Fréttablaðið - 05.10.2017, Page 52
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
5. OKTÓBER 2017
Tónlist
Hvað? Babies á ljúfu nótunum
Hvenær? 21.30
Hvar? Rosenberg, Klapparstíg
Stuðboltarnir í Babies verða með
tónleika á Rosenberg í kvöld.
Sveitin hefur skapað sér orð sem
ein öflugasta ballsveit landsins
og hefur verið áberandi í sumar.
Aðaláherslan í þetta skipti verður
hins vegar lögð á lög í ljúfari kant-
inum. Á efnislistanum má finna
lög eftir Steely Dan, Hall and
Oates, Frankie Valli, Roy Orbison
og Toto svo eitthvað sé nefnt.
Hvað? Agent Fresco
Hvenær? 20.00
Hvar? Bæjarbíói, Hafnarfirði
Hljómsveitin Agent Fresco heldur
tónleika í Bæjarbíói Hafnarfirði.
Hljómsveitin hefur legið í dvala
undanfarna mánuði að undirbúa
sína næstu breiðskífu og hefur
ekki haldið tónleika hér á höfuð-
borgarsvæðinu síðan í lok síðasta
árs. Á tónleikunum leikur sveitin
öll sín bestu og vinsælustu lög
ásamt því að gestir gætu fengið
að heyra eitthvað nýtt sem er í
vinnslu.
Hvað? Moses Hightower á trúnó
Hvenær? 20.00
Hvar? Hljómahöllinni, Reykja-
nesbæ
Hljómsveitin Moses Hightower
sendi á dögunum frá sér sína
þriðju breiðskífu, Fjallaloft, og
ætlar af því tilefni að halda tón-
leika í Hljómahöllinni á nýrri
tónleikaröð sem ber nafnið
Trúnó. Moses Hightower mun
flytja nýju plötuna á tónleikunum
í bland við eldra efni.
Hvað? Tónstafir
Hvenær? 17.30
Hvar? Bókasafni Seltjarnarness
Tónstafir er samstarfsverkefni
bókasafnsins og Tónlistarskóla
Seltjarnarness. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 17.30 og standa yfir í um
hálftíma. Þeir eru ókeypis og allir
eru boðnir velkomnir.
Hvað? Jóhanna Guðrún á Hard
Rock á fimmtudögum í vetur
Hvenær? 20.00
Hvar? Hard Rock Café, Lækjargötu
Jóhönnu Guðrúnu þarf varla að
kynna fyrir landi og þjóð. Hún
mun koma fram í Hard Rock
Kjallaranum á fimmtudögum í
vetur. Frábært tækifæri til að sjá
þessa mögnuðu söngkonu á tón-
leikum.
Hvað? Stopp! Hugvekja/Tónleikar
um geðheilbrigði á Gauknum
Hvenær? 19.00
Hvar? Gauknum Tryggvagötu
Ákveðið hefur verið að slá til
hugvekju/minningartónleika á
Gauknum. Frítt verður inn á tón-
leikana en frjáls framlög eru vel
þegin, en þau munu renna óskert
til sjálfsvígsforvarnarsamtakanna
Pieta. Höldum umræðunni uppi
um brotna geðheilbrigðiskerfið
okkar og krefjumst úrbóta.
Viðburðir
Hvað? Menningar- og búsetu-
landslag miðalda í Hörgárdal og
Svarfaðardal
Hvenær? 16.30
Hvar? Lögbergi, Háskóla Íslands
Árni Daníel Júlíusson, fræðimaður
við Þjóðminjasafn Íslands og
Reykjavíkurakademíuna, flytur
fyrirlestur hjá
Miðaldastofu
Háskóla Íslands
um menn-
ingar- og búsetu-
landslag miðalda
í Hörgárdal og
Svarfaðardal kl.
16.30 í stofu 101
í Lögbergi.
Hvað? Sam-
félagsleg ábyrgð
fyrirtækja
Hvenær? 20.00
Hvar? Arion banka,
Borgartúni
Hvað er sam-
félagsleg ábyrgð
fyrirtækja og hvernig kemur slík
ábyrgð jafnréttismálum í atvinnu-
lífinu við? Hafa fyrirtæki yfirlýsta
stefnu um samfélagslega ábyrgð
og hvernig fylgja þau henni
eftir? Þessum og mörgum fleiri
spurningum ætla Ungar athafna-
konur að reyna að fá svör við með
opnum fundi í fyrirlestrasal Arion
banka kl. 20.00.
Hvað? Kaffismökkun
Hvenær? 19.15
Hvar? Te & kaffi, Aðalstræti
Verið velkomin á opnu kaffi-
smökkunina okkar. Við hellum
upp á kaffi hvaðanæva úr kaffi-
heiminum, ýmist frá okkur sjálfum
eða í bland við kaffi frá öðrum
brennslum, íslenskum sem erlend-
um. Í smökkuninni gefst frábært
tækifæri til að smakka ólíkar kaffi-
tegundir hlið við hlið undir hand-
leiðslu reyndra kaffibarþjóna, en
fólkið sem stýrir smökkuninni
sinnir einnig þjálfun fyrir starfs-
fólk hjá Te & kaffi. Smökkunin er
opin öllum og það kostar ekkert
að taka þátt. Smökkunin tekur um
það bil eina klukkustund svo gott
er að mæta tímanlega.
