yfirsýn yfir farsann
eða þemun. Stíllinn minnir heilmikið
á verk eftir Aki Kaurismaki en and-
rúmsloftið er léttgeggjað og skemmti-
lega þurr húmor yfirgnæfir smá-
bæjarsöguna sem hefur ýmislegt að
segja. Kaldhæðni leikur einnig mjög
stórt hlutverk.
Myndin er beinskeytt og skemmti-
leg, lágstemmd, fyndin á köflum, ýkt
í uppsetningu og framvindu en jarð-
bundin og trúverðug í persónusam-
skiptunum. Gott í þessu.
Soldiers: Story From Ferentari
Leikstjóri: Ivana Mladenovic
Mannfræðingurinn Adi flytur
í fátækasta hverfi Búkarest til að
skrifa um manele-tónlist eftir að
kærasta hans yfirgefur hann. Í hverf-
inu kynnist hann fyrrverandi fanga,
Alberto, og eftir að óvænt tengsl
myndast þeirra á milli eru mennirnir
komnir í ástarsamband, og sambúð
seinna meir. Adi er sannfærður um
að þetta verði bara fínasta tilbreyting
en Alberto er óskaplega krefjandi,
ókurteis og ósjálfstæður einstakl-
ingur. Adi gæti hafa gert stór mistök
og finnur fyrir því á ný hvað ástin er
erfið, og enn erfiðari þegar ómögu-
legt er að hafa nokkurn hemil á elsk-
huganum.
Soldiers er í fyrsta lagi ljúfsár og
mynd, full af hreinskilni, þar sem
gallalaus frammistaða aðalleikar-
anna mótar mjög náttúrulegt and-
rúmsloft, jafnvel þótt persónurnar
séu ekkert sérstaklega eftirminni-
legar (Adi þá aðallega). Áhorfandinn
gerist fluga á vegg og tengir sig við
stefnu sambandsins hjá mönnunum.
Ef tengslin hefðu ekki gengið upp
væri myndin fljót að gliðna í sund-
ur, en trúverðugleikinn heldur öllu
saman. Alberto er athyglisverður á
sinn hátt á meðan Adi er töluvert
flatari, en hann er líka hljóðlátari
týpan sem lætur margt yfir sig ganga.
Myndin veitir örlitla innsýn í tón-
listarsenu Rómafólks (sem er tengt
sérstaklega við manele-poppið) en
hefur litlu við að bæta í þeim málum
nema fyrir þá sem þekkja menn-
ingar heiminn betur fyrir. Myndin á
það til að dragast á langinn með skot-
um af bæjarsamfélaginu og löngum
tökum sem koma á tíðum út eins
og myndin sé að leggjast í einhvern
dvala. Á tæknilegu stigi er lítið til að
hrópa húrra fyrir en Soldiers flæðir
pollrólega með sannfæringarkraftinn
að vopni. Fínasta mynd yfir heildina
sem hefði þó getað orðið frábær ef
svona tuttugu mínútur hefðu verið
klipptar af heildarlengdinni.
Tómas Valgeirsson
Brot af því besta á RIFF
Disappearance er lítil perla sem er þess virði að ræða.
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI !
SIF NART 1948
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