Hvað? Café Lingua | Filippseyjar -
Fjársjóður tungumála
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafni Kringlunni
Vissir þú að á Filippseyjum eru
töluð 187 tungumál? Á þessum
viðburði veitir Edison Cabanlit
gestum innsýn í tungumál og
menningu landsins. Edison er
Filippseyingur og hefur búið á
Íslandi síðastliðin fimm ár. Hann
starfar sem kokkur á veitingastað
í miðborg Reykjavíkur. Móðurmál
hans er bisaya, en hann talar einn-
ig tagalog og ensku og getur tjáð
sig á íslensku. Hann er viðskipta-
fræðingur að mennt.
Hvað? Dagar nætur vikur mánuðir
ár / Almanak
Hvenær? 20.00
Hvar? Harbinger, Freyju-
götu
Sequences Art
Festival færir
ykkur: Þjófstart
á Teygjanlegum
tímum - Opnun
Ragnars Helga
Ólafssonar
Dagar, nætur,
vikur, mánuðir,
ár / Almanak (Nokkrar fyrir-
framgefnar hendingar) í Har-
binger, Freyjugötu 1.
Hvað? Hindrun
Hvenær? 17.00
Hvar? Listaháskóla Ís-
lands, Laugarnesvegi
Opnun einka-
sýningar Stefáns
Hermannssonar í
Listaháskóla Íslands
Laugarnesvegi 91.
Nettar veitingar við
opnun.
Jóhanna Guðrún
verður á Hard Rock
í allan vetur.
Arnór Dan Arnarson og félagar í
Agent Fresco spila og syngja fyrir
Hafnfirðinga í tilefni fimmtudags.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
ÁLFABAKKA
HOME AGAIN KL. 5:50 - 8 - 10:10
HOME AGAIN VIP KL. 5:50 - 8
LEGO NINJAGO ÍSL TAL KL. 5:40
KINGSMAN 2 KL. 6 - 9
KINGSMAN 2 VIP KL. 10:10
IT KL. 6 - 9
MOTHER! KL. 7:40 - 10:10
SKRÍMSLAFJÖLSKYLDAN ÍSL TAL KL. 5:40
EVERYTHING, EVERYTHING KL. 8
HITMAN’S BODYGUARD KL. 10:10
HOME AGAIN KL. 5:50 - 8 - 10:10
LEGO NINJAGO ÍSL TAL KL. 5:30
KINGSMAN 2 KL. 5 - 7:50 - 10:40
IT KL. 5:15 - 8 - 10:45
MOTHER! KL. 8 - 10:30
EGILSHÖLL
HOME AGAIN KL. 6 - 8:10 - 10:20
LEGO NINJAGO ÍSL TAL KL. 6
LEGO NINJAGO ENSKT TAL KL. 5:40
IT KL. 8:20 - 10:20
DUNKIRK KL. 8
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
HOME AGAIN KL. 5:20 - 8 - 10:10
LEGO NINJAGO ÍSL TAL KL. 5:40
IT KL. 7:20 - 10:10
AKUREYRI
HOME AGAIN KL. 8
KINGSMAN 2 KL. 10:10
IT KL. 10:10
UNDIR TRÉNU KL. 8
KEFLAVÍK
93%
THE HOLLYWOOD REPORTER
Ryan
Reynolds
Samuel L.
Jackson
VARIETY
Úr smiðju Stephen King
85%
CHICAGO SUN-TIMES
SAN FRANCISCO CHRONICLE
ROLLING STONE
EMPIRE
USA TODAY
INDIEWIRE
Colin
Firth
Julianne
Moore
Taron
Egerton
Channing
Tatum
Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna
Sýnd með íslensku og ensku tali
THE TELEGRAPH
THE GUARDIAN
FRÉTTABLAÐIÐ
KAUPTU BÍÓMIÐANN
Í SAMBÍÓ APPINU
Besta rómantíska gamanmynd ársins!
ENTERTAINMENT WEEKLY
NEW YORK POST
CHICAGO TRIBUNE
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 10 SÝND KL. 6
SÝND KL. 6, 8SÝND KL. 8, 10.20
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Good Time 18:00, 20:00, 22:45
The Big Sick 17:45
Vetrarbræður 18:00
The Square 20:00, 22:15
Stella í Orlofi 20:00
Ég Man Þig 22:00
Góða
skemmtun í bíó
3 d
aGar eFtIr
28. SEPT.–8. 0KT. 2017
SÝININGASTAÐIR/VENUES:
HÁSKÓLABÍÓ/NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNTU ÞÉR DAGSKRÁNNA Á RIFF.IS
5 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð